Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Page 37

Fálkinn - 03.02.1964, Page 37
Kvennagull Framh. af bls. 31. líka hvernig bezt er að nálgast þá. Hún hafði horft á hann með athygli allan tímann og nú velti hún sér á bakið og settist flötum beinum, spennti síðan greipar utan um hnjákollana og lygndi aftur augunum. Það var æsileg spenna í augnaráð- inu. — Ég held þér sé alvara. — Það geturðu bölvað þér upp á. Ég sting peningunum einfaldlega í vasann. — Rænir þeim? — Já, úr því þú heldur vilt taka svo til orða. — Darlingur, það er ekkert unnið við að nefna ekki hlut- ina réttum nöfnum. Við skulum vera hreinskilin. — Hefurðu nokkuð á móti því að nota stolna -peninga? — Hreint ekki. Það eina, sem ég hef eitthvað á móti, það ör handtaka. — Það er engin hætta á að ég verði tekinn. — Hvar eru allir þessir pen- ingar? Liggja þeir bara ein- hversstaðar og bíða eftir að þú hirðir þá? — Stendur heima. Þeir liggja bara og bíða. — Bíða hvar? — í peningaskáp Hugos í spilavítinu. — Stela frá Hugo! Ertu orð- inn geðveikur, darlingur? — Nei, það er ég ekki. — Hann lætur örugglega drepa þig. Mig líka. — Þá verður hann fyrst að hafa upp á okkur. — Ég verð að játa að ég hélt þú hefðir ekki nægilegt hug- rekki til þess. Kannski hefurðu það ekki heldur þegar á reynir. — Þú skalt sjá. — Hvernig veiztu að allir þessir peningar eru í skápnum? Hefurðu séð þá? — Hugo sagði mér frá því. Þú veizt hann kann vel við mig. Það kemur stundum fyrir að hann býður mér inn á skrif- stofuna upp á glas og vindil. Kvöldið áður en hann fór, þá bauð hann mér inn og þá var pakkinn þarna, ósköp venjuleg- ur böggull í brúnu bréfi og lá á skrifborðinu hans. Hann spurði mig hvort ég vissi hvað væri í þessum pakka, ég kvað nei við og þá sagði hann mér að það væru hundrað þúsund dalir í stórum seðlum. Og svo sagði hann hálfpartinn í gríni að ég yrði að hafa augun opin, því hann væri neyddur til að geyma böggulinn í peninga- skápnum meðan hann væri í burtu á þessu ferðalagi. — Þetta er nokkuð mikið fé til að geyma í venjulegum pen- ingaskáp, óvarlegt, jafnvel þótt Hugo eigi í hlut. Er þetta hans eigið fé, persónuleg eign? — Svo sagði hann, en hræddur er ég um að skattyfir- völdin séu á annarri skoðun, ef sannleikurinn kæmi í ljós. Það mætti vel segja mér að Hugo kærði sig ekki um að tilkynna lögreglunni um ránið. — Hann þarf þess ekki heldur. Hann lætur sína eigin menn annast allt slíkt. — Ertu hrædd? — Nei, darlingur. Ekki svo fremi að hér sé um að ræða hundrað þúsund dali og kaup- bæti Þetta er enn þá meira spennandi en mig grunaði, ég viðurkenni að ég hef vanmetið þig fram að þessu. Þú ert enn hugrakkari en ég hafði gert mér í hugarlund. — Jæja, þá er eins gott að láta til skarar skríða. Hún hafði verið miklu fúsari og samvinnuþýðari en hann hafði grunað og honum hafði reynst miklu léttara að sann- færa hana en hann hafði bú- ist við, nú lágu þau á gólf- inu eins og tvö börn, sem höfðu gert samsæri um eitthvert prakkarastrik. Þau lögðu niður fyrir sér áætlun, sem var mjög einföld í framkvæmd og eftir- vænting hennar hafði aukist sífellt þar til komin var glóð í augun, og andardrátturinn orðinn ör og heitur, varirnar rakar. — Ég næ í peningana snemma, sagði hann — eins fljótt upp úr átta og hægt er. Skrifstofan verður læst en það hefur lítið að segja. Það verð- ur þyngra um vik með sjálfan peningaskápinn en mér verður þó ekki skotaskuld úr að eiga við hann. Það skal ekki taka mig meira en tíu mínútur að opna hann. Ég hef alltaf verið næmur í fingurgómunum. Auð- vitað er viðvörunarkerfi en ég veit hvernig það liggur og á hægt með að taka það úr sam- bandi. Ég tek peningana og geng síðan niður stigann bak- dyramegin. Bakdyrunum er aðeins hægt að læsa að innan verðu og það er allt sem þú þarft að gera, að vera þarna og læsa dyrunum eftir að ég er farinn út, því ef ég skil dyrn- ar eftir opnar, þá verður strax farið að rannsaka málið. Og það er of snemmt fyrir okkur. — Þá verður þú fyrir utan og ég fyrir innan, darlingur. Hvar á ég að hitta þig eftir það? — Ég held þú ættir ekki að láta sjá þig í fylgd með mér. Ég veit um lítinn bæ, sem ligg- ur um 300 mílur í þá átt sem við förum í. Þar get ég tekið mér gistingu um nóttina. Þú kemur síðan á eftir mér og tek- ur þér gistingu á sama gisti- húsi. Þú neyðist til að fara með rútunni því þarna er hvorki járnbrautarlest né flugvöllur og við höfum ekki annan bíl til umráða. Þú þarft ekki að taka með þér mikinn farangur en gleymdu ekki skartgripunum þínum. Það má vel vera að við þurfum á aukaskilding að halda. — Hvað heitir þessi bær? Hann sagði henni nafnið og einnig nafnið sem hann ætlaði sér að nota í staðinn fyrir hið rétta nafn sitt og þannig var þessi einfalda áætlun fram- kvæmd og allt gekk eins og í sögu. Og allt virtist benda til þess að þannig gengi allt áfram því nú hringdi síminn á her- bergi hans í þessum lítilfjör- lega bæ og hann reis upp úr rúminu til þéSs að svara. — Halló darlingur! sagði sagði hún, hvernig líður kaup- bætinum mínum? — Bara vel, sagði hann, — í hvaða herbergi ert þú? — Skiptu þér ekki af því. Ég kem til þín. Mig langar til að sjá sjálfan höfuðstólinn og kaupbætinn minn á einu bretti ef þú hefur ekkert á móti því. — Hreint ekki. Við erum bæði í herbergi 306 og bíðum eftir þér. Annars er ég búinn að sakna þín. — Darlingur, ég kem á stundinni. Meðan hann beið tvær síð- ustu mínúturnar en þann tíma tók það hana að fara á milli, gekk hann að opnu töskunni, seildist eftir viskípela og fékk sér vænan slurk. Hann fékk sér þennan eina slurk bara af því hann var ánægður og spenntur og fannst hann eiga skilið að fá einn eftir það, sem á undan var gengið. Hann stakk tappanum í flöskuna aftur og setti hana ofan í tösk- una. Það var barið að dyrum og hann opnaði. Hún gekk hratt inn og hann sá að hún hafði glampa í aug- unum af eftirvæntingu. Hún var heit í kinnum. — Darlingur, sagði hún, hér erum við, þú og ég. — Já, hér erum við og þarna er þetta. í þessum töskuræfii á gólfinu. — Eitt hundrað þúsund dal- ir í snjáðri tösku, það hljómar hálf ótrúlega. — Það eru stórir seðlar. — Hefurðu nokkuð á móti því að ég fái að sjá þá aðeins? Það mundi auka vellíðan mína, darlingur. — Ég vil þér líði sem bezt. Gerðu svo vel. Hann rétti henni lykilinn að töskunni og hún lyfti henni upp á rúmstokkinn og opnaði hana. Hann hafði fjarlægt brúna pappírinn og seðlaknippin voru laus og þarna stóð hún drykk- langa stund og gældi við seðl- ana með höndunum og það kom fjarlægt blik 1 augun. Svo sneri hún sér að honum og í fyrsta sinn var hún algerlega á hans bandi úr því hann hafði brennt allar brýr að baki sér. — Heldurðu að Hugo finni okkur, darlingur? — Aldrei. — Ertu hreint ekki hrædd- ur? — Hreint ekki. — Ekki ég heldur. Ég er bara í uppnámi. Hún tyllti sér á rúmstokk- inn, við hliðina á töskunni. — Darlingur, komdu hingað, vertu nú vænn. Hann gekk til hennar og settist við hliðina á henni og þarna voru þau ein í rúminu og allir þessir indælu pening- ar, sem höfðu gert þetta kleift og hvít Ijósrákin frá götunni hvarf og það varð myrkur í herberginu . .. — Darlingur, sagði hún. hvað er klukkan orðin? Framhald á bls. 39. Félagsprentsmiðjan h.f. Simi 11640. Prentun á bókum blöðum tímaritum. Alls konar eyðublaðaprentun Vandað efni ávallt fyrirliggjandi. Gúmstimplar afgreiddir með litlum fyrirvara. Leitið fyrst til okkar. Félagsprentsmiðjan h.f. Spítalastig 10 — Simi 11640. FÁLKINN 37

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.