Fálkinn - 09.08.1965, Síða 6
DAGURINN
HENNAR
JJULDA? ... Ó, hún er engill í mannsmynd, sú kona.“
Þetta sagði ein af sængurkonunum hennar fyrir nokkrum
árum og bætti við, að hún myndi óhikað leggja líf sitt og
allra sinna barna í hendur Huldu. Og án efa eru fleiri á sömu
skoðun. Alltaf er hvert rúm skipað á fæðingarheimilinu sem
hún veitir forstöðu, og komast færri að en vilja.
DAGUR Huldu Jensdóttur, yfirljósmóður og forstöðukonu
Fæðingarheimilis Reykjavíkurborgar, er langur og ábyrgð-
arþungur. En það er ekkert þungt yfir fasi hennar og fram-
komu. Hún er glaðleg í viðmóti og broshýr, og það er eitt-
hvað traustvekjandi við hana sem hlýtur að hafa holl áhrif
á alla í návist hennar, bæði sængurkonur og annað fólk.
Dagurinn hennar — ja, sólarhringurinn hennar væri kannski
réttara að segja, því að börnin fæðast ekki endilega á viður-
kenndum skrifstofutíma, milli kl. 9 og 5 — er margþættur.
Og engir tveir dagar eru eins. Stundum er hún vakin upp
tvisvar-þrisvar á nóttu, og stundum fær hún að sofa sína
sjö eða átta tíma í friði. Það fer allt eftir duttlungum hinna
Frásögn af einnm degi í lífi Huldu Jensrl.
yfirljósmóður og forstöðukonu
Fæðingarheimilis Reykjavíkurborgar
nýju borgara sem eru að koma í heiminn með misjafnlega miklu
brambolti. Ekki svo að skilja, að Hulda hafi tíma til að vera
viðstödd allar fæðingar á heimilinu. En oft þarf að kalla í
hana og það á ýmsum tímum sþlarhringsins.
HÚN býr í lítilli íbúð á efstu hæð fæðingarheimilisins. Það
er ósköp venjulegt hús að sjá, hornhúsið á Eiríksgötu
og Þorfinnsgötu, beint á móti Hjúkrunarskólanum, en þar
fer fram margoft á viku hverri hið eilífa kraftaverk, „sem
ekkert undur veraldar jafnast á við — undrið mikla sem ger-
ist þegar ný, fullsköpuð mannvera, svo lítil samt og ósjálf-
bjarga, sér dagsins ljós í fyrsta sinn,“ að vitnað sé í orð Huldu
sjálfrar.
DAGURINN hennar byrjar að jafnaði rétt fyrir klukkan
sjö. Og ef ekkert sérstakt hefur komið fyrir, getur liún
notað næsta klukkutímann eftir eigin geðþótta. Hún fer á
fætur og snyrtir sig, smeygir sér í peysu og síðbuxur og labb-
ar af stað í hressilega morgungöngu, 20-30 mínútur. Úti-
loftið er henni nauðsyn, hún er náttúrubarn og elskar eðlilegt