Fréttablaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
12. október 2009 — 241. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
KARÖFLUR geta verið til vandræða við uppvask. Yfirleitt er háls þeirra svo
þröngur að illmögulegt er að þurrka innan úr þeim. Góð leið er að rúlla upp
eldhúsþurrku, stinga ofan í karöfluna og láta standa um stund. Bréfið dregur
í sig raka og þannig er hægt að losna við vatnsbletti sem eiga það til að
myndast innan í flöskunni.
„Þetta er hið annálaða bláa borð-stofuborð – eftirlætisstaðurinn minn í húsinu,“ segir Margrét Gauja. Borðið er úr versluninniBollywood sem ten d
borðið á föstudagskvöldum. Hins vegar eru reglurnar þannig, lína sem Orri Þórðarson vinlét f ll
minn persónulega stílista í þesum efnum É
Hlutirnir gerast við bláa borðið í HafnarfirðiMargrét Gauja Magnúsdóttir bæjarfulltrúi í Hafnarfirði lumar á einu þaulsetnasta borðstofuborði Hafnar-
fjarðar en þar sitja gestir fram eftir öllu. Borðstofan er því að sjálfsögðu eftirlætisstaður húsfreyjunnar.
Blái samkomustaðurinn. Margrét segir eina reglu gilda um bláa borðið: Það sem sagt er og gert er við bláa borðið fer ekki út fyrir
bláa borðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 KópavogurSími 587 2202 Fax 587 2203hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæðurloftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Þ
ó
rh
il
d
a
r
1
4
6
0
.2
4
VEÐRIÐ Í DAG
HÍBÝLI OG VIÐHALD
Húsráð, hönnun og
gildi góðrar lýsingar
Sérblað um híbýli og viðhald
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Myndaði fótbolta-
mót í Afríku
Guðlaugur Halldórsson
vann til verðlauna
í ljósmyndasam-
keppni Sony
fyrir áhuga-
menn.
TÍMAMÓT 16
MARGRÉT GAUJA MAGNÚSDÓTTIR
Á annálað borðstofu-
borð úr Bollywood
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
híbýli og viðhald
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009
GÆLUDÝR „Það eru afar fáir
Sphynx-kettir á Íslandi og því
verður fólk mjög forvitið þegar
það sér þessa ketti og vill gjarnan
fá að snerta þá og klappa þeim,“
segir Ása Björg Ásgeirsdóttir,
sýningarstjóri á sýningu Kynja-
katta sem lauk í Garðabæ í gær.
Sphynx er hárlaust kattarkyn
sem leit fyrst dagsins ljós í Tor-
onto í Kanada árið 1966, en þá
hafði venjulegur heimilisköttur
gotið hárlausum kettlingum. Í
ljós kom að um vansköpun var að
ræða en síðan þá hafa kettirnir
verið ræktaðir bæði sem venju-
legir húskettir með feld og sem
hárlausir Sphynx-kettir.
Hér á landi eru aðeins til
nokkrir kettir af Sphynx-kyni.
Kötturinn Bjartur, sem sést á
myndinni hér að ofan, er einn
þessara katta. Ekki er búist
við nýju goti í bráð þar sem
ræktandinn flutti út til náms.
Kettirnir þurfa mikla umönn-
un og þarf til að mynda að baða
þá annan hvern dag því þeir geta
orðið nokkuð skítugir. Sphynxinn
er sérstaklega blíður og þykir
afskaplega gáfaður köttur.
Vegna hárleysisins fer
Sphynxinn sjaldan út. Fari hann
út í sól getur hann brunnið því
húð hans er mjög viðkvæm.
- sm
Á Íslandi finnast nokkrir Sphynx-kettir en ekki er búist við nýju goti í bráð:
Sérstaklega ljúfir og gáfaðir
HÁRLAUSI KÖTTURINN BJARTUR Sphynx-kettir eru ekki algjörlega hárlausir því þeir hafa örsmá hár sem eru líkust flaueli viðkomu.
Eigandi Bjarts heitir Sigríður Garðarsdóttir en á myndinni með Bjarti er Björn Ingi Valgarðsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍÐA RIGNING Í dag verða víða
suðaustan 8-13 m/s, en 10-18
suðvestanlands. Víða rigning, en
yfirleitt úrkomulítið norðantil.
Hlýnar heldur norðanlands á
morgun og hiti víðast 4-10 stig.
VEÐUR 4
5
9
8
4
4
Ver sig með
bláu höndinni
„Þetta er vígaleg hönd,
en hún er bara hjóla-
brettatengd hjá
mér,“ segir Stein-
ar Fjeldsted.
FÓLK 30
FÓLK Charin Thaiprasert opn-
aði fyrir stuttu veitingastaðinn
Noodle Station við Skólavörðu-
stíg 21a. Móðir
Charins rekur
veitingastað-
inn Gullna hlið-
ið á Álftanesi
og stjúpfaðir
hans, Bogi
Jónsson, átti
Bogarúllur
á árum áður.
Charin á því
ekki langt að
sækja hæfileikana.
Noodle Station býður upp
á núðlusúpur sem hafa slegið
rækilega í gegn og að sögn Char-
ins hafa viðskiptavinir lýst
mikilli ánægju með staðinn.
„Fólk virðist vera mjög ánægt
og margir hafa lýst því yfir að
þetta sé besta súpa sem þeir hafi
smakkað,“ segir Charin.
- sm / sjá síðu 30
Nýr núðlustaður opnaður:
Fetar í fótspor
móður sinnar
Meistarakeppni KKÍ
Bikarmeistarar höfðu
betur gegn Íslands-
meisturum í bæði
karla- og
kvennaflokki
í DHL-höll-
inni í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
LANDBÚNAÐARMÁL „Staðan er að
verða skelfileg hjá garðyrkju-
bændum. Kostnaðurinn hefur
hækkað mikið og hef ég heyrt að
nokkrir íhugi að hætta heilsárs-
framleiðslu um næstu áramót,“
segir Bjarni Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands garð-
yrkjubænda.
Í greinargerð um orku-,
umhverfis- og auðlindagjöld í
fjárlagafrumvarpinu sem kynnt
var í síðustu viku var rætt um að
leggja á einnar krónu orkuskatt
á hverja kílóvattstund. Fjármála-
ráðherra dró fljótlega úr vænt-
anlegum álögum og sagði skatt á
bilinu tuttugu til þrjátíu aurar á
hverja stund nærri lagi.
Bjarni segir garðyrkjubændur
uggandi. Þótt nefnt hafi verið
að þeir verði hugsanlega undan-
þegnir skattinum sé ekkert í
hendi. Miðað við sextíu milljónir
kílóvattstunda á ári getur þrjá-
tíu aura skattur þýtt allt að átján
milljóna króna álagningu á grein-
ina. Þá hefur dreifikostnaður raf-
orku til garðyrkjubænda hækkað
um þrjátíu prósent frá síðustu
áramótum.
„Ég hef verulegar áhyggjur á
meðan ekkert hefur verið stað-
fest í þessu máli,“ segir Bjarni
en bætir við að þótt enginn garð-
yrkjubóndi hafi hætt störfum af
þessum sökum sé staðan erfið hjá
mörgum.
Hann bendir á að garðyrkju-
bændur hafi slökkt á lýsingu
gróðurhúsa í sparnaðarskyni en
það hefur skilað átta prósentum
minni orkunotkun frá áramótum.
Það hefur komið niður á fram-
leiðslunni en sautján prósentum
færri tómatar hafa verið settir á
markað en í fyrra. Framleiðsla
á gúrkum hefur staðið í stað.
Það kann að breytast fljótlega,
að sögn Bjarna. „Þetta er eina
vörnin,“ segir hann og bendir á
að í ár hafi dregið úr framleiðsl-
unni í fyrsta sinn frá því raflýs-
ingu var komið á í gróðurhúsum
fyrir nítján árum. Á sama tíma
hafi ekkert dregið úr eftirspurn
og því muni innflutningur auk-
ast.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, segir að
enn eigi eftir að útfæra hugmynd-
ina um orkuskattinn og bendir á
að seint í júlí síðastliðnum hafi
verið settur á laggirnar starfs-
hópur sem skoða eigi aukna hag-
kvæmni íslenskrar ylræktar og
möguleika greinarinnar á kom-
andi árum. - jab
Bændur slökkva ljósin í
skugga skelfilegrar stöðu
Garðyrkjubændur íhuga að hætta heilsársframleiðslu um áramótin. Framleiðsla á tómötum hefur dregist
saman um sautján prósent frá áramótum. Slíkt hefur ekki gerst frá upphafi raflýsingar í gróðurhúsum.
CHARIN
THAIPRASERT