Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Síða 20

Fálkinn - 09.11.1964, Síða 20
' Nú um þressar mundir mun Kópayogsbíó taka til sýniilgar frönsku myndina Franska konan og ástin. Þessi mynd. er • í sex þáttum og tekur hver um sig fyrir ákvfeðið tímábil í ævi konunnár. Það eru sex kunnir leikstjórar sem hafa unnið að þessari mynd og stjórnar hver sínum þætti. Þættirnir eru: Bernskan, Æskan, Trúlofunin, Hjóna- bandið, Hjúskaparbrotið og Skilnaðurinn. Bernskan: Leikstjóri Henri Decoin. Handrít: Félicien Marceau. í þessum þætti er sagt frá Giséle litlu og bróður hennar. Þau erú á þeim aldri þegar áhuginn á leyndardómum náttúrunnar er að vakna. Það verður hálfgert vandræðaástand innan fjölskýldunnar þegar Giséle vill fá að vita hvaðan smábörnin kómi. Margir eru t-il- kvaddir að leysa úr þessari spurningu en enginn treystir sér til að segja henni sannleikann. Þess í stað er fundin upp sú sagá að börnin finnist innan í rósum og kálhöfðum. En þessir hlutir eru oftast not- aðir til annars en að leita í þeim smábarna og ýmsar hugmyndir varðandi þetta valda litlu stúlkunni óþægindum. Og þá er ekki úm annað að gera en að finna haldbetri skýringu. Svo sem áður segir þá er það Henri Decoin sem stjórnar þessum þætti. Hann er fæddur í París árið 1894. Áður en hann fór að fást við kvikmyndir var hann flugmaður en í kringum 1930 skrifaði hann s'tt fyrsta kvikmyndahandrit. Hann stjórnaði sinni fyrstu mynd 1933 Les bleús du ciel. Síðan hefur hann stjórnað um 30 myndum. Af fyrri myndum hans má nefna, Bonnes á tuer, Razzia, Folies Bergére cg Charmants garcons. . . Með aðalhlutverkin fara Jacqueline Porel, Pierre Jean Vaillard cg Darry Cowl. EÍÓPAVOGSBÍÓ SÝIMIR: OG ÁSTIIM % 20 FÁLKINN Næsti þáttur er Æskan. Nú er það Bichette ung stúlka sem er í þann veginn að snúa baki við bernsk- unni, sem birtist okkur. Hún á við miklar efasemdir og óvissu að stríða einkum í öllu því er varðar ástina. Bichette er í dálitlum vandræðum með sjálfa sig en hún er ekki ein um það. Foreldrar hennar hafa einnig fundið nýtt vandamál til að glíma við. Þau hafa uppgötvað að dóttir þeirra hefur kysst piltinn sinn og vita ekki hvað til bragðs á að taka. Á að banna henni slíka hluti eða sýna henni tillitssemi og skilning? Þau velja seinni kostinn og árangurinn er bæði skemmtilegur og lærdómsríkur. Leikstjóri þessa þáttar er Jean Delannoy en hand- ritið er eftir Louise de Vilmorin og Jacques Robert. Delannoy er fæddur árið 1910. Átján ára lék hann fyrsta hlutverk sitt í kvikmynd og stuttu seinna fór hann að vinna við kljppingu mynda. Hann stjðrnaði sinni fyrstu mynd 1934 Franche lippée.sem er smá-. mynd. Hann hefur stjórnað milli þrjátíú og fjörutíu kvikmyndum lengri og styttri. - Aðalhlutverkin í þessum þætti leika Annie Singi- galia, jSophie Desmarets og Pierre Mondý. Þriðji þátturinn er Trúlofunin.. Hann fjallar um Ginette og Francois sem eru trúlofuð og.æjtla að gifta sig eftir eitt ár. Francois fer þess á leit við Ginette að þau lifi saman en hún aftekur það með öllu. Þá segir hann henni að hann neyðist til að leita ásta og af ótta við að missa hann að fullu og öllu afræður Ginette að láta að vilja hans. En þegar á hólminn er komið og þau eru tvö ein i vistlegu hótelherbergi, þá skeður óvænt hugarfarsbreyting hjá ungu elsk- endunum, og allt fer á annan veg en til var ætlazt. Leikstjóri þessa þáttar er Michel Boisrond en hand- ritið er eftir Annette Wademant. Boisrond er yngstur þeirra leikstjóra sem unnið hafa að þessari mynd en hefur gert nokkrar athyglisverðar myndir.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.