Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Síða 9

Fálkinn - 09.11.1964, Síða 9
að venjast, sagði hann. Hér í Veleba er allt hörkulegt — miskunnarlaust og ofsalegt. Það er ég líka — en það veiztu nú líka. En hættan líður hjá ... hún líður áreiðanlega hjá ... Gerir hún það nú áreiðanlega hugsaði hann. Kemst ég nokk- urn tíma yfir hina sáru þrá og innilegu elsku sem ég ber til vinstúlku Andrews? Hann sagði við sjálfan sig að hann ' yrði að leggja sig í líma og berjast gegn þessum tilfinning- ' um og að minnsta kosti varð hann að dylja þær eftir beztu föngum. Maður girnist ekki konu bróður síns. Andrew var ■ honum nákomnari en nokkur önnur mannvera. Hann gat i varla til þess hugsað að gera :t honum illt. Hann heyrði Alice snökta og • stráuk henni um hárið með særðri höndinni. Hún titraði af í ekka, eins og hún gæti ekki hætt að gráta. ii — Gráttu bara, sagði hann. rr Gráttu eins mikið og þú vilt, 11 Likwezi. Eftir nokkra stund varð hún rólegri og hann hélt að hún í< hefði sofnað. Eldingarnar sáust nú ekki lengur, en rigningin ■ helltist niður yfir skrælþurran ’ jarðveginn. ■ Alice færði sig skyndilega frá honum. Hún reis upp sem - í blindni og þreifaði eftir vasa- klút. Þegar hún kom aftur ■l eftir að hafa þvegið sér um aug- V un sá hún Rusty standa í dyr- • unum. ;; .— Hvert ætlarðu að fara? — Út í rigninguna. Ég er að ’’ hugsa um að fá mér steypibað. Langar þig til að koma með? •í — Já, svaraði hún. ,J — Klæddu þig þá í yfirhöfn. í kvöld hefurðu lítið að gera ‘ við regnhlíf eða regnkápu. Við 1 skulum fara út og skoða rign- inguna — þessa langþráðu rign- ingu sem mun vekja náttúruna • ög jörðina til nýs lífs. — Skiptir regnið virkilega svona miklu máli? — Já, það er ekki ofmælt að það þýði nýtt líf — allt hefur verið að visna og skrælna í þurrkunum. — Og þú ætlar að fara út og njóta þessarar lífgefandi rign- ingar. Hann heyrði að hann hafði fengið hana til að gleyma áhyggjum sínum og þegar hún kom tíu mínútum síðar til hans, klædd léreftsbuxum og gamalli regnkápu, virtist hún í sjöunda himni. — Ætlarðu ekki að hafa neitt á höfðinu? Allt í lagi, við förum heldur ekki langt, bara niður að fljótinu. Storminn hafði lægt, en rign- ingjn steyptist enn nið.ur, éins og hellt væri úr fötu. Orða- laust tók hann um hönd hennar og þau gengu yfir mjúkt gras- ið í áttina að fljótinu. — Svona er lífið hér í Vel- ebe, sagði Rusty. Á fáeinum mínútum breytist allt, rigning- in hellist niður og stormurinn gnauðar, árnar flæða yfir bakka sína, Og svo þegar sólin brýzt fram aftur sjatnar í án- um og jarðvegurinn þornar, svo að við komumst leiðar okk- ar. Alice snart sárabindið um hönd hans. — Mig kennir enn dálítið til, sagði hann. Alice sagði lágt. — Ég ætl- aði ekki að rífast við þig, Rusty. — Þú líktir mér við — við — Við Tomazane. það var rangt af mér. En ég vildi ekki horfast í augu við sannleikann. — Hvaða sannleika? Hún leit á hann, andlit henn- ar var fölt i daufu mánaskininu og hún strauk vott hárið frá enninu. Hann kreppti hendurn- ar og brosið hvarf af andliti hans. — Þú veizt, hvaða s'annleika. Neyddu mig ekki til að segja það. Hún lagði lófana á hann og fann hve hjarta hans barðist ótt. Hún greip snögglega um háls honum. — Við getum ekki látizt lengur, Rusty — ekki lengur. Hann þrýsti henni að sér og fann grannan líkama hennar hjá sér. — Þetta er ástin . . . það er sannleikurinn, ástin mín. í rödd hans kenndi bæði undrunar og kvíða og hann fann mjög til samvizkubits, en samtímis fyllti hann óendan- leg eleði að halda stúlkunni í fangi sér — þótt hún væri stúlkan sem bróðir hans ætlaði að kvænast. Á því ógnþrungna augnabliki þegar Andrew ók jeppanum sínum út í Harutfljótið í vexti, fann van Wyk sem allt gerðist í einu — og enda síðan. Vél- byssa glæpamannanna hljóðn- aði, þeir slökktu á ljóskastar- anum og lögregluforinginn ályktaði að þeir hefðu komizt upp úr leðjunni og væru á braut. Um leið og næsta elding lýsti upp himininn sá hann jeppann snúast nokkra hringi í svelgnum og sökkva síðan ... Hvað átti hann að gera? hann var í gildru milli tveggja stórfljóta, sem bæði voru. í ör- úm vexti og þrátt fyr'ir að Láger II var Skammt undan var enginn möguleiki að kom- ast þangað um nóttina. Til allr- ar hamingju hafði hann nokkr- ar vistir meðferðis og ekki ætti að skorta vatn. — Við snúum aftur og leit- um að einhverjum stað þar sem við getum hafzt við í nótR sagði hann við mann sinn. — í fyrramálið sjáum við til, hvort rigningin verður eins mikil. — Miller og verðir, hans verða líklega krókódílafæða, sagði sá eldri. — Miller er Inyanga, galdra- maðurinn, svaraði van Wyk. — Hann mun leika á krókó- dílana. Van Wyk vonaði að spá sín reyndist rétt. En hann var mjög kvíðinn. Hann hafði séð Miller hníga fram á stýrið, særðan af byssukúlu. Og vissulega voru líkurnar til að sleppa lífs úr þessum hildarleik ekki miklar. Það var Saul, sem bjargaði húsbónda sínum. Straumurinn færði James í kaf og honum skaut ekki upp aftur, en Saul hélt þéttingsfast í Andrew og reyndi að synda til lands. Loks bar straumurinn þá að trjá- stofni og þeir gripu dauðahaldi um hann. Nokkru síðar tókst Andrew með hjálp Saul að skreiðast upp á fljótsbakkann Þeir leit- uðu skjóls undir trjánum og Andrew var svo máttfarinn að hann missti meðvitund. Þegar hann raknaði við stundi hann. — Þeir hittu mig í öxlina, Saul. Reyndu að stöðva blóðrennslið. Andrew bar sig hreystilega meðan gamli aantunsverting- inn athugaði sárið og bjó um það eftir föngum. Hann reif niður skyrtuna sína í smáræm- ur og batt um öxlina og síðan reyndi hann að skýla húsbónda sínum með svörtum stóru lík- ama sínum. — Ég ætla að gæta hvort lögreglubíllinn er enn hinum megin við ána, og gefa honum merki, sagði Saul nokkru síðar, þegar Andrew virtist hafa jafn- að sig dálítið. — Nei! Hróp Andrews kafn- aði í sársaukastunu. — En lögreglustjórinn held- ur að þú hafir farizt í fljótinu, Nkosi. Andrew fann sársaukann hel- taka sig. En hann varð að kom- ast héðan — komast til Láger II — til Alice og Rusty. Hann varð að vernda Alice fyrir þeirri hættu, sem steðjaði að henni og hann varð sjálfur að útvega hjálp. — Við verðum að komast af stað, sagði hann. — Hjálpaðu mér að rísa á fætur. Við verð- um að fara til Láger II, hvað sem það kostar. Um tólf leytið daginn eftir höfðu þeir komist nokkra kíló- metra. Með ærnum erfiðismu- um og ótrúlegum viljastyrk hafði Andrew tekist að hökta áfram með góðum stuðningi hins dygga hjálparmanns síns. — Nkosi, ég yfirgef þig hér og held áfram einn. Þá get ég hlaupið og sótt hjálp, sagði Saul. Ég verð kominn aftur áður en myrkrið skellur á. Hér er byssan þín og ég skal hlaða hana fyrir þig. Andrew gerði tilraun til að sýna myndugleika sinn. — Þú verður að taka byss- una. Það geta verið ljón hér allt í kring. Saul hristi höfuðið ákveðinn, — Ég tilheyri ljónsættinni, sagði Saul. Ég sé um mig, Nkosi. Hann lagði byssuna við hlið Andrew. — Þú verður að halda þér vakandi, Nkosi. Þú verður að hafa mörg augu í höfðinu, svo að þú sjáir allt í kringum Þig- Sem í þoku sá Andrew dökkt áhyggjufullt andlitið lúta yfir hann. Síðan hljóp negrinn af stað eins og fætur toguðu. Skömmu eftir hádegið brauzt sólin úr skýjunum. Saul hægði á sér og tyggði bita af þurrk- uðu ljónakjöti, sem hann hafði alítaf meðferðis. Skyndilega nam Saul staðar. Hér skiptist vegurinn og hann hafði ekki hugmynd um, hvorn hann skyldi velja. Framhald i næsta blaði. FÁLKINN 9

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.