Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 26

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 26
* Britney Spears -Bríet þeirra Bandaríkjamanna Frábærir hæfileikar eða frábær markaðs- setning? I’ctta eru spurningar sem vakna þegar rætt er um poppdívuna Britney Spears. Hvað sem sagt verður um Britney er ekki hægt að neita því að vinsæld- ir hennar eru óhemjumiklar. Stúdentablaðinu lék forvitni á að vita hver stúlkan á bakvið andlitið og persónuleikinn á bak við röddina er og gerði því út rit- nefndarfúlltrúa sinn í þeim tilgangi að leita svara við þessum spurningum. Byrjum á nokkrum grundvallarstaðreyndum um poppsöngkonuna sem heimurinn dáir og dýrkar- áður en lengra er haldið. „What Child Is This“ Britney Jean Spears fæddist 2. desember 1981 í Kentwood, sem er smábær í Louisi- ana. Hæfileikar hennar komu snemma í ljós því aðeins 4 ára að aldri kom stúlkan íyrst fram. Þá söng Britney, eða Brit eða jafnvel Bit Bit eins og hún er kölluð af vinum og vandamönnum, lagið „What Child Is This“ í heimakirkju sinni í Kentwood við mikinn fögnuð bæjarbúa. Sú stund er raunar sögð ógleymanleg af þeim sem hana upplifðu. Frami hennar hófst þó ekki af neinni al- vöru fyrir en hnátan var orðin fúllra 8 vetra en þá fór Britney litla alla leið til Atlanta þar sem hún tók þátt í áheyrnarprufu hjá skemmtanarisanum Disney í svokölluðum Mickey Mousc Club (MMC). Hún þótti of ung en þegar hún var orðin 11 ára þótti Dis- ney hún tilbúin að axla þá ábyrgð að bera Mikka Múseyrun og varð Britney við það fúllgildur meðlimur MMC. Árið 1993 sneri Brit heim til Kentwood í þeim tilgangi að fara í það sem Kaninn kall- ar High School en þörfin fýrir ffægð og frama bar Brit ofúrliði. Hún var komin til New York ári seinna. Það verður því seint sagt um hana Britneyju að hún sé langskóla- gengin. Aðeins 15 ára gömul var stelpan svo komin á samning, að gera góða hluti og ávöxtur vinnu hennar var ekki lengi að skila sér. Árið 1998 kom fyrsta breiðskífa Britn- ey Spears út. Eins og hver önnur stelpa Það gleymist oft þegar rætt er um Britneyju hve ung hún er og sjálf segist hún bara vera eins og hver önnur táningsstelpa. Hún met- ur systkin sín mikils, þau Bryan 21 árs og Jamie Lynn sem er 8 ára og segist um margt leita til þeirra þegar vandi steðjar að. Brit hefur að hæfileikum verið líkt við ekki ómerkari söngkonur en þær Mariah Carey og Whitney Houston. Hér sést þó aldur telpunnar glögglega, því þessar sömu konur eru einmitt hennar átrúnaðargoð! Það er ekki laust við að kynhvötin sé farin að gera vart við sig hjá Britneyju- sem er ósjaldan upphaf ógæfú kvenna. Það sést til að mynda þegar hún er beðin um nefna eft- irlætishljómsveitir sínar. Þá nefnir hún Backstreet Boys (feikilega góð hljómsveit) og Aerosmith (ekki jafngóð) en þegar und- irrituð spurði hana að því hvort hún hefði heyrt um Röskvubandið sagði hún svo ekki vera en ljómaði af spenningi þegar henni var sagt ffá hæfileikum hljómsveitarinnar. Britney hefúr ekki síður smekk þegar kemur að kvikmyndum cn tónlist. Uppá- haldsleikarar hennar eru Tom Cruise (lék í bestu mynd allra tíma, Coctail), Mel Gib- son („they can never take our ffecdom") og Brad Pitt (fær gæðaprik fyrir að vera með friendsgyðjunni Jennifer Aniston). Aðspurð um áhugamál segir hún: „I guess it's Singing, Dancing, Shopping, Going To The Beach and Reading Romant- ic Novels. These are the Things I love to do.“ Fínar júllur Einn af heimildarmönnum mínum (G. B Kjartans) komst þannig að orði þegar við ræddum um það sem þyrfti að koma ffam í grein um Brit. „Þú getur ekki skrifað um Britneyju án þess að skrifa um brjóstin hennar." Það er sannleikskorn í þessum ummælum. Því hefúr nefnilega verið haldið ffam af óprúttnum vonskumönnum að barmur Britneyjar sé ekki ffá náttúrunnar hendi heldur að um sé að ræða millennium-barm úr plasti. Sömu menn benda máli sínu til stuðnings á ljósmyndir af stelpunni og sjá augljósan mun, segja þetta bersýnilega vera „fyrir og eftir“ myndir. En bíðið nú hæg. Britney er aðeins 18 ára gömul og því er lík- ami hennar fyrst nú að öðlast endanlega kvenmannsmynd. Þegar sýndar eru 2 ára gamlarmyndirafhenni, erþánokkuð nema von að stúlkan hafi stækkað á þeim tíma? 16 ára stúlkur hafa ekki fengið endanlegt form, fúllkomnar kvenmannslínur. Blekking Britneyjar En rógsins tönn þegir sjaldnast. Þeir eru til sem segja Birtney ljúga til um aldur. Að stúlkan sé alls ekki stúlka heldur fúllvaxta kona. Hvers vegna ætti Britney að ljúga, spyr sá sem ekki veit. Ástæðan fyrir því er sögð vera sú að það er harla auðvelt verk að markaðssetja stút- ungskerlingu í skólabúningi. Þess vegna verður að segja Britney yngri en hún raun- verulega er. Heimildir eru þó á reiki þegar reynt er að komast að því hver „réttur“ ald- ur hennar er. En er ekki réttur Britneyjar að laga sig að kröfúm markaðarins? Hvernig á hún að vera trúverðug sem ímynd skólastúlkunnar ef hún er langtum eldri en skólastúlkur jafnan eru? Þetta er jafnsjálfsagt og þegar Britney okkar íslendinga - Bríetarkompaníð- litar hárið á sér svart. Bitur kona er ekki ljóshærð. Kona sem talar í sífellu um hlutgervingu kvenna og hugsar með hryllingi til þess að konur ráðist gegn eigin líkama með brjósta- stækkun þarf eðli málsins samkvæmt að lita hár sitt eldrautt eða blásvart. Boðskapurinn Gagnrýnendur hafa hnýtt í Britneyju og meðal annars gert mikið úr því að textar hennar séu þunnir. Að þar sé ekki að finna uppbyggilegan boðskap. Lítum aðeins á lag- ið Baby One More Time. Þar fjallar hún á hipsurslausan máta um ástina og það hve erfitt er að missa hana. Hver kannast ekki við slíkar tilfinningar? Oh baby baby, Oh baby baby Oh baby baby, how was I supposed to know that something wasn't right here Oh baby baby, I shouidn't have let you go.. Svo kemur viðlagið: My loneliness is killing me (and I) I must confess I still believe (still believe) When I 'm not with you I lose my mind give me a sign, hit me baby one more time! Viðlag lagsins Sometimes vekur óneitan- lega upp stórar spurningar og sýnir svart á hvítu einlægni Brit. Hún er bara eins og við hinar, þráir ekkert heitar en að vera elskuð af réttum manni. Þar syngur hún: Sometimes I run Sometimes I hide Sometimes l'm scared ofyou But all I really want is to hold you tight Treat you right, be with you day and night Baby all I need is time Og síðar heldur hún áfram: You'll see that, you're the only one for me Just hang around and you'll see There's no where l'd rather be Ifyou love me, trust in me The way that I trust in you í laginu Born to Make You Happy krist- allast þörf litlu stúlkunnar fyrir ást. Hún syngur: If only you were here tonight I know that we could make it right Viðlagið: I don't know how to live without your love I was born to make you happy 'Cause you're the only one within my heart Það er því barnaleikur einn að hrekja þau rök að Britney sé ekki djúpvitur kona, heldur sannkölluð mannvitsbrekka. Verðlaunadrottning Britney Spears er verðlaunadrottning. Flest munum við eftir því hvernig hún sópaði að sér verðlaunum á MTV verðlaunahátíðinni. Hún fékk verðlaun sem besta söngkonan, besta poppsöngkonan, besti nýgræðingur- inn í bransanum og hún hlaut vitaskuld verðlaun fyrir besta lagið sem er „Baby One More Time“. Á sömu hátíð fóru ekki rninni listamenn cn Ricky Martin, Madonna og TLC tómhent heim sem hlýtur að vera til marks um yfirburði okkar konu. En hver skyldi vera leiðin að þessum ár- angri og langar Britney til þess að halda áfram á sömu braut eða stefnir hún á frekara nám? Britney er ekki í vafa. “I want music to always be a part of my life. It will always be a part of my life, and I just want to grow as a person each time each album comes out. I want to focus on my music right now and if film or something comes up, I'd go for it. But music will always be my main priority. Just like Madonna. I respect her so rnuch because of her constant changes as a per- son and as a woman and I just totally ad- mire that.“ Þorbjörg Gunnlaugsdóttir jgjg 'Æ ^ ^ m. § ** t 26 stúdentablaðið - mars ‘00

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.