Fálkinn - 30.08.1965, Qupperneq 9
ISLENZK
MYNDABÓK
Undanfarið hafa verið gefnar út
margar myndabækur um ísland, og
hafa erlendir ljósmyndarar átt bróður-
partinn af myndunum enda hafa kom-
ið hingað margir ágætir erlendir ljós-
myndarar.
Nýlega gaf Hjálmar Bárðarson, skipa-
verkfræðingur, út myndabókina ísland,
sem er skreytt hátt á þriðja hundrað
myndum og eru 50 af þeim litmyndir.
Texti er á sex tungumálum. Hjálmar
hefur áður gefið út myndabókina ísland
farsældar frón, árið 1953, og var hún
endurprentuð ári síðar. Auk þess hefur
hann þýtt og staðfært Ljósmyndabókina,
sem Setberg gaf út fyrir nokkru.
Hjálmar R. Bárðarson hefur fengizt
við ljósmyndatöku um margra ára skeið.
Meðan hann dvaldizt við nám í Dan-
mörku skrifaði hann bók um þá grein
ljósmyndunar sem nefnd er „Table
top“ og hélt fyrirlestra í dönskum ljós-
myndaklúbbum. Skömmu eftir stríðs-
lok tók hann fslandskvikmynd, 16 mm,
sem hefur verið sýnd víða í Danmörku.
Hjálmar hefur unnið að þessari bók
síðastliðin 10 ár og eru myndirnar fyrst
og fremst valdar með það fyrir aug-
um að kynna landið. Myndirnar eru
flestar teknar á 6x6 myndavélar, Rollei-
flex og Practisix, og filmutegundirnar
eru einkum Kodak Panatomic fyrir
svart-hvitt og Kodak Ektachrome og
Perutz fyrir litmyndir.
Bókin er prentuð í Hollandi og kost-
ar kr. 494,50 með söluskatti.
Hér til hliðar er ein myndanna í bók-
inni og vonumst við til að prentunin
verði sæmileg.
- — .
NÝ H1ÍSGAGMVERZLUN
HELGI EINARSSON húsgagnasmiður
opnaði nýlega húsgagnaverzlun að
Laugavegi 168 og eru þar aðallega á
boðstólum borðstofu- og skrifstofuhús-
gögn.
Helgi er kunnur fyrir smíði á mjög
vönduðum húsgögnum, enda segist hann
ekki nota annað en dýrasta spón sem
völ er á hverju sinni, en spónninn er
ýmist fluttur inn frá Danmörku, Þýzka-
landi og Frakklandi. Flest húsgögnin
eru smíðuð úr tekki.
Athyglisvert er borðstofusett, sem
Sigvaldi Thordarson heitinn teiknaði
sérstaklega fyrir Helga, og er það til
sýnis í verzluninni og hefur reyndar
verið á markaðnum undanfarin tvö ár.
Helgi sagði, að Sigvaldi hefði oft kom-
Framh. á bls. 42.