Fálkinn - 30.08.1965, Page 8
IIVAJB KO$TAR FEOIIKBIA' ?
DÝR OG ÖDÝR FEGURÐ
SAMKVÆMT þeirri verðskrá, sem fyrr er getið, yfir
snyrtivörur almennt og úrskurði snyrtisérfræðingsins
varðandi það, hvað nauðsynlegt er hverri konu, sem vill
,,halda sér sæmilega til“, kostar dýr fegurð um það bil
6912 kr. (þá eru eingöngu keyptar dýrar snyrtivörur) en
ódýr fegurð um það bil 1047 kr. — en þá er það ódýrasta
látið nægja.
Þessar tölur eru að sjálfsögðu ekki endanlegar tölulegar
staðreyndir, heldur meira til gamans, — því að eins og
fyrr er frá greint, er á einskis manns færi að reikna feg-
urðina út né kostnað, sem í hana fer, því að hver og ein
kona er undantekning, — og kaupir eftir sínu höfði. T. d.
er mjög líklegt, að þær konur. sem kaupa sér jafnan dýr-
ustu snyrtivörurnar. sem eru á markaðinum, láti sér ekki
nægja bara það „nauðsynlegasta", heldur eiga þær ótal-
margt fleira sér til fegurðarauka, sem telja mætti til mun-
aðarvöru, og mun þá kostnaðurinn fljótt fara langt fram
yfir þær 6912 krónur, sem hér um ræðir. — í þessum
niðurstöðutölum er ekki heldur gert ráð fyrir kostnaði
við hárlagningu og hársnyrtingu almennt, — né heldur
andlits- fóta- eða handsnyrtingu á snyrtistofum, — en það
er að sjálfsögðu mjög mismunandi. í hve miklum mæli
konur sækja slíka þjónustu af bæ. — Síðast en ekki sizt
er þess að geta, að fegurðarlyfin endast ekki endalaust,
hvort heldur þau eru í dýrum eða ódýrum flokki. Þetta
þarfnast sifelldrar endurnýjunar og er á einskis manns
færi, að segja til um „meðaleyðslu“ nema efnt sé til víð-
tækra rannsókna, — en að þeim loknum mætti ugglaust
skrifa um þetta mál margar og þykkar bækur.
Og samt væri naumast öll sagan sögð. — Því að snyrti-
sérfræðingurinn sagði að lokum: „Taktu það fram, að það
sé ekki unnt að gefa neinar algildar reglur um fegrun
kvenna. Það, sem mestu máli skiptir fyrir hverja konu
er að finna þá fegurð, sem hún sjálf býr yfir. Það er hlut-
verk snyrtisérfræðingsins að hjálpa henni við að undir-
strika fegurðina en fela gallana. Allar konur eru nefnilega
fallegar á einhvern hátt.“
HVAÐ KOSTAR FEGURÐIN, —
SPYRJA ÞEIR Á FÁLKANUM?
EN er kvenlega fegurð yfirleitt að finna í dósum? — Það
er kannski varla nema von, að ég spyrji, þegar svona
margar bráðfallegar konur fá fegurðina óinnpakkaða í
vöggugjöf og virðast varðveita hana hjálparlaust fram i
rauðan dauðann. — Er nema von, að maður spyrji, þegar
læknar láta hafa það eftir sér, að þetta sé bara eintómt
grín, og að það sé alls ekki hægt að fæða húðina utan frá né
bera utan á sig hormóna til nokkurs gagns.
En það skiptir kannski ekki öllu máli, því að það er
svo skelfing gaman að þessu öllu saman, svo mikil huggun
í þeirri trú, að það sé hægt að leika á ellina og kaupa
sér æsku og fegurð í krukkum.
Kannski er von, að karlmennirnir spyrji þessarar spurn-
ingar í þeirri trú að þeir borgi brúsann og hafi þannig
ekkert nema skaðann upp úr öllu saman. Samt kunna þeir
að snúa sig úr hálsliðnum við að horfa á eftir stífmálaðri
draumadís með kúrfur, sem hún hefur útvegað sér með
hjólreiðum inni hjá sér, megrunarkúr og alls kyns æfing-
um. Kannski er andlit hennar meira eða minna úr dós-
um, og ilmurinn, sem geymist lengi í vitum manns er
alls ekki af henni sjálfri heldur úr flösku á náttborðinu
hennar. En hverju skiptir það? Seinna er kannski of seint
að iðrast.
Seinna er kannski líka eitthvað annað, sem skiptir, þrátt
fyrir allt meira máli, — en þótt hún legði út þetta net til að
veiða vindinn?
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir.
9
8
FÁLKINN