Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Síða 13

Fálkinn - 09.11.1964, Síða 13
Og það er hvorki ómennska né glópska sem hefur orðið Vanja að fótakefli í lífinu, heldur þvert á móti tryggð hans og trúnaður. í því er harmleikurinn fólg- inn. Og þessi mikli harmleikur er ekki fluttur okkur með boðaföllum og básúnublástri heldur verður hann okkur smám saman ljós í hljóðlátri dagsins önn, með einföldum, hversdagslegum orðum og gerðum, það er aðeins leikið á lægstu nóturnar. Jafnvel þegar hiti til- finninganna ber persónurnar ofurliði. Tékov er af fátæku foreldri, afi hans var fæddur í ánauð en keypti sér frelsi og Tékov auðnaðist að ganga menntaveginn, hann lauk námi í læknisfræði. Raunar var honum alltaf tamara að tala um sjálfan sig sem lækni en rithöfund. Sumum kann að finnast hneigð hans til ritstarfa hafi ekki átt sér háleitt takmark í byrjun: hann hóf ritferil sinn á því að skrifa fyrir myndablöð í Moskvu og Pétursborg, vikublöð sem voru miðuð við lesendahóp sem tæplega kallaðist læs. Sama máli gegndi um fyrstu tilraunir hans á leiksviði, það voru léttir skopþættir og gamanmál. Öfundsjúkir starfsbræður Tékovs gerðu sér títt um uppruna hans og héldu því mjög á lofti að hann væri af ánauðugum kominn. Faðir hans sem hafði reynt fyrir sér sem smákaupmaður í hrörnandi hafnarbæ, Taganrog við Asov-haf og þar er Anton fæddur. Allt frá því drengurinn komst á legg var hann fyrirvinna fjölskyldunnar og oftar en einu sinni bjargaði hann föður sínum frá skuldafangelsi. Frá Taganrog flutti fjölskyldan í fátækrahverfi í Moskvu og Tékov vann fyrir þeim með kennslustörfum og rit- mennsku og unni sér ekki hvíldar, því samtímis varð hann að stunda nám. Hann skrifaði eins og hann ætti lífið að leysa skop- sögur og greinar og veittist auðvelt að setja saman á stuttum tíma sögur í þeim anda sem ritstjórarnir óskuðu eftir. En læknisfræðin átti á þessum árum hug hans allan og óskiptan, ritstörfin voru aðeins aukastörf innt af hendi í því skyni að afla fjár. Þegar hann tók að velta fyrir sér í fyrsta sirin ritverki alvarlegs eðlis var það hvorki skáldsaga né leikrit heldur vísindaleg ritgerð úr læknis- fræði sem skyldi bera hróður hans um landið- Hins vegar fór það svo að sú ritgerð v.ar aldrei sfefifuð, - Tékov kynntist engum þeim . rithöfundum í æsku sinni sem líklegir vóru til að hvetja hann til dáða. Og bræður hans vOru fjarri því að vera ákjósanleg upp- örvun fyrir ungan mann sem vildi feta listabrautina. Nikolai hafði að sönnu ótvíræða hæfileika sem list- málari og Alexander hafði í sér skáldæð, skrifaði feikn- in öll fyrir vinsæl vikublöð í Moskvu. En þeir voru óstýrilátir og taumlausir, lifðu ’tevallsömu listamannalífi sloppnir undan húsaga föður síns. Frelsið varð þeim fjötur um fót og hæfileikar þeirra fengu ekki hotið sín þegar á reyndi. Þó harður ági föðurins hefði allt eins mætt á Tékov og bræðrum hans reyndist hann maður til að notfæra sér það frelsi sém fylgir því að hialda úr foreldrahúsum og út í heiminn, ábyrgðartilfinning hans var söm við sig, bæði gagnvart honum sjálfum og fjöl- skyldunni. Þrátt fyrir látlausa vinnu og strangt nám var Tékov jafnan hrókur alls fagnáðar í vinahópi. Hins vegar voru honum snemma hugfólgin örlög þeirra sem verða undir í lífinu og sjá vonir sínar bregðast. Honum varð snemma ljóst að maðurinn sóar kröftum sínum í eftirsókn eftir hégóma og ber loks úr býtum örvilnan og angur. Allt frá upphafi i’itmennsku hans má greina í smásögum og leikþáttum sama stefið, — stefið um það sem „hefði getað orðið.“ Þannig bregður hann upp ógleymanlegri smámynd af blaðamanni sem hefur oi’ðið vanaþræll vinnunnar og leitar sér fróunar í drykkjuskap en hafði ungur látið sig dreyma um að vei’ða nafntogað skáld og mikill rithöfundur, hann lýsir einnig tónskáldinu sem brást köllun sinni og lauk ævi sinni sem fyrirlitinn píanóleikari í danshljómsveit. Framhald á bls. 37. Guðrún Stephensen,' Gestur Pálsson og Bríet Héðinsdóttir í hlut- verkum Maríu, prófessorsins og Sonju. Bríet Héðinsóttir og Helga Bachmann í hlutverkum Sonju og . Helenu.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.