Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 4

Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 4
5 G ERÐIR LIPRIR — STERKIR — ÓDÝRIR SKODABÍLAR auka vinsœldir sínar í öllum löndum. Kynnizt þessum bilum áður en þið gerið aðrar ákvarðanir, og þið munið sannfœrast um ágceti þeirra. SKODABÍLAR eru lyllilega sambœrilegir við V.-Evrópubíla — og miklu ódýrari miðað við stcerð og vélarorku. Póstafgreiðum myndir og upplýsingar. Biðjið um verð- og greiðslu- skilmála. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ HF. Vonarstrœti 12 — Sími 2-19-81. NOVEIVIBER Mánudagur DAGATÖL eru vlnsælasta og öruggasta auglýsingiíi hvern einasta dag ársins. Talið við okkur sem fyrst. FÉLAGSPREINITSMIÐJAIM H.F. SPÍTALASTÍG 10 SÍMI 11640 Syngja klúrar vísur. Kæri Fálki! Þú leysir úr vandræðum svo margra að mér datt í hug að kannski gætir þú hjálpað mér og gefið mér einhver góð ráð og þá mundi ég kunna þér miklar og góðar þakkir. Þannig er að í kjallaranum í húsinu sem ég á heima í leigja tveir strákar sem stundum eru með gleðskap hjá sér á nótt- unni. Þeir eiga það stundum til að syngja heldur leiðinlegar og klúrar vísur og ég á ákaf- lega bágt með að þola þetta og get stundum lítið sofið út af þessu. Hvað finnst þér að ég aetti að gera? Þetta er búið að ganga svona lengi. Kær kveðja Kona. Svar: ÞaO er nú ef til vill ekki hœgt aO gera mikiO í þessu efni. Kann- ski sussa á strákana. Annars hlýt- ur þú aö vera búin aö lœra allar visurnar ef þetta hefur gengiö lengi og þarft ekki aö vera aö halda þér vakandi til aö vita hvaö kemur nœst. Þú gœtir líka gefiö þeim einhverja texta t. d. nýjustu danslagatextana og fariö þess á leit viö þá aö þeir syngi þá heldur. Reyndu þetta. Hvert er vald skólastjóra? Kæri Fálki! Nú er svo mál með vexti að skólastjórinn leggur blátt bann við að krakkarnir úr a. m. k. fyrsta bekk vinni með skólan- um (Ath. þegar við erum ekki í skólanum). Það er aðeins eitt, sem mig langar til að vita. Hefur hann leyfi til að banna svona nokkuð? Bóbó. Svar: Hvort hann hefur leyfi til aö banna svona nokkuö skal ósagt látiö en liann hefur örugglega leyfi til aö liafa nokkur afskipti af málinu. Og hann getur örugg- lega bannaö ykkur aö vinna þann tima sem þiö eigiö aö vera i skólanum. Svar til Didda: Áöur en þú gerir alvöru úr þvi aö hitta gœjann til aö berja hann aettir þú aö skreppa i nokkra tíma til Júdodeildar Ármanns. Þar mundir þú sjálfsagt læra margt sem gæti komiö þér aö notum viö viöureignina. Hvað á a'ð gera? Kæri Fálki! Ég bið þig um ráð við stóru vandamáli. Þannig er mál með vexti að ég er búinn að þjást af mikilli offitu í rúm þrjú ár og er hún alltaf að aukast, og er ég nú orðinn 124 kg að þyngd og þar sem ég er ekki nema 26 ára gamall er þetta óbærilegt. Hæðin er 179 cm svo að yfirvigtin er geysileg. Nú er það spurningin. Hvað á ég að gera til að grennast? Ég vinn í byggingarvinnu og er hún anzi erfið með köflum eins og gefur að skilja. Eins hef ég mikla hreyfingu. Efnaskipti hafa verið mæld og reyndust þau eðlileg. Nú treysti ég þér til að birta fyrir mig nákvæma formúlu yfir þær fæðutegundir sem ég má borða og hlutföllin og magnið. Ég treysti þvi að þú bregðist mér ekki í þessu vandamáli og látir bréfið ekki lenda í bréfakörfunni því mér iiggur mikið á góðum ráðlegg- ingum. Með kæru þakkiæti og kveðj- um. Þorgautur. Svar: Þaö sem þú átt aö gera er aö leita læknis og því fyrr því betra. Láttu þaö ekki dragast lengi. Alltaf það sama. Kæri Fáiki! Mér finnst það alveg svaka- legt hvað fólk er alltaf að æsa sig út af sama draslinu í þessu Pósthólfi. Það er alltaf að æsa sig út af traffikinni eða veseni á sér af því að eiga ekki sjéns á þessari og hinni skvísunni. Það skrifar aldrei almennileg bréf og spyr um Bítlana og svoieiðis stjörnur. Og þó er ég alveg sjúr á að fólk veit djöfull lítið um þá. Það veit kannski að þeir eru ekki alltaf að fara til rakara og svoleiðis en það veit ekki hvernig gæjar þetta eru klárir og allt svoleiðis. Bæ. Gulli. Svar: Þaö er alltaf veriö aö minnast á þessa Bítla. Af liverju ekki aö minnast á menn eins og Swinging Blue Jeans. Þeir sungu þó Golly, Golly Miss Molly og Hippy, Hippy, Sliake. Skvísan er erfið. Kæri Fálki! Ég er búinn að vera með stelpu í dálitinn tima en nú er hún orðin þannig að hún viil ekki vera með mér lengur. Ég veit að þú ert alltaf að hjálpa fólki svo mér datt í hug að vita 4 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.