Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 17
Árið 1961 voru samþykkt lög frá Al- 1
þingi um Frceðslumyndasafn ríkisins,
og árið 1962 tók það til starfa. Þar
eru nú til rúmlega 1200 frœðslu- og
kennslumyndir. Hér á eftir segir lítil-
lega frá starfsemi safnsins.
I L FRÆÐSLU OG
SAFM
ÍSLENZKRA
KVIKMYNDA
Safnið hefur hafið útgáfu á skuggamyndum um sýslur landsins, fugla-
og dýralíf. I þessum útgáfuflokkum eru milli 20 og 30 litskugga-
myndir ásamt skýringum.
5
í
t
c
l
3
r
ae
•t
ing verður ekki á einum degi, hún verður hægt og
hægt, en hún hlýtur að koma fyrr eða síðar.
Erlendis eru starfandi kvikmyndasöfn. Þar er safn-
að kvikmyndum sem víðast að og um hin ólíklegustu
efni, gömlum og nýjum. Þessi söfn lána síðan út
myndir sínar til kvikmyndaklúbba og efna einnig
sjálf til sýninga. Því miður er hér ekki starfandi
neitt slíkt safn, en vísirinn að því fyrsta er kominn.
Það er fræðslumyndasafn ríkisins.
Lög um fræðslumyndasafn ríkisins voru samþykkt
á Alþingi 27. marz 1961. 2. grein laganna hljóðar
á þessa leið:
Hlutverk fræðslumyndasafns ríkisins er, éftir því
sem við verður komið:
a. Að festa kaup á erlendum og innlendum kvik-
myndum og kyrrmyndum í þágu fræðslumála og
annarra menningarmála.
b. Að eignast tæki til fræðslumyndargerðar, svo og
sýningartæki eftir þörfum, leiðbeina fræðslustofnun-
um er þess æskja, um val og útvegun sýningartækja.
c. Að lána skólum og öðrum fræðslustofnunum
myndir og tæki til notkunar við kennslu. Ennfremur
að lána eða leigja þessum aðilum, svo og félögum,
er hafa menningarmál á stefnuskrá sinni og standa
öllum opin án tillits til stjórnmálaskoðana, myndir
Framhald á bls. 38.