Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 22

Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 22
Hann er mættur á götum miðborg- arinnar snemma á morgnana til að selja morgunblöðin. Venjulega stendur hann hjá Reykjavíkurapóteki klæddur kulda- úlpu og vinnubuxum og kallar upp fréttir af forsíðum blaðanna. Og eftir hádegi heldur hann þessu starfi sínu áfram og stundum langt fram á kvöld. í Manna á meðal er hann aldrei kallað- ur annað en Óli blaðasali og líklega munu þeir færri sem vita að hann heitir i Ólafur Þorvaldsson. Þennan dag stóð hann sem flesta aðra daga um þrjúleytið við apótekið ) og var að selja Visi. Maður heyrði til hans langa vegu þar sem hann var að [ kalla: Ráðizt á mann í fyrrinótt. Það virtist talsvert að gera hjá honum og margir að kaupa síðdegisblaðið. Fæstir ávörpuðu hann, — en réttu aðeins fram fimmkrónur og fengu blað í staðinn. Afgreiðslan geklc fljótt fyrir sig enda maðurinn vanur í faginu. — Einn Vísi, Óli. — Gerðu svo vel. — Það fer lítið fyrir þessari árásar- frétt. Því getur þú ekki heldur um fréttina af viðræðunum um Loftleiða- málið eða brezku kosningarnar. — En fólkið hefur meiri áhuga á árásarfréttum, innbrotum og húsbrotum heldur en svoleiðis fréttum. — Hvað ertu búinn að vera lengi við þessa blaðasölu? — Rúm 27 ár. — Manstu hvenær þú byrjaðir? — Já, 3. marz 1937. — Hvað varstu þá gamall? — Ég var á fimmtánda árinu. Hér var samtalið rofið. Einn af biss- nesmönnum borgarinnar þurfti að fá blaðið og hann sagði bara Vísir og gekk síðan i burtu án þess að borga. — Hann borgaði ekki þessi? — Nei, ég lána mönnum stundum, — Og þéir borga alltaf aftur?

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.