Fálkinn - 15.03.1965, Blaðsíða 37
• Tom iones
Framh. af bls. 35.
mar lávarður tók að votta
henni ást sína hjartnæmum
orðum, bað hún hann af fyllstu
hæversku að hlífa sér við slík-
um játningum eins og á stæði.
En lávarðurinn var ekki á
því. Hann féll á bæði knén,
tók um hönd henni og bað
hennar með tilhlýðilegu orða-
lagi, sem oss þykir ekki til-
hlýðilegt að endurtaka og að
þeim orðaflaum loknum, spratt
1 lávarðurinn á fætur sem snar-
{ legast, vafði hana örmum og
• lét sig óp hennar og vein engu
i skipta, enda vissi hann að eng-
inn heyrði til, nema þá kannski
lafði Bellaston. Hún hafði séð
; um það, sú tigna heimskona,
; og ekki þurfti lávarðurinn að
j óttast að hún kæmi skjólstæð-
'j ingi sínum til hjálpar.
En eins og áður er getið, ber
ekki allt upp á sama daginn
og eru engin ráð svo snjöll, að
ekki geti eitthvað orðið til að
ónýta þau. Það gerðist í þess-
um svifum að útidyrunum var
hrundið upp og um leið kallað
sterkum karlmannsrómi svo
hátt og hressilega að undir tók
í húsinu: „Hvar er hún, stelpu-
skrattinn? Hvar i fjandanum er
hún hérna, því að hún er hér
innanveggja, það veit ég. Vísið
mér leiðina til hinnar vanþakk-
látu dóttur; ég á dálítið van-
talað við hana... og hýða skal
ég hana, að mér heilum og lif-
andi.. .“ Um leið var hurðinni
hrundið upp og Western land-
eigandi stóð á þröskuldinum,
svipaðist um og gat ekki kall-
azt beinlínis árennilegur.
Það er af lávarðinum að
segja, að hann var höndum
seinni að sleppa öllum tökum
og hlamma sér í stól, þar sem
hann hímdi eins og illa gerður
hlutur. Og þó að ungfrú Soffía
þekkti mætavel ofsa föður síns,
ekki sízt þegar hann var við
skál eins og í þetta skiptið,
fagnaði hún komu hans og þótti
að ekki hefði mátt öllu seinna
vera.
Lafði Bellaston kom nú á
vettvang og laut landeigandinn
henni djúpt; vildi sýna að hann
kynni alla hæversku hofmanna
þó að bóndi væri. Sagði hann
síðan erindi sitt; hann væri
kominn til að sækja dóttur sína,
þá vanþakklátustu dóttur, sem
nokkur faðir ætti, er hún hafn-
aði ekki einungis bezta gjaf-
orði, heldur hlypizt að heiman
Limiim itt
FILMUR OG VÉLAR S.F.
JLi.1 illllllH,
og skyldi hún r.ú sjálfa sig
fyrir hitta.
En þó að lafði Bellaston væri
reynd heimskona varð henni
illa á í messunni í þetta skipt-
ið, því að hún hugði landeig-
andann eiga við það, að dóttir
hans vildi ekki þíðast lávarð-
inn og varð af þessu nokkur
misskilningur. Bað hún ungfrú
Soffíu að reynast hlýðin dóttir
og taka bónorði lávarðarins,
sem bæri af öðrum mönnum.
En þá ærðist Western landeig-
andi bókstaflega; kvað það
aldrei skyldi verða, að dóttir
sín giftist lávarði; hún ætti að
giftast heiðvirðum sveitamanni,
hann væri þegar valinn og þar
yrði engin breyting á gerð.
Hafði hann þar um fleiri vel
valin orð, kvaddi síðan lafði
Bellaston af mikilli hæversku
og sneri sér því næst að dóttur
sinni — kvað hana geta valið
um hvort að hún gengi sjálf-
viljug út að vagninum eða hann
bæri hana. „Og skal ég aldrei
hafa af þér augun, stelpa mín,
fyrr en ég hef komið þér í
örugga höfn hjónabandsins,
því heiti ég.“
Það var á leiðinni niður stig-
ann, að þau mættu þernu
Soffíu, og kom þá á daginn,
að Western landeigandi átti
líka nokkur orð vantöluð við
hana. Sagði hann henni for-
málalaust upp vistinni og bað
hana aldrei koma aftur fyrir
augu sín, og ætti hún mikla
sök á því hve óhlýðin Soffía
hefði reynzt sér. Espaðist hann
einungis við, er ungfrú Soffía
bað hann að vera ekki svo
harður stúlkukindinni. Leiddi
hann dóttur sína á brott og setti
hana inn í vagninn og ók loks
af stað eins hratt og hestarnir
komust.
Þess ber að geta til skýringar
á þessum atburðum, að það var
frú Fitzpatrick, frænka Soffíu,
sem gert hafði Western land-
eiganda viðvart og sagt honum
hvar dóttir hans væri niður-
komin, og brá hann þá skjótt
við eins og vandi hans var.
ÞRÍTUGASTI OG ÞRIÐJI
KAFLI.
Enn verður Tom lones
margt a5 ólóni.
Þernunni varð það fyrst fyr-
ir, að hún hljóp sem fætur
toguðu heim til Tom Jones og
sagði honum tíðindin. Hélt hún
yfir honum langa tölu; kvað
húsmóður sína, ungfrú Soffíu
hafa unnað honum hugástum,
og væri það illa farið er þau
• ••••• Framh. á bls. 40.
Margar gerðir af
sýningartjöldum
Sýningarlampar
Flestar gerðir
af litfilmum
35 mm—8 mm
svart-hvítar
allar stærðir
8 mm filmuskoðarar,
límarar — lím
ÁRS ÁBYRGÐ
Margar gerðir
af ljósmyndavclum
8 mm tökuvélum
8 mm — 16 mm — 35 mm
70 mm sýningarvélum
fyrir heimili, skóla,
félagsheimili og
kvikmyndahús.
Transistor ferðatæki og
viðgerðaþjónusta
|Leiðbeinum meðhöndlun
á sýninga- og
tökuvélum
8—16 mm filmuleiga
Viðgerðir- og
varahlutaþjónusta
Fullkomnasta
litskuggamynda-
sýningavélin
með innbyggðu
bendiljósi.
EINKA UMBOÐ
II ■ » ■ ■ ITT
HN O TA JV AUGLÝSIR
VAXDAÐIR SVEFNSÓFAR
VERÐ ADLIXS KR. 8100.*
GÓDIR GRLIDSLUSKILiVIÁLAR
- PÓSTSENDUII -
IINOTAN IIÍJSGAGNAVERZLUN
ÞÓRSGÖTU 1 ■ SÍMI 20820
FÁLK.INN 37