Fálkinn - 03.02.1964, Qupperneq 28
Svo sem þið hafið eflaust tekið eftir prýðir Anthony Perkins forsíðuna
hjá okkur að þessu sinni. Um þessar mundir mun Tónabíó taka til sýningar
kvikmyndina „Phaedra“ en Perkins fer með eitt stærsta hlutverkið í þeirri
mynd. Myndin er byggð á samnefndri sögu, er var framhaldssaga í Fálkanum,
á síðasta ári og naut mikilla vinsælda.
Sagan er byggð á grískum harmleik Hippolytos eftir Euripides, en leikur-
inn segir af fagurri konu, sem leggur ást á stjúpson sinn. Grískir kvenrithöf-
undurinn Margarita Liberaki hefur fært söguna í nútímabúning, þar sem
söguhetjan er lífsglöð og fögur tiginkona auðugs skipaeiganda. Hún leggur
ást á stjúpson sinn, sem er tíu árum yngri en hún.
Myndin er tekin í Lundúnum, París og Grikklandi. Sum atriði myndar-
innar gerast í Aþenu og á eyjunni Hydra. Ennfremur er atriðið frá tízkuhúsi
Dior, flughöfn Aþenu og British Museum. Tónlistina í myndinni hefur Mikes
Theodorakis samið en hann gerði einnig tónlist í fyndina „Elektra.“ Þessi
mynd er með íslenzkum texta.
Leikstjóri og höfundur kvikmyndahandritsins er sjálfur snillingurinn
Jules Dassin, en hann gat sér heimsfrægðar fyrir myndina „Aldrei á sunnu-
dögum“, en hún fór mikla sigurför fyrir nokkrum árum. Dassin hefur stjórnað
mörgum myndum og unnið með mörgum þekktum kvikmyndaleikstjórum
m. a. verið aðstoðarleikstjóri hjá Hitchcock. Hann er fæddur í Bandaríkjunum
en dvaldist mörg ár í Evrópu, hélt síðan vestur um haf en nú er hann farinn
að vinna í Evrópu. Þetta er fimmta myndin, sem hann gerir þar.
Phaedra — stjúpmóðurina — leikur Melina Mercouri. Hún hefur leikið
í mörgum myndum en gat sér heimsfrægð fyrir leik í myndinni „Aldrei á
sunnudögum“, sem nefnd var hér að framan.
Framh. á bls. 38.