Fálkinn - 09.11.1964, Blaðsíða 7
Táningarnir kannast við nafnið Fabian og þegar
þeir heyra það nefnt þá komast þeir margir í sunnu-
dagsskapið. í síðustu mynd sinni syngur hann ekki
eitt einasta lag og það mun mörgum aðdáendum
hans þykja súrt í brotið. Hann leikur í þessari mynd
á móti nýrri stjörnu sem heitir Cindy Carol og það
er sagt að mjög kært sé á milli þeirra. Hvernig þeim
kærleika er háttað vilja menn ekki fullyrða en hitt
er sannað að þau sjást mjög oft saman, bæði á
skemmtistöðum sem annars staðar.
Harold Lloyd
Kannast einhverjir við nafnið Harold
Lloyd? Ekki er það ólíklegt. Hann er
einhver snjallasti skopleikari kvik-
myndanna. Stjörnubió sýndi í fyrra
syrpu með myndum hans og eftir því
sem við höfum frétt er bráðlega von
á annarri.
Harold er 71 árs og vinnur mikið
þrátt fyrir aldurinn. Hann rekur eigið
kvikmyndafélag Harold Lloyd Corpora-
tion. Hann er eigandi að öllum þeim
kvikmyndum sem hann lék í hér fyrr
á árum og hefur nú seinni árin verið að
gera af þeim ný eintök og senda á
markaðinn.
Harold fór að vinna við kvikmyndir
um tvítugt og vann fyrst hjá Edison
Company.
DOIMIMI
Ég skal verða 100
ára, sagði maðurinn og
steig á stokk, eða
deyja ella.
Það hefur mikið verið talað um hina nýju baðfatatízku, svokall*
aða topplausa. Eins og endranær þá eru menn ekki á eitt sáttir og
sumir segja að svona nokkuð sé ekki sæmandi. Aðrir ségja að þetta
sé meinlaust og ekkert við þetta að athuga.
Margar konur hafa gengizt upp í því að ganga í topplausum kjól-
um á almannafæri og valda hneykslun vegfarenda og velþóknun ann-
arra. Sumar koma í þeim topplausu á skemmtistaði eða í kvikmynda-
hús og nokkrar þeirra hafa lent í útistöðum við lögregluyfirvöldin út
af þessu.
Þannig var það t. d. með hina 27 ára gömlu frú Diana Gordon.
Hún gekk um nokkrar fjölfarnar götur Lundúna í topplausum kjól
og sagt er að hún hafi vakið feikna athygli einkum meðal karlmarln-
anna eins og gefur að skilja. Hún stillti sér upp á strætistvagnabið-
stöðum og sagt er að fjöldi karlmanna hafi látið strætisvagnana lönd
og leið en þess í
stað notið útsýn-
isins. Frúin var
ákærð fyrir sið-
leysi á almanna-
færi og dómar-
inn dæmdi hana
seka, en hún
fékk hvorki fjár-
sekt né varð-
haldsdóm.
Þá komu syst-
ur tvær Valerie
og Marion í kvik-
myndahús í topp-
lausum kjólum.
þær voru einnig
ákærðar fyrir
siðleysi á al-
mannafæri og
fengu sama dóm
og frú Diana.
FALKINN 7