Fálkinn - 30.08.1965, Qupperneq 14
7 sumt
HÚN YNGIST
MEÐ ALDRINUM
Barnakennari spurði dreng, sem
var nýkominn í skólann, hvort hann
kynni Faðirvorið.
— Nei, svaraði drengurinn.
— Það er ljótt, drengur minn,
mælti kennarinn.
— Þetta vissi ég, þess vegna lærði
ég það ekki, svaraði strákur.
HIN 67 ára gamla hertogaynja
af Windsor er nær óþekkjan-
leg eftir langa og erfiða andlits-
aðgerð, sem hún gekk undir nú
nýlega.
Hertoginn, maður hennar, sá
um að herbergið, þar sem aðgerð-
in fór fram, var eitt blómahaf,
og öllum stundum sat hann yfir
sjúkrabeði konu sinnar, og las
fyrir hana ljóð. en þau hjónin eru
mjög ljóðelsk.
Þegar læknarnir útskrifuðu her-
togaynjuna, er sagt að hún hafi
litið út, eins og fyrir 28 árum. ..
en það var um það leyti, sem Ját-
varður VIII hitti hina amerísku
blómarós, giftist henni, og fyrir-
gerði þar með rétti sínum til
konungserfða á Englandi.
Hertogaynjan á æskuskeiði
... og svo rétt fyrir aðgerðina.
SVONA ER LIFIÐ
Sonur byggingameistarans var bráð-
um fimm ára, og móðir hans spurði
hann, hvers hann óskaði sér á afmælis-
daginn.
— Lítinn bróður eða systur.
Móðir hans sagði honum þá, að það
væri ekki hægt, hann ætti afmæli eftir
viku.
— Þú átt að gera eins og pabbi ger-
ir, mamma mín, sagði sonurinn þá ein-
lægur. — Þegar byggingarnar ganga
erfiðlega, þá fær hann bara fleiri menn
í vinnu.
★ ★ ★
Ástfangið par sat í bíl á hliðargötu,
en varð fljótt leitt á ljósunum frá bíl-
um á aðalgötunni, svo það skreið undir
bílinn til þess að fá að vera í friði. En
eftir nokkurn tíma var maðurinn trufl-
aður af lögregluþjóni.
— Hvað er um að vera? spurði lög-
regluþjónninn.
— Ég. — ég er að gera við bílinn
minn.
— Lygi, svaraði lögregluþjónninn —
í fyrsta lagi snúið þér öfugt til þess, í
öðru lagi standa hér þrjátíu manns og
horfa á yður og i þriðja lagi var bíln-
um stolið fyrir hálftíma.
TÍZKUHEIMURI^
grípur oft niðri á hinum furðulegustu
stöðum. Það nýjasta, sem hefur snert
útlit á kápum minnir helzt á hina furðu-
legu búninga, sem hermenn kommún-
ista notuðu í Kóreustríðinu! — Við
höfum notfært okkur hagkvæmni þeirra,
sem heyja stríð, sagði Norman Zeiler,
einn af frægustu tizkufrömuðum Ame-
riku, — og er ekki sjálfsagt að nota
sér hagkvæmni skæruliða, sem þurfa
að bjarga sér fullkomlega sjálfir?
Útlit þeirra kápa, sem Zeiler fram-
leiðir svo og annarra kápuframleið-
enda, miðast oft við aðstæður þær, sem
ríkjandi eru á hverjum stað. Þannig
var búningur skæruliðanna hentugur,
vegna þess. að hann er léttur og hlýr,
og þolir hvers konar veður, og í miklum
rigningum er hann miklu þægilegri en
hinar venjulegu regnkápur. Hvað útlitið
snertir, segja framleiðendur, að kápurn-
ar þurfi eingöngu að uppfylla þau skil-
yrði, að vera snyrtilegar. Hvað út-
breiðslu snertir hafa auglýsingar lang-
mesta þýðingu, t. d. hafði það mikla
þýðingu, þegar Joan Kennedy, kona
öldungadeildarþingmannsins frá Massa-
chusetts, keypti sér eina af hermanna-
tegundinni.
14
FALKINN