Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Page 5

Fálkinn - 09.11.1964, Page 5
hvort þú getur ekki hjálpað mér líka. Hún er tveimur árum yngri en ég. Hún er svakaleg í munninum stundum og skammar mig eins og hund en ef ég hlusta ekki á það og fer út og kem svo aftur eftir dá- lítinn tíma er hún orðin góð aftur og allt það. Hún er nú orðin hrifin af strák sem vinn- ur með henni en hann vill held ég ekkert með hana hafa að gera því ég held að honum finnist hún leiðinleg. Hún er það ekki neitt meira en aðrar stelpur og ég veit að hún er skemmtilegri en sumar og miklu skemmtilegri en vin- kona hennar sem er alltaf að segja henni að hætta við mig. Ég veit ekki af hverju hún er orðin svona við mig og ég hugsa að hún sé kannski svona af því ég er svo rólegur og er ekki alltaf að tala um hitt og þetta. Hvað finnst þér ég eigi að gera til að halda henni áfram? Ég vona að þú svarir þessu fljótt. F. G. P. S. Ekki birta bréfið. Svar: Viö veröum aö birta bréfiö þitt þvi þú hefur þaö sem sumir lcalla stíl. Þú gefur heldur litlar upp- lýsingar svo aö ekTci er gott aö ráöleggja þér en sennilega gildir þarna sem oft áöur aö vera bara töff ... Þættir fyrir ungt fólk. Kæri Fálki! Það er gjarna talað um dag- skrá útvarpsins þarna á síðum Pósthólfsins hef ég séð og þess vegna datt mér í hug að skrifa þér nokkrar línur og leggja þar nokkur orð í belg. Ég ætla ekki að hafa þetta langt bréf og merkilegt þar sem ég geri tillögur um endurskipu- lagningu dagskrár útvarpsins ins heldur víkja lítillega að einum þætti hennar; þeim sem lýtur að ungu fólki. Einu sinni í viku er þáttur sem heitir lög unga fólksins og ég geri ráð fyrir að hann sé mjög vinsæll og kannski ekki eingöngu meðal yngra fólks heldur og því sem miðaldra er og eldra. Þá er þáttur sem í fyrra hét Með ungu fólki en h'efur nú tekið upp nýtt nafn. Sá þáttur var ágætur og ég geri ráð fyrir að þessi verði það einnig eða að minnsta kosti virðist mér það eftir að hafa hlustað á hann einu sinni. En þetta er ekki nóg. Það þarf að geva meira fyrir unga fólkið. Það er alltaf verið að tala um að það sé mikið úti að skemmta sér, og á það sjálfsagt við Reykjavík því ungt fólk úti um land á ekki alltaf hægt með að fara út til að skemmta sér. Mér finnst þess vegna að út- varpið ætti að gera eitthvað meira fyrir unga fólkið og helzt að vera með einhvern þátt fyrir það t. d. á laugardagskvöldum eftir tíu fréttir. Ég hygg að slíkt mundi verða mjög vinsælt að minnsta kosti í dreifbýlinu. Ég sting svo upp á þessu því nú fer vetur senn í hönd og þá kemur vetrardagskrá. Þið megið henda þessu bréfi ef þið viljið en ég vil áður en þið hendið því í körfuna þakka ykkur fyrir margt ágætt efni. U. Svar: Eklci er ólíklegt aö þeir sem sjá um dagskrá útvarpsins hafi þegar velt þessu fyrir sér þ. e. aö auka efni fyrir ungt fólk. En þaö eru sjálfsagt mörg vandamál í þessu sambandi eins og t. d. aö fá menn til aö sjá um þannig þœtti. Svar til L.: Ef rakarinn þinn hefur ekkert getaö ráölagt þér í þessum efnum þá er litiö hægt í málinu aö gera. Þú veröur sennilega aö scetta þig viö aö hafa hlutina eins og þeir eru. Nöldur. Háttvirta Pósthólf! Þegar eitthvað bjátar á hjá mönnum virðast þeir grípa til þess ráðs að skrifa nöldur þáttum blaðanna og segja reynslu sína. Ef þeir fá vitlaust til baka, þá skrifa þeir nokkur orð um þá reynslu sína. Ef ein- hver nágranninn dettur í það og heldur almennilegt partý svo hverfið ómar af söng og menn eru kátir, þá eru hripað- ar nokkrar línur um það. Og alltaf er verið að nöldra. Menn skrifa ekki til að segja frá ein- hverju skemmtilegu sem þeir heyra eða reyna. Það er bara bölsýnin sem fer á prent. Ef menn heyra góðan brandara eða sögu er það þeim víðsfjarri að senda það einhverju blaði til birtingar svo aðrir geti notið sömu ánægju. Og er nema von að eitthvað gangi á afturfót- unum þegar ekkert veður uppi nema bölsýni. Maður opnar varla svo dagblað eða vikublað að þar sé ekki verið að nöldra út af hinum ómerkilegustu hlutum. Og það er í hreinskilni sagt að gera mann vitlausan. Ég mælist nú til þess að menn breyti þessari háttu sinni og taki upp léttara hjal. Sendi góðar sögur og brandara sem þeir heyra og tali svo um það sem vel er gert ef það er þá nokkuð. UNDIRFÖT ÚR NYLON OG PRJONASILKI CERES, REYKJAVÍK Umferöin eykst og bifreiðaápekstpum fjölgar. Þaó borgar sig að ganga vel frá bifreiðatryggingunni. Hafíð samband við „Almennar" og kynníð yður skilmála og kjör Síminn er 17700. ALMENNAR TRYGGINGARf PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SlMI 17700

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.