Fálkinn - 09.08.1965, Side 27
f
<-K-K-K-K-K-K***-K-K-K-K-K-K-)<-K-K-K-K-K-}<-)
HVER
ER
VINSÆLASTA
HLJÓM-
SVEITIIM?
Þegar þessi þáttur hóf göngu sína, þá minntist ég á
það, að ætlunin væri að hafa noitkra fasta liði í þætt-
inum og nefndi ég í því sambandi OSKAMYND, sem
birt yrði á þriggja vikna fresti. Því miður hafa undir-
tektir lesenda verið mjög daufar og ef engin breyting
verður þar á, verð ég að hætta við þessa hugmynd mína.
Hristið nú af ykkur slenið, takið öll fram penna og látið
koma fram, hver sé uppálialdshljómsveitin ykkar eða
söngvari, en athugið það, að einungis íslenzkir aðilar
koma til greina. Sú mynd, sem flestir biðja um, verður
síðan birt ásamt upplýsingum um viðkomandi. Þegar lok-
ið verður að birta myndir af þeim liljómsveitum og
söngvurum, sem eitthvað kveður að, hlítur sú hljómsveit-
in, sem fær flest atkvæði titilinn VINSÆLASTA HLJÓM-
SVEITIN 1965 og hliðstæðan titil fær viðkomandi söngv-
ari. Það er rétt að taka það fram, að kosning þessi er
ALLS EKKI skorðuð við BEAT-hljómsveitir, þó að mér
sé ekki grunlaust um, að „beatistar“ munu skipa efstu
sætin. Um leið og þið stílið bréfið, má gjarnan fylgja
með gagnrýni á þennan þátt og verið ekkert feimin við
að láta ykkar skoðanir í ljós, því þær verða allar teknar
til athugunar. Utanáskriftin er: FÁLKINN — f SVIÐS-
LJÓSINU — BOX 1411. — Ég vona, að hinir fjölmörgu
* lesendur FÁLKANS bregðist fljótt o vel við og gerið
ofangrcinda hugmynd mína mögulega.
• Sammy Davis hefur stofnað sína eigin
hljómplötuútgáfu, sem ber heitið TRACY MUSIC.
Sammy hefur verið á samningi hjá REPRISE síð-
ustu árin, en þá hljómplötuútgáfu rekur hinn
kunni söngvari Frank Sinatra.
GÖTULJÓS
„Heiðraði Fálki!
Ég verð að skrifa þér, og
kvarta eins og öll hin, en hvað
um að, því ég tel, að ég hafi
ríka ástæðu til. Mig langar til
að koma kvörtunum á fram-
færi í sambandi við lögregluna
og hennar starf, sem er að
mörgu leyti fyrir neðan allar
hellur. Þó ætla ég ekki að fara
út í aðra sálma en þá, hversu
vægt er tekið á því hvimleiða
broti, að virða ekki umferðar-
ljósin fullkomlega. Hér á iandi
er það svo, að allur þorri
manna lætur sem þau séu ekki
til, og hugsar um það eitt, að
lenda helzt ekki í slysi, þegar
út á götu er haldið. Þetta á þó
nærri eingöngu við um gang-
andi fólk, og er það betur. En
hvar sem er annars staðar í
heiminum liggur við þessu stór
sekt, enda hafa landarnir oft
brennt sig á þessu í öðrum lönd-
um.
Nú höfum við komið okkur
upp lögreglu, og fyrir mitt leyti
hef ég haldið, að hún sé til
þess að halda uppi lögum og
reglum í landinu. En með svona
nokkrum amlóðaskap í starfi
missir hún vissulega respekt,
og er ekki seinna vænna að
reyna að krækja i hana aftur.
Við broti sem þessu ætti að
vera sekt, helzt stór sekt, því
þótt þetta sé ef til vill ekki
mjög mikilvægt þá leiða önn-
ur stærri í kjölfarið, og kemur
til með að segja, hvar þetta
endar? En, sem sagt, þetta get-
ur enginn lagað nema lögregl-
an, svo hennar er verkefnið.
Eg.“
Svar: Innilega sammála.
SAIUBAIXID
„Fálki minn!
Mig langar til þess að fá að
vita hjá þér, hvernig maður á
að koma sér í samband við
stráka, sem hafa áhuga á þvi
að stofna hljómsveit. Ég er 14
ára, og leik á trommur. Ég hef
gaman af bítmúsík, hef hárið
og er því alveg tilbúinn, — mig
vantar sem sé ekkert nema 3
—4 áhugasama stráka í viðbót.
Á ég að auglýsa i blöðunum,
eða er kannski til einhver hér
í Reykjavik, sem kemur manni
í samband við hljóðfæraleikara.
Ég vona að þið svarið mér
fljótt, og séuð ekki með neina
útúrsnúninga."
Svar: Það er ýmislegt til í
þessu fyrir þig. Þú getur reynt
að hafa samband við Pétur
rakara, kannski getur hann
hjálpað þér. Þú getur svo sem
reynt að auglýsa, en bæði kost-
ar það peninga og svo er ekl i
líklegt að þú náir árangri
þannig. Ef að tilraunir þínar
bera ekki árangur, þá skaltu
hafa samband við okkur. „Þið
og við“ gætu ef til vill hjálpað
þér.
LÉLEG ÞJÓNLSTA
„Kæri Fálki!
Það er ekki ofsögum sagt,
Þegar talað er um slæma þjón-
ustu ýmissa fyrirtækja hér í
bænum við viðskiptavini sína.
Ég hef eina slíka sögu að segja
þér, og vertu ekki hissa, þótt
ég taki djúpt í árinni, því ég
er fokreiður.
Við hjónin fórum í Háskóla-
bíó um daginn til þess að sjá
góða, enska kvikmynd. Við
komum rétt fyrir níu, en það
var traffík við miðasöluskúr-
inn, svo að klukkan var orðin
fjórar mínútur yfir, þegar við
loksins komumst inn. Við feng-
um miða í betri sæti, en inni
var okkur tilkynnt, að því mið-
ur væru ekki til sæti nema á
fyrsta bekk niðri eða á laus-
um stólum. Þeir, sem hafa
reynt þetta, eru ekki sérlega
hrifnir af, enda fór svo, að við
gengum út og látum það gott
heita.
En er ekki kominn tími til
fyrir Háskólabíó að reyna að
tölusetja þessi sæti sín, eða að
minnsta kosti selja ekki fleir-
um inn en þangað komast með
góðu móti. Það er staðreynd,
að ástandið er nær alltaf svona
þegar Háskólabíó fyllist, og
stúlkurnar, sem vísa til sætis
eru alls ekki öfundsverðar af
skömmunum, sem á þeim dynja
frá reiðum samborgurum.
Lausnin á þessum ósköpum
hlýtur að vera auðveld. Ef sæt-
in verða tölusett, þá ætti þetta
ekki að koma fyrir, og menn
þurfa þá ekki að reiðast Frið-
finni að ástæðulausu, og ennþá
síður litlu stúlkunum hans, sem
vísa til sætis.
Borgar t."
Svar: Við vonum, að Frið-
finnur sjái þetta bréf, og svo
skulum við sjá, hvað hann ger-
ir í málinu.
AKRANESI, 15. júli. — Tvibura
bræðurnir Hannes og Adolt Ein
arssynir, sem búa i Eystri-Leir-
érgörðum í Leirársveit, eru að
byggja 40 kúa fjós. Fjósblaðan
og súrheysturninn voru byggð
i íyrra.
— Oddur.
n/r —. - 1. I .. A J A G nn rl • I? 1*
Notað klósett
í góðu standi til sölu. —
Simi 1-42-93.
Morgunblaðið.
Send.: Snorri Skaptason.
27
rÁLMNN