Fálkinn - 22.06.1964, Blaðsíða 32
með liirzlit iindir §kriifur
og annað smádóí?
Bf svo, ]iá er ”1001” skáp-
urÍBin lansnin.
Framleiddir i þrem stærð-
iun: 10, 24 ©g 32 skúffu.
Aðalskrifstofa
Reykjalundi, sími um Brúarland.
Skrifstofa
í Reykjavík Brœðiaborgarstíg 9, sími 22150.
HVAÐ GERIST í NÆSTU VIKU ?
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. avr'ú).
Þessi vika verður með allra Þægilegasta móti
fyrir yður og þér munuð sennilega njóta hennar
vel. Þeir sem fæddir eru I apríl geta átt von á
óvæntum atburðum um helgina, atburðum sem
munu koma Þeim vel.
Nautsmertciö (21. avríl—21. maí).
Gamalt vandamál mun skjóta upp kollinum i
þessari viku og hætt er við að þér verðið fyrir
einhverjum vandræðum vegna þess. Þér ættuð
ekki að treysta einum starfsmanni yðar of mikið
en gætið þess að sýna honum ekki kala.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní).
Ef þér munið koma auga á einn möguleika
sem yður gefst í þessari viku til að leysa við-
kvæmt mál þá getið þér litið björtum augum á
framtíðina. Þeir sem fæddir eru í júní ættu að
fara gætilega í fjármálunum.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlV.
Þessi vika verður einkar skemmtileg fyrir yður
og þér munuð njóta lxfsins í ríkum mæli. Gamall
vinur yðar sem þér hafið ekki séð lengi mun
að líkindum heimsækja yður um helgina.
Ljónsmerkiö (23. júlí—23. ác/úst).
Þessi vika verður mun skemmtilegri en sú fyrri
og á það sérstaklega við um vinnuna og vinnu-
staðinn. Þér ættuð að reyna að gleðja einn sem
veitt hefur yður aðstoð fyrir ekki alllöngu siðan.
Jómfrúarmerkiö (24. áf/úst—23. sept.J.
Þér verðið að gæta þess vel að fara gætilega í
sakirnar hvað viðkemur vinnustaðinn í þessari
viku því þar eru ýmsar blikur á lofti. Þriðjudag-
ur og fimmtudagur verða beztu dagar vikunnar.
Vonarskálamerkiö (24- sept.•—23. okt.).
Nú munu þær aðstöð'ur skapast sem þér hafið
lengi beðið eftir og þess vegna ættuð þér að not-
færa Þær til hins ýtrasta. Verið minnugir þess að
oft velti lítil þúfa þungu hlassi. Gætið því tungu
yðar vel.
SmorÖdrekamerlciÖ (24. okt.—22. nóv.).
Það er hætt við að þessi vika verði yður ekki
til mikillar ánægju eða gleði en hún verður held-
ur ekkert mjög leiðinleg. Þetta verður ósköp
venjuleg vika og mjög hversdagsleg.
BoqamannsmerkiÖ (23. nóv.—21. desj.
Þér ættuð að gera yður dagamun og skemmta
yður því það mundi koma skapinu i betra horf.
Þér ættuð ekki að tortryggja vin yðar sem vill
yður í alla staði vel heldur sýna honum óskorða
traust.
Steinr/eitarmerkiö (22. des.—20. janúar).
Það er hætt við að þessi vika muni reynast
yður nokkuð erfið ekki sízt hvað vinnustaðinn
viðkemur. Þér verðið að gæta þess vel að komá
yður ekki illa og varist fljótfærni.
Vatnsberamerkiö (21. janúar—18. febrúar).
Svo sem fyrr ættuð þér að gefa áhugamálum
yðar meiri tíma því það eru einkanlega hagstæðar
afstöður fyrir yður til slíkra hluta. Fjármálin
ættuð þér að hugsa vel um og reyna að koma í
betra horf.
Fislcamerkiö (19. febrúar—20. mare).
Þessi vika verður talsvert þægilegri en sú fyrri
en hætt er við að yður muni þó leiðast. Þér ættuð
þvi að gera yður dagamun og skemmta yður.
Föstudagur og laugardagur beztu dagar vikunnar.
©
o
32
FALKINN