Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 33

Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 33
COIM CAMILLO . . . Framhald af bls. 31. Ég má ekki láta þetta verða mér að fótakefli í stjórnmálun- um. Don Camillo hafði ætíð haft illan bifur á þeim fjárafla- mönnum, sem græddu morð fjár fyrir skjólstæðinga sína og gáfu síðan stórgjafir til kirkju- bygginga. En presturinn í Torricella var allra heiðarleg- asti maður, og Þótt honum hefði áskotnazt íþróttavöllur, sundlaug, kvikmyndasýningar- vél og sitthvað annað, sem að- dráttarafl hafði og unnt var að tefla fram í samkeppni við það, sem rauðliðar buðu, þá var það allt að þakka gjafmildi auð- ugra sóknarbarna. Don Camillo lét því dóm undir höfuð leggj- ast að sinni. — Ég ætla ekki að stofna mér í meiri vandræði, sagði hann. — Ég skal gera prest- inum í Torricella orð um að koma hingað um þetta leyti annað kvöld. Síðan ætla ég að ganga til náða, en láta ykk- ur talast við eina. Sólarhring síðar hittust þeir Peppone og presturinn frá Torricella í skrifstofu Don Ca- millos. Svo virtist sem þeir kæmust að einhverju sam- komulagi, því að Don Camillo heyrði ekkert um málið að sinni. Ári síðar var Peppone kjörinn á þing, og þá var sem ofurlítill ári settist að í sál Don Camillos. — Peppone er vanþakkiátur, hvíslaði árinn í eyra hans. — Þú reyndist honum hjálpsamur vinur, þegar þú sóttir fyrir hann getraunaféð, en hvað hef- ur hann gert fyrir þig í stað- inn? Hann hafði ekki fyrr ver- ið kjörinn á þing en hann hélt mikla æsingaræðu á almanna- færi. Kaflar úr þessari æsinga- ræðu höfðu borizt til eyrna Don Camillos. Peppone hafði gripið til þess ráðs, í því skyni að mikla kosningasigur sinn í augum manna, að lýsa á áhrifa- ríkan hátt „presti einum, senr neytti bragða til þess að koma i veg fyrir sigur fólksins í kosnihgunum, 'pfesti sem fvem- ur ætti að vera hringjari en stíga í stólinn, ef hann væri þá fær um að hringia klukk- um.“ Þetta freístaði Don Camillos að sjálfsögðu mjög til þess endurgjalds að segja hneykslissögu Peppones um getraunavinninginn á opinber- um véttvangi. En presturinn stóðst þó þessa freistingu í tvö ár. Hann var meira að segja nærri búinn að sigrast á henni, þegar hann sá þetta nýja kommúnistaplagg á veggnum. Svo bar við, að nafn hins fræga fjármálamanns hafði síðustu dagana staðið stórum stöfum í fyrirsögnum dagblaðanna um eitthvert fjár- málahneyksli, þar sem hann var aðalsöguhetjan. Þegar hæst lét í blöðunum út af þessu hneykslismáli, hóf Peppone einnig árás sína á fjármála- manninn, og í þeirri grein gat hann um „samseka presta, sem hefðu svo mikla ást á pening- um, að þeir hikuðu ekki við að taka höndum saman við fjár- málasvikara í því skyni að ræna hluta af þeim arði, sem fálk inni sér inn með erfiði“. Þessi svívirðilega árás var meira en Don Camillo þoldi. Hann tók að búa til sina eigin sprengju. Framhald í næsta blaði. Hann selur blöðin Framhald af bls. 23. — Já, ég er með nokkra svo- leiðis staði, annars er ég mest hérna á horninu. — Og þú ætlar að halda áfram að selja blöðin? — Já, ég er ekki að hugsa um að hætta í þessu fyrst um sinn. Svo kvöddum við Ólaf Þor- valdsson blaðasala sem er einn þeirra manna er setur svip á borgina. Kvikmyndir Framh. af bls. 21. er sagt frá hjónum sem eru að skilja eftir 10 ára sambúð. Þau ákveða að skilja sem vinir þar sem þeim finnst ennþá vænt hvort um annað. En þáð kemur í ljós að slíkt er erfið- ara en ætla mætti. Auk hinna tilskildu lögfræðinga sem hvor um sig hugsar um sinn skjól- stæðing kemur tengdamamma til sögunnar og þá er ekki að sokum að spyrja. Þegar skiln- aðurinn er loks um garð geng- inn eru hjónakornin orðin svörtustu óvinir. Leikstjóri að þessum þætti er Christián Jaque en handrit- ið er eftir Charles Spaak. 'ChriS'tian Jaque er fæddur árið 1905, var um tíma gagnrýn- andi en varð seinna aðstoðar- leikstjóri og seinna sinn eigin' húsbóndi. Hann hefur allt frá 1937 stjórnað yfir 30 kvik- myndum og hafa fjölmargar þeirra verið sýndar hér. Aðalhlutverkin eru leikin af Francois Périer, Annie Girar- dot og Denise Grey. Það er mjög forvitnileg mynd KRVDDIIASI'ID FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN FÁLK.INN i',

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.