Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 16

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 16
Háskólinn er gríðarlega þýðingarmikil stofnun við Háskóla íslands. Hörður segir að mikla áherslu eigi að leggja á að hafa alla kennslu í Háskólanum mjög öfluga. „Mér finnst eðlileg sú þróun að taka upp mastersnám eins og gert er við margar greinar hér við skólann. Ég er sannfærður um að það sé rétt þróun. Ég er líka þeirrar skoðunar að ákveðinn hluti þeirra sem stunda mastersnám fái nám erlendis eða eigi að hluta til kost á því að dvelja erlendis og kynnast framandi skólum. Þá er ég ekki bara að tala um það sem menn fá út úr háskólan- um sjálfixm heldur það að menn læri að búa erlendis og sjái að heimurinn er fjölbreyttari en hann er ef aðeins er horft á hann héðan af Melunum.“ Á kafi í féiagsmálunum Félagsmálin voru mjög stór þáttur á náms- árum Harðar. Hann varð fljótlega eftir að hann hóf nám utanríkisritari Stúdentaráðs. Hann varð einnig fyrsti launaði stárfsmaður Stúdentaráðs árið 1959, í formannstíð Árna Grétars Finnssonar. Starfið, sem var starf framkvæmdastjóra, var hálfsdags starf og fólst í því að reka almenna hagsmunabaráttu auk þess að sjá um Bóksölu stúdenta. Áður hafði rekstur Bóksölunnar verið í höndum aðstoðarháskólaritara. Á næstu árum var Hörður formaður Stúdentaráðs auk þess sem hann sá um hót- elrekstur á Nýja Garði og Gamla Garði í þrjú sumur. „Eftir að hafa eytt miklum tíma í félags- mál fannst mér ástæða til að leita út fyrir landsteinana eftir meiri menntun þótt ég hefði lokið prófi með þokkalega viðunandi árangri. Mér gafst kostur á Fulbright styrk til náms í Bandaríkjunum og fór í MBA nám í Warton School í University of Pensylvania í Fíladelfiu.“ Hörður segir að erfitt hafi verið að bera þessa tvo skóla saman. „Það þurfti mikla vinnu og hörku til að komast í gegnum námið í Bandaríkjunum eftir að hafa verið í „huggulegheitunum“ heima á íslandi.“ „Varðhundar Háskólans" í fyrra vakti umfjöllun Stúdentablaðsins um nýtt Háskólaráð og þjóðlífsfulltrúana mikla athygli. Ekki var það síst myndskreytingin með höfði menntamálaráðherra á hundsbúk og yfirskriftin Varðhundar Háskólans sem vakti deilur. „I’essi grein hefiir alveg farið fram hjá mér. Það sitja tíu í ráðinu og þar hefur Rekt- or mikið vægi. Þessir tveir aðilar sem koma utan að eru þjóðlífsfulltrúar en ekki atvinnu- lífsfulltrúar eins og stundum er sagt. Ég vænti þess að hlutverk okkar sé að koma með aðra sýn inn í Háskólaráð. Við höfiim engin sérstök fyrirmæli og gefum ekki skýrslu til menntamálaráðuneytisins. Við berum ábyrgð, eins og ráðið í heild, gagn- vart menntamálaráðuneytinu og ríkisendur- skoðun. Það truflar mig ekki að vera kallaður varð- hundur eins eða neins. Mér finnst þetta mjög áhugavert verkefni. Háskólinn er mjög þýðingarmikil stofnun og ekki ólík fyr- irtæki. Viðfangsefnið er að skilgreina hlut- verk, marka stefnu og leiða út áherslur og fylgja því eftir.“ Síðustu ár hefur Háskólinn verið gagn- rýndur fyrir að vera ekki í nægu sambandi við þjóðlífið og stundum verið kallaður „fílabeinsturn fræðanna“. Hörður tekur undir þessa gagnrýni. „Mér hefur oft þótt hann vera langt í burtu frá samfélaginu og atvinnulífinu. Ekki það að hann hafi ekki gert góða hluti held- ur tel ég að hann hefði getað gert margt fleira. Ég held að Háskólinn hefði betur komið til skila hve miklu máli hann skiptir. Ég held að það sé að gerast núna. Öll þekk- ing og menntun skiptir vaxandi máli og þá kemur það af sjálfu sér. Háskólinn getur þó gert betur og kannski miklu betur. Það skiptir máli fyrir velvilja umhverfisins og þá líka velvilja skattgreiðenda sem borga brús- ann.“ Hörður segir að fjárhagsleg ábyrgð Há- skólans sé meiri nú en áður þar sem hann stýri því sjálfur hvernig fjármunum þeim er varið sem hann fær ffá ríkinu. „Það er mjög mikilvægt að þessir pening- ar séu notaðir í samræmi við það sem skipt- ir miklu máli fyrir samfélagið, Háskólann og fólkið í honum. Menn segja í umræðum að það sé sitt hvort, Háskóli íslands og Háskólinn í Singapúr: í Singapúr séu þrír stúdentar um hverja tölvu en hér séu þeir þrjátíu. Nú get- ur Háskóli íslands ráðið því sjálfur að ein- hverju marki hve margir stúdentar séu um hverja tölvu. Ef þetta er áhersluatriðið þá er eðlilegt að flytja fjármagnið til tölvukaupa. Ég er sannfærður um að eitt af því sem Háskólinn leggur ekki nægilega áherslu á er upplýsingatækni. Breytingar þar eru svo óskaplega hraðar. Háskólinn hefur verið brautryðjandi á því sviði með því að opna Netið fyrir íslandi. Ég held að meiri íjár- munum þurfi að verja í þessa þróun. Há- skólinn þarf að gera betur og getur það.“ Skólagjöid Háskólinn og Endurmenntunarstofnun hafa kynnt áform um að bjóða upp á MBA nám sem á að kosta á bilinu 1,2-1,4 milljónir Hörður Sigurgestsson hefiir um árabil verið með áhrifamestu mönnum í ís- lensku atvinnulífi en hann er forstjóri Eimskipafélags íslands og stjórnarformaður Flugleiða. í fyrra settist Hörður í nýtt Há- skólaráð sem annar tveggja þjóðlífsfulltrúa sem skipaðir voru af menntamálaráðherra samkvæmt nýjum lögum um Háskóla ís- lands. Hörður er ekki ókunnugur þessum slóð- um, sat sjálfur í Stúdentaráði og gegndi þar formennsku árin 1960-62. Miklar breytingar Hörður brautskráðist frá Viðskiptadeild árið 1966 ásamt tveimur öðrum nemendum. Ár- ið áður höfðu tveir brautskráðst frá deild- inni. Það eru því nokkuð breyttir tímar nú því að í haust voru nýnemar í viðskiptafræði um sexhundruð talsins. „Þessi skóli hefur breyst afskaplega mik- ið,“ segir Hörður. „Gerjunin var hafin þeg- ar ég var við nám og upplifði ég eitt breyt- ingatímabil og upphaf annars. Hið síðara kemur í kjölfar þess að Ármann Snævarr varð Háskólarektor. Hann var með mörg járn í eldinum. Stúdentar héldu upp á fimmtíu ára afmæli Háskólans 1961 og að mínu mati urðu þá mikil tímamót því að þá gekk í garð tímabil sem leiddi til stefnubreytingar í menntakerf- inu. Mikil áhersla var lögð á að fjölga þeim sem stunduðu háskólanám og alvöru ffarn- haldsnám.“ Verðum að forðast að verða heimskir Hörður gegndi embætti formanns Stúd- entaráðs óvenju lengi eða tvö ár. Ástæðan var sú að verið var að breyta tímabilum. Þá voru níu í Stúdentaráði en í dag eru stúd- entaráðsliðar 22. Þess má geta að þeim var fækkað umtalsvert fyrir nokkrum árum. Þetta er ekki eina breytingin sem orðið hef- ur á Háskólanum. „Á þessum árum var skólinn lítið og rót- gróið samfélag. Mikil áhersla var lögð á húmanísk fræði. Skólinn hefur gjörbreyst og er orðinn mun fjölbreyttari. Nú er hægt að bera Háskólann saman við háskóla í údönd- um sem sjálfsagt hefur ekki verið hægt á þeim tíma. Umhverfið er því allt annað nú. Háskólinn er gríðarlega þýðingarmikil stofnun fyrir samfélagið. Ég held að við eig- um háskóla sem eigi í fullu tré við hliðstæða háskóla í okkar helstu samanburðarlöndum. Við erum einnig þeir lukkunnar pamfilar að eiga tiltölulega auðvelt með það að Ieita til útlanda í nám og ffamhaldsnám sem ég tel að skipti afskaplega miklu máli. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að sjá hlutina í stærra samhengi og forða því að menn verði heimskir í upphaflegri merkingu þess orðs; að þeir sem heima sitji sjái ekki eins langt fram fyrir nefið á sér.“ Á undanfbrnum árum hefur verið lögð mikil áhersla á uppbyggingu framhaldsnáms 16 stúdentablaðið - mars ‘00

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.