Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 7

Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 7
Táningarnir kannast við nafnið Fabian og þegar þeir heyra það nefnt þá komast þeir margir í sunnu- dagsskapið. í síðustu mynd sinni syngur hann ekki eitt einasta lag og það mun mörgum aðdáendum hans þykja súrt í brotið. Hann leikur í þessari mynd á móti nýrri stjörnu sem heitir Cindy Carol og það er sagt að mjög kært sé á milli þeirra. Hvernig þeim kærleika er háttað vilja menn ekki fullyrða en hitt er sannað að þau sjást mjög oft saman, bæði á skemmtistöðum sem annars staðar. Harold Lloyd Kannast einhverjir við nafnið Harold Lloyd? Ekki er það ólíklegt. Hann er einhver snjallasti skopleikari kvik- myndanna. Stjörnubió sýndi í fyrra syrpu með myndum hans og eftir því sem við höfum frétt er bráðlega von á annarri. Harold er 71 árs og vinnur mikið þrátt fyrir aldurinn. Hann rekur eigið kvikmyndafélag Harold Lloyd Corpora- tion. Hann er eigandi að öllum þeim kvikmyndum sem hann lék í hér fyrr á árum og hefur nú seinni árin verið að gera af þeim ný eintök og senda á markaðinn. Harold fór að vinna við kvikmyndir um tvítugt og vann fyrst hjá Edison Company. DOIMIMI Ég skal verða 100 ára, sagði maðurinn og steig á stokk, eða deyja ella. Það hefur mikið verið talað um hina nýju baðfatatízku, svokall* aða topplausa. Eins og endranær þá eru menn ekki á eitt sáttir og sumir segja að svona nokkuð sé ekki sæmandi. Aðrir ségja að þetta sé meinlaust og ekkert við þetta að athuga. Margar konur hafa gengizt upp í því að ganga í topplausum kjól- um á almannafæri og valda hneykslun vegfarenda og velþóknun ann- arra. Sumar koma í þeim topplausu á skemmtistaði eða í kvikmynda- hús og nokkrar þeirra hafa lent í útistöðum við lögregluyfirvöldin út af þessu. Þannig var það t. d. með hina 27 ára gömlu frú Diana Gordon. Hún gekk um nokkrar fjölfarnar götur Lundúna í topplausum kjól og sagt er að hún hafi vakið feikna athygli einkum meðal karlmarln- anna eins og gefur að skilja. Hún stillti sér upp á strætistvagnabið- stöðum og sagt er að fjöldi karlmanna hafi látið strætisvagnana lönd og leið en þess í stað notið útsýn- isins. Frúin var ákærð fyrir sið- leysi á almanna- færi og dómar- inn dæmdi hana seka, en hún fékk hvorki fjár- sekt né varð- haldsdóm. Þá komu syst- ur tvær Valerie og Marion í kvik- myndahús í topp- lausum kjólum. þær voru einnig ákærðar fyrir siðleysi á al- mannafæri og fengu sama dóm og frú Diana. FALKINN 7

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.