Fálkinn - 09.11.1964, Síða 42
Fræðslukvikmyndir
Framhald af bls. 38.
heim kemur, en hafa ekki fjár-
hagslegt bolmagn til þess.
Þessa menn þyrftum við endi-
lega að geta styrkt bæði tii að
taka fræðslumyndir og eins tii
þess að taka heimildarmyndir,
sem seinna yrðu geymdar hér
á safninu. Við ættum að geta
veitt þessum mönnum margvís-
lega aðra hjálp, svo sem við
ao' dreifa og selja myndir
þei- a erlendis, er. til þess höí-
um við betri aðslöðu en að'rir.
En þessi starfsemi er eins og
áður sogir skammt á veg
koi'dn, og starfsmenn safnsins
eru aðeins tveir eða þrír. En
með auknum fjárveitingum
ætti safnið með tímanum að
verða fært um að gegna hér
mikilvægu hlutverki.
— Og fyrst þið voruð * að
minnast á íslenzkar kvikmynd-
ir, þá langar mig til að drepa
‘ á einn hlut í því sambandi.
Við höfum nú hafið söfnun á
ísienzkum kvikmyndum og
myndum um íslenzkt efni. Við
ætlum að reyna að ná hingað
á safnið öllum þeim myndum
sem teknar hafa verið hér á
landi og einhverju máli skipta.
En þetta hefur okkur gengið
heldur erfiðlega, »3allega að
komast í sarnband við þá að-
iia, sem eiga kopiur af göml-
um myndum. Ef við höfum upp
á eíniiverri myud þá, látum
við gera af benni kopiu og
geymum siðan hér á safninu,
en eigandinn fær frumkopiuna
aftur í sínar hendur. En þótt
þessi söfnun haíi ekki gengið
sem bezt, aðallega vegna þess
að við höfum ekki fé og tíma,
þá eigum við þó orðið nokkurt
safn. í fyrra barst okkur t. d.
í hendur að gjöf kvikmynd
danskrar konu sem hún hafði
tekið hér sumarið 1938. Og þá
má kannski geta þess, að hing-
að kemur töluvert af útlend-
ingum til að sjá þessar myndir
hjá okkur, en við höfum hér
lítinn sal, sem við getum sýnt
í. Aðallega eru þetta menn,
sem eru að vinna að kynningar-
myndum um landið, en einnig
einstaklingar, sem koma ein-
göngu fyrir forvitnis sakir.
— Hefur safnið einhverja
aðra fjáröflunarleið en fjár-
veitingu af fjárlögum?
— Varla getur það talizt.
Við tökum að vísu leigu af
myndum, nema þeim, sem við
lánum skólum. Þetta er ekki
há leigað en það munar
um hverja krónu. Hingað leita
mörg félög eftir myndum til
42
Einnig hefur komið til tals,
þeg \r fram í sækir, að hafa
okkar eigin sýningar. Með þess-
um hætti getum við aflað okk-
ur nokkurs fjár tii starfsem-
innar.
— Og þá er annar þáttur
starfseminnar, sem mætti
minoast á. Við höfum gefið út
nokkra flokka af litskugga-
niyndum. Þessir flokkar saman-
standa af 20 til 30 skuggamynd-
um, og þeim fylgja handhægar
skýringar. Við höfum þegar
geí'ið út flokka um þessar sýsl-
ur: Árnessýslu, Borgarfjarðar-
sýslu, Skagafjarðarsýslu, Eyja-
fjarðarsýslu, Múlasýslur. Ætl-
unin er að gefa út þannig
flokka um allar sýslur lands-
ins. Við höfum aflað okkur
mynda í þennan flokk með því
annaðhvort að senda mann tii
myndatöku eða kaupa myndir
af einstaklingum. Við þurf-
um að vera nokkuð vandlátir
á myndir, því þær þurfa að
sýna vel staðháttu og landslag.
Auk þessa flokks um sýslurn-
ar höfum við gefið út flokka
um íslenzka fugla og jurtir og
einnig um starfsíþróttir.
— Hefur þú nokkrar tölur
handbærar um útlán úr safn-
inu?
—- Síðasta ársfjórðunginn
1963 voru lántakendur rúmlega
fjögur hundruð og fengu lán-
aðar um 1500 kvikmyndir. Auk
þess lánuðum við út um 400
myndaræmur. Auk þessara
reglubundnu útlána til skóla
koma hingað eins og áður seg-
ir einstaklingar og hópar til
að skoða myndir í safninu og
fá þær lánaðar. Ég tel það ekki
ofsagt, þótt gert sé ráð fyrir,
að hér hafi verið lánaðar um
20 myndir daglega.
— Og það er margt sem
bíður úrlausnar?
— Já, það er margt sem
þarfnast úrlausnar. Safnið er
ungt og þarf að byggja upp
frá grunni og viðfangsefnin
eru óþrjótandi á öllum sviðum.
Kvenþjóðin
Framh. af bls. 41.
saman við, sykri blandað
saman við, vætt í með mjólk-
inni. Deigið hnoðað lítillega.
Þekið botn á móti (um 20X30
cm, sem gott er að búa til úr
málmpappír) , með deiginu.
Raðið þunnum, þunnum, háum
eplasnúðum á botninn.
Ofan á: Egg og sykur þeytt
vel, kokósmjöli og bræddu
smjöri biandað saman við. Sett
ofan á eplin. Bakað við 200°
Skorið í bita, þegar orðið kalt.
Emkaumboð
H. i IULINIUS
ÍIUILO VEHZLUN
foctnur
Divinia verður yðar
ilmspray eftir að hafa
reynt það einu sinni.
FALKINN