Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 36

Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 36
M ATC H B OX” VIXSÆLASTI BÍLAINNFLUTNINGUII TIL LANDSINS TOMSTIJIVIDABIJÐIN Aðalstræti 8, sími 2-4026; Nóatúni, sími 2-1901 „Hann pabbi lætur alltaf svona,“ sagði Jón. „Hefur alltaf látið svona.“ Tengdadóttirin sætti sig fljót- lega við það, að ekkert þýddi að reyna að fá greið svör hjá karli um það, hvar hann yrði á afmælisdaginn. Oft lét hann í veori vaka, að hann færi heim. Annað slagið þóttist hann verða kominn á hressingarhæli. Afmæli Hallvarðar var liðið og minntist hvorugur á það í áheyrn hjónanna. Frúin afsagði að baka og breiskja í óvissu. Jón sagði að ekkert væri við því að gera, þegar þrái hlypi í hann pabba. Karlarnir röltu svona um bæinn og létu í ve*ri vaka, að þeir miðuðu allt við giktina og vissu aldrei sinn næturstað fyrr en á síðustu stund. Annars höfðu þeir náttból í næstu gqtu, í herbergjum stýrimanns nokk- urs, sem ekki var heima, en var kunningi Jóns. Þegar upp rann aðfangadag- ur afmælisins, tók tengdadótt- irin að ókyrrast og verða hik- andi, þegar hún svaraði fyrir- spurnum um afmælið. Var ekki laust við að hún væri stutt í spuna við þá gömlu, þegar hún kom með morgunskattinn á hjólbörunum þennan dag. „Við fljúgum í dag,“ sagði Sýsli. Hallvarður má ekki vera lengur að heiman. Þeir ætla að fara að kaupa svo stórt pípu- orgel í kirkjuna heima hjá honum, að það tekur yfir hálf- an hjallinn og bindur söfnuðinn á skuldaklafa í þriðja og fjórða lið. Nú ætlar Hallvarður heim til að afstýra þessu á elleftu stundu. Og enga bót fær hann við tognuninni, sem hann varð fyrir í sjóíerðinni. Þetta verður bara sársaukaminna með tím- anum, sagði læknirinn okkar í Búðarvík.“ Hjónunum létti. Þau önzuðu ekki þessu um kirkjuna í Sand- höfn. En frúin sagði þægilega: „Æi, já, alltaf er nú viðkunnan- legast að vera heima á svona dögum.“ „Og ég kann bara vel við að fljúga," sagði Hallvarður. Sæ- freyjur og lofthænur eru þær tígurlegustu og tápmestu kon- ur, sem ég sé nú á dögum. Þær ættu að hafa þreföld laun á við okkur.“ „Já, við fljúgum," sögðu karlarnir og depluðu augunum hvor framan í annan. Þeir höfðu ekki leyft ættingj- unum að snúast neitt við sig þessa daga. Og ekki tóku þeir í mál, að hjónin í Snobbhill 13 færu út á völl.. Þeir kvöddu þau með valdi úti við bílinn og Sögðu þeim að flýta sér inn í hlýjuna, þetta væri óþarfi, að fólk þeyttist á nótt sem degi niður að höfn eða út á flugvöll til að faðma flækinga. Þar með voru þeir kysstir og kvaddir, og bíllinn tók á rás fyrir húshornið. Snemma morguns fóru að berast skeyti til Sigurþórs sýslumanns. Honum var þakk- að göfugt ævistarf og allavega mannkostir. (Jón gat ekki stillt sig um að lesa skeytin). Sumir ortu og líktu honum við snörp- ustu vígahrappa sögualdarinn- ar. „Hvað á þetta að þýða, eins og hann tengdapabbi er á móti öllum hasar,“ sagði frú Dobba. Undarlegt þótti hjónunum, að skeytunum skyldi svo mörg- um stefnt suður. En líkast var það karlinum að laumast heim í kyrrþey og láta engan vita, að hann væri kominn. Um hádegisbilið hringdu þau norður, í því skyni að óska honum til hamingju. „Ha — hvað segirðu? Hvað er þetta?“ Svona var spurt norðan að, og svona var spurt sunnan að, en enginn vissi neitt. Karlarn- ir voru týndir. En ekkert farar- tæki hafði týnát. Sýslumannsfrúin í Búðarvík varð samt ekkert uppnæm: „Ég fékk bréf frá h'ónum í fyrradag, og hann var hress. Hann er bara að slóra á leið- inni. Þeir eru vísir til að háfa flogið einhvern krók og ekki farið með þeirri vél, sem þeir ætluðu með upphaflega," sagði hún. Hún vildi enga frekari leit að öldungunum fyrst í stað. Kona Hallvarðar í Sandhöfn svaraði því í símann, að hann hefði ráðgert að sjá sig um á leiðinni. Klukkan ellefu um kvöldið var hringt dyrabjöllu á Snobb- hill 13. Aumingja hjónin voru ekki háttuð. Þau sátu í almepn- ingnum og réðu ráðum sínum, en sitt sýndist hvoru. Konan vildi tala við lögregluna. Þau spruttu á fætur og fóru bæði til dyra. Eru þá ekki karlarnir komn- ir, hversdagslegir á svipinn. og lausir við allt ferðasnið. Hjónin komu engu orði upp. Þeir buðu þægiléga gott kvöld og fengu sér sæti inni FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.