Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Side 40

Fálkinn - 09.11.1964, Side 40
MM hyasintur í jurtapolti í kjallaranum Gott er að nota venjulega leirpotta um 10—12 cm í þvermál, fyllið þá með sandblandaðri mold, hafið um 3 cm bil að brún pottsins. Laukurinn á að vera næstum hulinn af jarðvegnum, sem á að vera gegnbleyttur. Svo er potturinn settur niður í dimman, þurran, en þó ekki of heitan kjallara. Þegar spíran er um 5 cm löng eru pott- arnir fluttir upp í stofuna. Pappírshetta sett ofan á hvern lauk, þar til plantan veltir hettunni af. I jurtapotti með svörtum plastpoka Sé enginn kjallari fyrir hendi, er hægt að notast við svartan plastkoka. Búið um laukana eins og áður er sagt og pokanum síðan brugðið yfir pottana. Pottarnir látnir hvila á pokaopinu, svo að myndist vel lokað rúm, þar sem engin birta kemst að. Spíran má ekki snerta pokann, svo að hún skekkist ekki eða skemmist af vatni, sem hefur setzt innan á þá. Geymt t. d. inni í eldhússkáp, má þó ekki vera í of miklum hita. Sett inn í stofu, þegar spíran er orðin nógu kröftug. í laukglasi Fyllið næstum glasið með regnvatni eða soðnu vatni. Laukurinn settur þannig í glasið að hann snerti ekki vatnið. Fallegt kramar- hús sett yfir glasið, sem geymt er á ekki of heitum stað, þegar komnar eru góðar rætur á laukinn, er hann fluttur inn í stofu og hettan tekin af, þegar plantan ýtir sjálf við henni. Fljótprjónaöir vettlingar Það er auðveldast að prjóna vettlinga á tvo prjóna og sauma þá síðan saman. Ágætt er að nýta upp alls kyns garnafganga í þá. Séu vettlingarnir röndóttir eru þeir auð- þekktir og síður hætta á að þeir týnist. Stærð: 3—5(7—9) ára. Efni: 50 g af t. d. grænu, gulu og appelsínu- litu garni. Prjónar nr. 3 og 4. Fitjið upp 40 (44) 1 með grænu garni á prj. nr. 4 og prjónið 3 umf. garðaprjón, því næst slétt prjón og þannig röndótt: 2 umf. grænt, 4 umf. gult, 4 umf. appelsínul. Sett á prj. nr. 3 og grænt garn, prjónuð brugðning (1 sl., 1 br.) í 6 umf. Sett aftur á prj. nr. 4 og nú eru prjónaðar 4 umf. með gulu garni, tekið jafnt úr á 1. umf. um 7 1. Þá er farið að ætla fyrir þumli: Prjónið með appelsínul. 16 (18) 1. sl. prjónið 1 sl. 1. í bandið milli 16. og 17. 1. (18. og 19. 1.) (= auka í 1 1.), 1 sl., auka 1 1., 16 (18) sl. Næsta umf. prjónuð brugðin. Prjónið 4 umf. appelsínul., 4 umf. grænar, 4 umf. gular og aukið áfram út á sama hátt í hverri réttri umf., þar til 11 (13) 1. eru á þumli. Nú er prjónað með appelsínul., lykkjurnar frá þumli geymdar, fitjaðar upp 3 nýjar 1. fyrir ofan þumalinn. Pi'jónaðar 4 umf. appelsínul., 4 umf. grænar, 4 umf gul- ar, 4 umf. appelsínul. Síðan kemur grænt garn og í 3ju umf er farið að taka þannig úr (á 3—5 ára' er byrjað að taka úr í appel- sínul.): ★ 3 sl., 2 1 saman, endurtekið frá ★ út umf. Tekið úr í hverri réttri umf., hafið alltaf 1 sl. lykkju færri milli úrtakanna. Eftir 4. úrtöku eru 2 og 2 1. prjónaðar saman, fellt af. Setjið 1. frá þumli á prj. nr. 4 og prjónið 4 umf. appelsínul., fitjið upp í 1. umf. 2 nýjar 1. hægra megin og 1 1. vinstra megin. Nú er prjónað með grænu garni og tekið úr. (Á 3—5 ára er byrjað að taka úr í síðustu umf. með appelsínul.) í 3ju og 5. 'umf. þannig: 1 sl. 2 1. saman, 4. og 6. umf. brugðnar. Fellt af. KVENÞJOÐIN Ritstjóri: Kristjana Steingrímsdóttir húsmæðrakennari. tO FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.