Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Side 25

Fálkinn - 03.02.1964, Side 25
VARIÐ YKKUR Á „ÞRENNINGUNNI44 Enginn tími hafði gefizt til að útskýra fyrir Klængi, fðður Ottós, daginn áður, hvað gerzt hafði. Þess vegna tók hann ekki mikið mark á hitasóttarórum sonar síns, en varð mikið um daginn eftir, þegar Ari og Danni staðfestu að Norðmennirnir væru gengnir á land. „Ég vona að Ottó batni skjótt," sagði hann áhyggjufullur. „Hann verður að aðvara vini okkar, því ég er hræddur um að þér sé tamara að beita sverði en orðum, Ari.“ „Og þótt ég finndi orðin tryði mér enginn, því ég er álitinn gamall sérvitringur,," svaraði Ari gremjuiega. „Ottó er ungur og hraustur og ég mun geta læknað hann með jurtalyfjum," sagði Danni. „Kannt þú eitthvað að fara með jurtalyf?" spurði Klængur. „Já, ég lærði ýmislegt, er ég var í þjónustu Volters töframanns," svaraði Danni. „Og aðstoðaðirðu hann við efna- fræðilegu tilraunirnar?" spurði Klængur gamli ákafur. „Já, ég sá hann búa til púður eftir gömlu grísku aðferðinni, en síðar beið hann svo bana við tilraunir með þetta sprengiefni," svar- aði Danni. Klængur horfði dreymandi út í loftið. Eftir viðskipti hans við Fáfni hafði hann hætt öllu grúski, en enn virtist það eiga rík itök í honum... Klængur varð niðursokkinn í hugsanir sínar um efnafræði, sem fyrrum hafði orðið deiluefni milli hans og Ara. Hann herti upp hugann og ákvað að ræða það meira og leit í áttina til Ara, sem var þá horfinn. Hann og Danni tóku að ræða málið og urðu niðursokknir í það. En Ari var kominn til Ottós, þar sem hann lá i rúmi sínu. „Hvernig líður þér?“ spurði hann. „Miklu betur,!“ svaraði frændi hans. „Danni hefur bruggað eitthvað, sem er beizkara en gall,“ sagði hann og gretti sig. „Því sterkara, þeim mun fljótari áhrif. En nú skulurn við ræða um víkingana." Þeir ræddu um, hvernig þeir gætu hindrað valdatöku víkinganna. „Við verðum að fara til hirðarinnar með nokkrum velvöldum aðalsmönnum og vara herra okkar við hættunni," sagði Ottó. „Ef hann veitir okkur lið er þegar unn- inn hálfur sigur,“ sagði Ari, glaðlega. En vonbrigði hans áttu eftir að verða beizkari en lyf Danna ... Lífið I Arnarkastala færðist i samt horf. Ottó gat farið á fæt- ur eftir viku tíma. „Eftir aðra viku verðurðu alveg jafn góður", sagði Danni við hinn óþolinmóða unga mann. Klængur gamli var þrátt fyrir öll sín góðu áform, orðinn niðursokkinn í sínar gömlu tilraunir, og Danni var aðstoðarmaður hans. Öðru hverju reis mökkur af eitruðum loíttegundum og sprengingum upp frá turninum, þar sem gamli maðurinn hafðist við, hinum íbúunum til ama og ergelsis. Ari frestaði brottför sinni frá degi til dags. Hann sat og horfði dreymandi út i loftið, því ef satt skal segja var bann orðinn vfir sig ástfanginn í Karen. En óvinirnir voru ekki aðgerðarlausir. Fundir voru haldnir með aðalsmönnum og maður sá, sem stýrði umræðum hét VÁFNIR! FAlmimin

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.