Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 37

Fálkinn - 09.11.1964, Qupperneq 37
í stofu. Þá brast á mikil spurn- ingahríð. „Æ, við tókum okkur bíl þarna yfir í götuna okkar í gær,“ sagði sýslumaður. „Við fórum svo ekkert lengra. Við ætíum í fyrramálið. Þið eruð vís til að koma með út á völl og horfa á eftir okkur.“ Spurningahríðin fór hraðn- andi. „Ég veit að ævintýri eiga ekki að vera svona,“ sagði Sigurþór gamli. „Þeir segja að ljúka eigi hverri sögu, þegar leikurinn stendur sem hæst. Það má ekki smádofna yfir henni.“ „En af hverju hringduð þið ekki?“ var spurt í sjötta eða sjöunda sinn. „En þetta eru bara hunda- kúnstir. Lífið er ekki svona. Allt nær sínu hámarki og dvínar síðan, þegar dregur að leikslokum. Jurtirnar verða ekki bráðkvaddar á miðju sumri. Þær bera fræ, fölna, visna og falla, og fara sér að engu óðslega." „Og við svona óróleg í dag ... “ „Það er eins með manneskj- urnar. Þeirra ástarsögu lýkur ekki skyndilega, eins og blásið sé á ljós, Onei. Allt heilbrigt fólk fær, einhvern tíma á æv- inni sæluhroll í brjóstið, sem engin orð fá lýst. En það eru aldrei sögulokin. Þá erum við í blóma lífsins. Svo fer blessuð jörðin að kalla á okkur smátt og smátt. Og hér stöndum við, notalega syfjaðir og getum ekki annað. Svona yrkir nátt- úran, og enginn gerir það betur.“ „En hvernig lítur fólk á svona tiltæki hjá gömlum mönnum? Og hvaða ræður eru þetta, pabbi?“ ,Æg er bara að afsaka, hvað ferðin fékk dauflegan endi. Við hröpuðum ekki í flugvél. Það var ekki ekið yfir okkur fulla. Og við fórum ekki einu sinni á kvennafar. Við átum harð- fisk í gær, elduðum okkur hafragraut í dag og lásum og sváfum sitt á hvað báða dag- ana. Afmælisævintýrið okkar endar bara svona í lægð og bláþræði, eins og það er kallað. Eitt af því, sem ég las, var syrpa, af allavega tímaritum. Þau voru full af fyrirskipunum um, hvernig semja eigi sögur. Og því er ég með þessar vanga- veltur um skáldskap." „Bara til að tefja tímann, góði -pabbi,“ sagði Jón Sigur- þórsson önugur. „Er ekki nógur tími núna, þegar vélarnar vinna allt, og vinna sumar hundrað sinnum hraðar en við getum hreyft okkur við verk? í mínu ung- dæmi var alltaf tími til að tala saman. En ef þið þurfið ekki að sækja eld í aðra bæi, ættuð þið að kveikja undir katlinum og gefa okkur Varða eitthvað volgt.“ Oddný Guðmundsdóttir. Vanja frændi Framhald af bls. 13. Fyrsta alvarlega tilraun Tékovs til þess að rita leikrit fór út um þúfur. Það var aldrei fært upp og ekki gefið út fyrr en eftir dauða hans. Höfundur- inn komst fljótt að raun um að mistök hans við ritun þess væru stórfelldari en svo að hægt væri að ráða bót á þeim og því lagði hann það á hill- una. Leikritið er þó fróðlegt fyrir þá sem unna verkum Tékovs og vilja kynna sér þróun hans til hlítar. Það hef- ur verið þýtt á ensku og ber heitið Don Juan me'ð rússnesku sniði. Það er allt of langt og flókið, fylgir mjög nákvæmlega þeim formúlum sem þá giltu um leikritun í Rússlandi og voru vægast sagt mjög gamal- dags. Þrátt fyrir það býr það yfir ýmsum þeim eiginleikum sem áttu eftir að þroskast og dafna i seinni verkum Tékovs, Ijúfsár tónninn er ósvikinn og hér segir frá brostnum vonum fólks sem stöðugt lifir undir fargi hversdagsleikans. í þessu leikriti eru ekki færri en fimm ástarævintýri sem söguhetjan Platonov á í og leiknum lýkur með sjálfsmorði. Nokkrar sögu- hetjur í þessum leik virðast vera frumdrög að því fólki sem síðar átti eftir að koma fram í leikritum Tékovs. Máfurinn var fyrsta leikrit Tékovs sem náði hylli almenn- ings. Þó varð það ekki fyrr en í annarri atrennu. Fyrsta upp- færsla leikritsins lenti í handa- skolum, leikstjórinn virðist ekki hafa gert sér ljósa grein fyrir eðli verksins enda voru hér ekki farnar grónar götur. En það var annað skáld, Nemi- rovich- Dansjenkó, sem sá að fXlkinn I

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.