Stúdentablaðið - 01.03.2000, Qupperneq 14
Betra umhverfi
betri skóli
Sidbúin stefna
umbótasinnans
Friójóns Helga-
sonar, formanns
Röku. íslensku-
nema og áhuga-
manns um fugla-
skoðun:
Friðjón Helgason er einn þeirra stúd-
enta sem lætur ekki mikið yfir sér og
eru þeir eflaust fáir sem minnast þess
að hafa séð Friðjón innan veggja HI.
Kannski er það ástæðan fyrir því að Frið-
jón var mánuði of seinn að tilkynna
ffamboð sitt til Stúdentaráðs.
„Ólíkt öðrum fylkingum sem boðið hafa
fram hér við HÍ legg ég megináherslu á al-
vöru velferð stúdenta. Aherslur mínar eru á
hið hversdagslega og mikilvæga í daglegu lífi
stúdenta. Ég birti hér stefnu Röku.
Veðrið
Veðrið er nokkuð sem sífellt er til trafala fyr-
ir stúdenta. Ásamt öryrkjum, börnum og
eldra fólki þurfa stúdentar að þvæiast um
bæinn þveran og endilangan í strætisvögn-
um sem eru ferðamáti í menningarborg en
alls ekki í Reykjavík.
Til að bæta hag stúdenta vegna veðursins
er ég með nokkrar tillögur.
Áfrýjunarnefnd veðurmála
Hafi stúdent eitthvað út á veðrið að setja
eru honum í dag allar bjargir bannaðar.
Hann verður að þvælast af stað í skólann
hvernig sem viðrar. Með því að koma á fót
áfrýjunarnefnd veðurmála er komið til móts
við stúdenta hvað varðar veðurfar. Nefndin
yrði skipuð fimm mönnum, Veðurstofu-
stjóra, fulltrúa stjórnsýslu Háskóla íslands
og þremur fúlltrúum stúdenta (tveimur úr
Röku og einum úr hinum fylkingunum
tveimur (þeirra vandamál)).
Veðurfarslegur jöfnunarsjóður
Ég er eins og margir stúdentar ættaður að
norðan þar sem ríkir ævarandi góðviðri allan
ársins hring. Hér í höfbðborginni er drullu-
veður alla daga ársins og hending ef sólin sér
niður fyrir skýjasoppuna. Hér er ýmist míg-
andi rigning eða nístandi frost með tilheyr-
andi stormi og úrkomu.
Eina ráðið er að stofna veðurfarslegan
jöfhunarsjóð. Eins og skilja má af heiti
sjóðsins er hann til þess fallinn að jafna veðr-
inu út. í sjóðsstjórn sitja þrír, Veðurstofú-
stjóri og tveir stúdentar, annar skipaður af
Röku en hinn af hinum fylkingunum tveim-
ur.
Veðurfræðinám við HÍ
Raunvísindadeild taki upp náið samstarf við
heimspekideild um kennslu veðurfræðinga.
Eins og málum er háttað eru veðurfræðing-
ar menntaðir í öðrum löndum. I’að er aug-
ljóst að slíkt gengur ekki upp og kemur nið-
ur á veðrinu. íslenska veðrið hefúr augljósa
sérstöðu miðað við önnur veður og fárán-
legt að kenna ekki veðurfræði í mesta veðra-
víti alheimsins. Það væri alveg eins hægt að
kenna íslensku í Póllandi eða almenn mann-
réttindi í Kína.
Samgöngur
Samgöngur eru nokkuð sem skiptir alla
stúdenta máli. Ég ferðast mikið með strætis-
vögnum sjálfúr og veit helstu galla leiðakerf-
anna og vagnanna sjálffa.
Hraðskreiðari vagna og skrækari bílstjóra
Strætisvagnar eru jafnhraðskreiðir og
Grundarar. I’að þarf að stokka upp inn-
kaupakerfi borgarinnar og kaupa almenni-
lega vagna. Ekkert vetnisrugl, ffekar helíum
svo bílstjórarnir verði fyndnari þegar þeir
bjóða góðan daginn.
Þægilegri sæti
Sætin í strætó eru óþægileg og alls ekki gerð
fyrir fólk með gyllinæð. Pað er ekki hægt að
bjóða fólki upp á gyllinæð að ferðast með
strætó og því skilst mér að það taki miklu
fremur leigubíla. Pað eru sjaldnast svo
margir í strætó að vagnarnir séu fúllir og því
ekki úr vegi að koma fyrir leðursófasettum
og kannski bar.
Hressari vagnsstjóra
Strætisvagnastjórar eiga að vera svona
hemmagunntýpur - ekki þessar köldu þöglu
týpur sem mættd kenna við Boga Ágústsson.
Og talandi um Boga...
Betri fréttir
Og þá ekki endilega betri fréttamenn og
fféttatíma, þeir eru ágætir. Mildu fremur
þarf að byrja þar sem meinið er: Góðar frétt-
ir gerast mun sjaldnar en þær vondu.
Skamm vondu fréttir!
Betri einkunnir
Ekki þýðir að tala endalaust um betri
kennsluhætti. Það er ekki vandamál stúd-
enta. Einkunnirnar eru vandamálið og þær
verður að hækka. Hærri einkunnir þýðir
betri atvinnumöguleika fyrir stúdenta og
bætta ásjónu HÍ á erlendum vettvangi. Strax
myndi bæta ástandið ef kennarar gæfú
greinarbetri upplýsingar við próftöku eða
deildu í einkunnir með þremur og marg-
földuðu síðan með fjórum.
Styttri námstíma
Það er engum til góðs að hanga inni í skóla
í mörg ár. Hægt er að stytta mjög skólaárið
með einföldum aðgerðum. Samkvæmt al-
þjóðlegum stöðlum verður BA-próf víst að
vera með 90 einingar að baki. Það er þó
ekkert því til fyrirstöðu að láta hvert nám-
skeið gilda meira. Fimm eininga námskeið-
um mætti breyta í 10 eða 15 eininga nám-
skeið - því fleiri - því sneggri - því betri.
í deildum þeim sem ekki hafa einingakerf-
ið er engin ástæða til að hafa námið svona
langt.
Minna nám - meiri peningar
Vinsælt er að tala um fjársvelti Háskólans.
Til að leysa það vandamál vilja flestir fá meiri
peninga úr ríkissjóði. Ég tel að þessi vanda-
mál væri hægt að leysa án ffekara framlags
ríkisins. Það er augljóst að hægt er að spara
í dýrum deildum eins og tannlæknadeild
með samstarfi við Iðnskólann í Reykjavík.
Sama gildir um Verkffæðideild.
í stað guðffæðikennslu væri nær að fólk
sækti kirkju reglulega. Inn í jarðfræðinám
væri hægt að meta störf Vinnuskóla Reykja-
víkur. Og að lokum: Hver kann ekki ís-
lensku?
Skemmtilegri háskóla
Oft vilja fylkingarnar að Háskólinn sé
skemmtilegri. Ekki hafa komið fram neinar
færar leiðir í þá átt ffá fyrri öflum hér við HÍ,
nema þá kannski ffá Haka. í mínum huga er
leiðin aðeins ein og er hún greið: Vínveit-
ingar í kaffistofúm FS.
Ég er aldrei skemmtilegri en þegar ég er
kominn vel í glas og veit ég að það er einnig
reynsla fleiri stúdenta. Almennt fyllirí gerir
h'fið skemmtilegra.
Niður úr tuminum
Margir vilja halda því ffam að Háskóli ís-
lands sé filabeinsturn og þeir sem þar kenna
og stunda nám séu ekki í nægilega miklum
tengslum við þjóðlífið. Þótt ég telji að þetta
sé orðum aukið er ég á því að við mættum
nýta krafta alþýðunnar í meira mæli en gert
er. Gott væri að fá gestakennara inn í deild-
ir Háskólans. Dæmi um það væru:
• í efnaffæði væri tilvalið að fá Franklin
Steiner sem hefúr umfangsmikla rcynslu af
allskonar efnum. Hann gxti einnig haldið
einstaka fyrirlestra í Lagadeild.
• í bókmenntaffæði gæti Birgitta H.
Halldórsdóttir haldið fyrirlestra um hvernig
á ekki að skrifa bækur.
• í viðskiptafræði gæti Kristinn Sigtryggs-
son haldið magnaða fyrirlestra um fyrir-
tækjarekstur.
... og svo mætti lengi telja.
Inniskór
Inniskó handa öllum stúdentum.
Þar sem ég var of seinn að skila inn lista
fyrir kosningar til Stúdenta- og Háskólaráðs
bið ég stúdcnta að hafa þau gildi scm ég
stend fyrir í huga næst þegar þeir ganga að
kjörborði. Ég verð hins vegar útskrifaður
þegar næst verður kosið í Háskólanum.
Lifið heil!“
Friöjón Hetgason
14 stúdentablaðið - mars ‘00