Fálkinn - 09.08.1965, Síða 36
ERU ÞEIR EIMS OG ÞEIR LÍTA ÚT FYRIR AÐ VERA?
mm
Ef við segðum við ungan mann, að hann
væri mjög óvenjulega heimskur, þá yrði hann
að öllum líkindum ákaflega móðgaður.
En það er bítlahljómsveit úti í heimi, og við
gætum glatt þá ósegjanlega með því að segja
þeim okkar álit á þeim: — Þið hljótið að
vera óvenjulega vitgrannir ungir menn.
Það vilja þeir sýnast. Þeir sögðu eitt sinn
blaðamanni nokkrum erlendum, að þeir byggðu
i fjalli í miðri London. Það birtist.
Annað sinn sögðu þeir blaðamanni, að einn
þeirra væri Júgóslavi, og þegar sá hafði talað
júgóslavnesku í 20 mínútur en annar túlkað
Hann vildi láta klippa sig, og nota
þá hárkollu á senunni, en félagar
hans komu vitinu fyrir hann! Stutt-
klipptur Kink, þeir gátu ekki
hugsað sér það.
The Kinks klæðast mjög óvenju-
legum fatnaði, rauðum jökkum,
svörtum blúnduskyrtum og svört-
um silkiskyrtum. Hljómsveitin var
stofnuð í desember 1963 af þeim
bræðrum, sem byrjuðu snemma að
leika á gítara. Þeir léku oft fyrir
foreldra sína, en stundum á veit-
ingahúsum í nágrenninu. Síðar
kynntust þeir hinum tveimur, Mick
Framh. á bls. 42.
jafnóðum, var blaðamaðurinn sannfærður.
„Júgóslavinn“ kunni ekki orð í júgóslavnesku.
En þegar þeir ræða um tónlist sína eru þeir
alvarlegri. Þeir álíta sig mikla hæfileikamenn,
og gagnrýna sjálfa sig óspart. Þeir voru
óánægðir með fyrstu plötuupptökuna, þótt
þær plötur yrðu feykivinsælar. Svo hófu
þeir að leika „blues“, og þeir urðu fyrst
ánægðir, þegar „You Really Got Me“ kom út.
Og hún sló í gegn.
Þeir kalla sig „The Kinks“.
Dave Davis, yngsti meðlimur hljómsveitar-
innar sagðist hafa sagt við sjálfan sig, þegar
liann heyrði upptökupna: — Ef þetta gengur
ekki, þá getum við ekki meir. Svo komu
fleiri metsölulög, „AU Day And All of The
Night“ og „Tired Of Waiting For You“, en
það lag samdi Ray, eldri bróðir Dave og hljóm-
sveitarstjórinn fyrir tveimur árum. Hann
söng það á segulband fyrir systur sína, og
síðan gleymdist það, þangað til hann mundi
eftir laginu og endursamdi það. Síðan fékk
hann upptökuna frá systur sinni, sem var flutt
til Ástralíu, og hún reyndist nærri eins.
Ray er giftur þjóðlagasöngkonu, en það tók
hann tvö ár að fá að giftast henni. Ástæðan:
Pabbi hennar neitaði henni að giftast honum,
nema því aðeins að hann léti klippa sig.
FALKINN