Fálkinn - 20.09.1965, Side 36
I SVIÐSLJOSINIJ * ■* *
BENEDIKT VIGGÓSSOINi SKRIFAR FYRIR UNGA FÓLKIÐ
SIOASTA TÆIilTÆKII TIL AÐ SEIMDA
ATBiVÆÐI
íslenzku hljðmsveitar- og söngvarakosningarnar eru
enn í fullum gangi og mörg bréf hafa borizt þættinum.
Eins og þið vitið, þá eru nú síðustu möguleikar að senda
atkvæði, því þau verða talin saman eftir 1. OKTÓBER
og úrslitin birt eins fljótt og mögulegt er. Tíu vinsæl-
ustu hljómsveitirnar verða síðan kynntar í Fálkanum.
Hér á eftir koma glefsur úr tveim bréfum. Hin mörgu,
sem ekki hafa verið bii’t, verða afgreidd síðar a. m. k.
megnið af þeim. Þá gef ég Þórdísi Alfreðsdóttur orðið:
. .. Mér finnst gaman að þættinum í SVIÐSLJÓSINU.
En það mætti gjarnan birta texta við lagið ,,Ertu með“,
ásamt viðtali við HLJÓMA ..
Eins og áður hefur komið fram, mun þátturinn ekki
fara út í það að birta dægurlagatexta. Hvað viðtalinu
við Hljóma viðkemur, þá eru allar líkur til að sú von
þín rætist.
... Eg las það í Fálkanum að það væi'i komin í
framkvæmd skoðanakönnun um það, hver væri vin-
sælasta íslenzka hljómsveitin og söngvarinn. Ég er viss
um, að þetta verður vinsælt hjá þér, en það hefðu mátt
vera erlendar líka. Nú, jæja, mín uppáhaldshljómsveit
af þeim innlendu eru Tónar. Að lokum langar mig að
biðja þig um að birta grein og myndir af brezku hljóm-
sveitinni Herman’s Hermits.
P.S.: Geturðu sagt mér, hver er utanáskriftin til óska-
lagaþáttar útvarpsins.
Þakka allt gott.
16 ára síldarskvísa...
TIL ISLAIMDS ?
„Runaway“, hið gamalkunna
lag með Del Shannon seldist i
tæpum þrem milljónum eintaka
og komst á toppinn í Bretlandi,
Bandajríkjunum, Japan o. fl. lönd-
um. Þetta lag var einnig mjög
vinsælt hér á sínum tíma. Myndin
sýnir Del Shannon, þar sem hann
hefur gallað sig upp með íslands-
ferð fyrir augum. Nei, annars,
þetta var bara mín óskhyggja, það
líða sennilega ár og dagar áður
en við fáum að sjá þennan ágæta
söngvara á íslenzku sviði. Hvernig
fór ekki með Bill Haley og nú
síðast Rolling Stones.
•
e
o
•
o
DAGIiO HÆED BITLEIIMUIVI
Ég sagði frá því nýlega í þessum þætti, að
Bandaríkjunum hefði verið svo heppin að hitta
Rolling Stones. Nú get ég sagt ykkur frá öðr
atburði, en hann er á þá leið, að 15
ára dönsk stúlka Linda B. Hansen
hreppti hið glæsilega boð B. E. A.
flugfélagsins og United Artist kvik-
myndafélagsins um að fá að dveljast
einn dag í London og svo koma tvö
orð, sem fáir geta sett aftan við
sína Englandsferð: MEÐ BÍTLUNUM.
Þessi dagur var sem ævintýri fyrir
dönsku hnátuna, m. a. fékk hún að
vera viðstödd kvikmyndun á loka-
stríðinu í nýju Bítlamyndinni Hjálp.
Þegar Linda var spurð að því, hvort
að hún myndi vilja verða frú Beatles nr. 3, svaraði
lítil stúlka í
að máli sjálfa
um svipuðum
sú danska rólega: „Ég hefði ekkert á móti því og
þá yrði George sennilega fyrir valinu. Ég kann bezt
við hann.“
-K
FJORIR PLÚS TVEIR
Unit 4 -)- 2 heitir vinsæl hljómsvéit í Bretlandi. Eitt sinn sem oftar
komu þeir saman í stúdíóinu, þar sem fyrirhuguð hljómplötuupptaka átti að
fara fram. Nú fór hiver um sig að huga að sínu hljóðfæri og þá kom það í
Ijós að trommuleikaranum Hugh Holliday, hafði láðst að taka með sér trommu-
kjuðana. Hvað átti til bragðs að taka? Trommuleikarinn óvirkur og upptakan
átti að fara fram innan nokkurra mínútna. En allt fór þetta vel að lokum,
því piltunum datt í hug að líta inn 1 næsta stúdíó, en þar voi’u Searchers að
æfa af kappi, og þegar 4 + 2 stundu upp erindinu, þá brást trommuleikari
Searchers, Chris Curtis vel við og lánaði Hugh trommukjuðana.
Unit 4 + 2 hafa leikið tvö lög inn á hljómplötu sem hefur náð miklum
vinsældum: „Concrete and clay“ og „You’ve never been in love like this before“.
38
FALKINN