Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Side 15

Fálkinn - 09.11.1964, Side 15
BÁLKAR Þegar upp rann aðfangadagur afmœlisins, tók tengdadóttirin að ókyrrast og verða hikandi, Þegar hún svaraði fyrirspurnum: um afmœlið. Var ekki laust við, að hún vœri stutt í spuna við þá gömlu þegar hun kom með morgunskattinn á hjólbörunum þennan morgun. ir vænt um að hún er ekki óhreinni en svo, að hún er gegnsæ. Það gengur nú illa að venja börnin á, að káfa ekki á henni. Við höfum hansatjald, sem rennt er fyrir að innan, þegar einhver er í baði.“ „Hvað á það að þýða?" spurði Hallvarður. Frúin leit undrunaraugum á gestinn. En tengdafaðirinn spurði: „Hvert liggja þessar dyr?“ „Inn í svefnherbergið okk* ar. Barnaherbergið er við hlið- ina á því. Þetta þil er til að skyggja á þær dyr og mynda gang. Gangar eru svo mikið í tízku núna.“ „En hvar eigum við Varði að vera?“ Konan brosti umburðarlynd: „Þær eru svona, þessar nýju íbúðir. Maður leggur áherzlu á salinn. Nú er farið að hafa hol og stofu í einu lagi. Þetta er stællinn. Og eldhúsið í einu horninu. Þið verðið að gera ykkur að góðu að sofa hérna i stofunni. Við græjum það ein- hvern veginn.“ „Er eldhúsið hérna? Þá kvíði ég engu. Við getum hæglega sofið á prikum í þessum al- menningi." „Einhver ráð verða með rúm,“ sagði frúin. Hún vildi sýna þeim bað- herbergið. „Hvaða karladólgar eru það, sem koma þarna á móti okk- ur? Hvílík hersing!“ „Þetta eru speglar, tengda- pabbi,“ svaraði frúin sakleysis- lega. Þeir endurspegla hver frá öðrum.“ : „Ég skil. Þetta verður þá allra fríðasti nektarsöfnuður, þó að maður afklæði sig aleinn hér inni.“ „Vertu bara í öllu reifinu, góði,“ sagði Hallvarður. „Þá verðurðu síður myrkfælinn.“ Næst sýni hún þeim svefn- herbergin tvö og þar næst hurðarlaust eldhúsið. „Það verður bærilegur hangi- kjötsilmur um allan bæ, þegar þú ferð að sjóða jólahangikjöt* ið, fyrst eldhúsið er hurðar- laust." Frúin sýndi þeim hjálm mikinn, sem dró súg og gleypti með græðgi hvern gufuhnoðra, sem af matseldinni leiddi, og þeytti upp úr húsþakinu út í veður og vind. Karlarnir settust aftur í djúpu stólana. „Ég hef nú satt að segja út- vegað ykkur herbergi hérna skammt frá," sagði frúin bros- andi. „En veizluna höfum við hér.“ Sigurþór sýslumaður saup hveljur og ætlaði að spretta á fætur, en rasaði ofan í stólinn aftur. „Viltu súpa á köldu vatni, Tóti minn?“ „Já, mér heyrðist hún nefna veizlu,“ sagði Hall varður.. „Auðvitað höfum við ofur- litla veizlu," sagði frúin hlý- lega. „Hverjir eru skæðastir að flytja afmælislof hér?“ „Það veit enginn fyrr en að kemur, tengdapabbi. Hann Jón kemur bráðum heim úr bank- anum. Þá getið þið reynt að gizka á, hvaða gestir muni koma.“ „En ég er sárlasinn, alveg sárlasinn og þoli enga mærð og moðsuðu um mannkosti mína, allur eins og lurkum laminn eftir þennan lofthristing. Það getur vel verið, að ég fari á 6júkrahús — og við báðir.“ „Hvað, báðir?" „Hvorugur eða báðir.“ Frúnni varð orðfall. Gamlir menn eins og við gera það ekki að gamni sínu að leggja á sig svona gandreið í öðru eins tíðarfari." Jón Sigurþórsson, þyngsla- legur innisetumaður um fer- tugt með illhærur á báðum kjömmum, kom inn og fagnaði föður sínum. „Þú vildir ekki láta taka á móti þér, pabbi. Ég var nú samt að hugsa um að fara.“ Sigurþór kynnti förunaut sinn: „Þetta er hann Hallvarð- ur minn Guðmunsson frá Sand- höfn, gamall skólabróðir og ómissandi maður.“ „Mér heyrðist þú vera að tala um lasleika, pabbi.“ „Það getur ýmislegt orðið að rosknum mönnum. Og ekki hefðum við nema gott af volg- um leirböðum og grasbítafæði, báðir tveir of feitir.“ „Já, eftir afmælið, pabbi.“ „Heilsuleysið spyr ekki að því, hvenær hentugast sé að verða veikur. Við ljúkum þessu af. Það verður ekkert afmæli hjá hvorugum okkar. Við höf- um enga heilsu til þess.“ „Pabbi þinn verður að ráða þessu,“ skaut konan inn í og gerði sér ekki upp nein von- brigði. „En það er verst, að við erum ekki búin að fá sjón- varpið. Það hefði nú verið eitt- hvað fyrir gömlu mennina að sjá.“ „Gerir ekkert, blessuð mín,“ sagði tengafaðirinn. „Ég get komið í sláturhúsið í Búðarvík, hvenær sem ég vil á haustin Framhald á bls. 34. 15 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.