Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 21
: Aðalhlutverkin í þessum þætti leika Valérie
Langange og Pierre Michael.
Hjónabandið nefnist fjórði þátturinn. Þar kynn-
umst við nýgiftum hjónum Charles og Line sem
er á leiðinni til Parísar í brúðkaupsferð. Þótt þau
hafi aðeins verið gift nokkra klukkutíma eru
Örðugleikar hjónabandsins þegar farnir að gera
vart við sig. Allt virðist gefa tilefni til ósátta og
rifrildis, hann reykir of mikið, nýi hatturinn klæð-
Ir hann illa, og jafnvel afbrýði-semin gerir vart
við sig. En þegar þau minnast heilræða prestsins,
sem gaf þau saman, þá koma þau til móts við
hvort annað og sættast heilum sáttum.
Leikstjóri að þessum þætti og sá sem jafnframt
hefur skrifað handritið er René Clair. Hann er
fæddur 1898, vann nokkurn tíma sem blaðamaður
fór síðan að leika í kvikmyndum og varð seinna
aðstoðarleikstjóri. Hann hefur stjórnað fjölmörg-
um kvikmyndum sem margar hverjar hafa hlotið
góða dóma.
Aðalhlutverkin leika Marie Nat, Claude Rich
og Yves Robert.
Fimmti átturinn heitir Hjúskaparbrot. Hann
segir frá ungri og fagurri konu Nicole. Henni leið-
ist, eiginmaður hennar er athafnasamur og dug-
legur verzlunarmaður sem vegna anna vanrækir
konu sína. Eitt sinn þegar þau hjónin eru á veit-
ingahúsi að matast með einum af viðskiptavinum
eiginmannsins, verður Nicole þess vör að ungur
maður, sem situr við annað borð, gefur henni
hýrt auga. Þetta verður upphafið að mjög nánum
kynnum þeirra. Þau gera sér bæði ljóst að ástar-
ævintýrum þeirra fylgja engar framtíðaráætlanir
heldur eru þau einungis notaleg dægrastytting
fyrir þau bæði. Eiginmaður Nicole kemst fljótlega
að leyndarmálinu, og hann beitir mjög óvenju-
legri aðferð til að losna við elskhuga konu sinnar.
Leikstjóri að þessum þætti er Henri Verneuil en
handritið er eftir France Roche og Michel Audeard.
Verneuil er fæddur árið 1920. Hann var um
tíma blaðamaður en fór síðan að vinna við útvarp
og seinna kvikmyndir. Kringum 1945 fór hann að
stjórna fyrstu myndum sínum og hefur síðan
stjórnað fjölmörgum myndum. Hann hefur stjórn-
að nokkrum myndum með Fernandel sem aðalleik-
ara.
Þau sem leika aðalhlutverkið í þessum þætti eru
Paul Meurisse, Danny Robin og Jean Poul Bel-
mondo.
Skilnaðurinn heitir sjötti og síðasti hlutinn. Þar
Framhald á bls. 33.