Fréttablaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er mánudagurinn 12. október 2009, 285. dagur ársins. 8.09 13.14 18.18 7.58 12.59 17.58 með ánægju Ertu góður ferðafélagi? Framundan eru miklar annir hjá Iceland Express og því leitum við að góðu, skemmtilegu og samviskusömu fólki í störf flugliða. Ef þú hefur stúdentspróf eða sambærilega menntun, ert 22 ára eða eldri, talar ensku á við innfæddan, Norður- landamál án þess að blikna og getur helst bjargað þér á þriðja tungumálinu, þá skulum við hittast. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að vinna í líflegu og fjölbreyttu starfsumhverfi til að sækja um. Umsóknarfrestur rennur út 19. október. Annars skaltu bara kíkja inn á www.icelandexpress.is/jobs – þar finnurðu meira um málið. fyrir næ sta sum ar Okkur bráðvan tar flugliða www.icelandexpress.is 2010 förum við enn lengra! Ísland Reykjavík Akureyri Varsjá Kraká Bergamo Bologna Barcelona Alicante Berlín Kaupmannahöfn Billund Álaborg Gautaborg Ósló London Gatwick Stansted Birmingham Friedrichshafen Genf Basel Frankfurt Hahn Rotterdam París Evrópa Lúxemborg Quebec Chicago Houston New Orleans Bandaríkin New York Frá Newark-flugvelli finnurðu tengiflug til allra átta, innan Bandaríkjanna sem utan! Los Angeles Las Vegas Orlando Við erum farin að hlakka til sumarsins 2010, enda spennandi tímar framundan. Áfangastaðir í Evrópu hafa aldrei verið fleiri, 24 talsins og svo tökum við stefnuna vestur um haf og hefjum áætlunarflug til New York. Taktu þátt í ævintýrinu og bókaðu sumarferðina þína núna á www.icelandexpress.is – hvert sem hugurinn leitar! Kæru landsmenn F í t o n / S Í A F I 0 3 0 8 4 6 Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Ég var stödd í Stokkhólmi þegar hrunið varð. Þar hafði ég leigt mér herbergi á vegum sænska rithöfundasambandsins og hafði hlakkað til mánuðum saman. Í raun stefndi ég eilítið lengra en bara til Stokkhólms því ferðinni var heitið alla leið til Goðheima. Ég ætlaði nefnilega að nota næðið til að byrja á næstu ljóðabók og þarna í litlu herbergi við Drottninggatan sat ég uppi við dogg í rúminu og orti. SÆNSKUMÆLANDI Breti hafði umsjón með herbergjunum, indælis- maður sem hafði ákveðið að gefast ekki upp fyrir skallanum fyrr en í fulla hnefana. Hann safnaði eftir- hreytunum af lokkunum í þunnt tagl og ekki þurfti mikið ímynd- unarafl til að sjá að tannrétting- ar gætu gert honum greiða. Stutt var liðið á dvölina þegar maðurinn tók að trufla einbeitingu mína með fjármálatali. Samkvæmt honum var íslenskt efnahagslíf í hættu. Taglið sveiflaðist til og frá og tennurnar virtust hafa raðað sér upp á alveg glænýjan hátt þegar hann romsaði upp úr sér hörmung- unum sem taldar voru líklegar að dyndu yfir okkur. MÉR fannst sænskir fjölmiðlar heldur svartsýnir og hafði engan áhuga á þessu tali. Í Goðheimum blikaði á sverð, hestar tókust á loft og konur höfðu beðið þess lengi að vera léð rödd. Þar var fjörið. En landlordinn var fastur fyrir og einn morguninn rak ég augun í frétt úr dagblaði sem hann hafði klippt nostursamlega út og lagt á eldhúsborðið. Fyrirsögnin var eitthvað á þá leið að Ísland væri farið til helvítis. Þá fyrst vaknaði áhugi minn og upp úr þessu fór ég að hringja heim og spyrja tíðinda. Enn á ég samt bágt með að skilja hvað Bretinn tók þetta havarí allt saman nærri sér. Og enn sé ég eftir áhyggjuleysinu sem ég bjó yfir þarna í septemberlok 2008. Þetta eru fagrir dagar í minningunni. EITT það ömurlegasta við hrunið er hvað ríku körlunum tókst vel upp í að dreifa sökinni yfir landa sína. Þess var krafist að þeir viður- kenndu sekt sína og bæðu þjóðina afsökunar en þess í stað tók ósköp venjulegt fólk upp á því að upp á sig ímyndaðar „sakir“. Það hafði keypt flatskjái og bíla og farið í syndsamlegar helgarferðir. Þrátt fyrir allt sem komið hefur í ljós undanfarið ár höldum við áfram að elta ríku karlana og tökum nú ekki bara á okkur skuldir þeirra heldur líka syndir. Sjálf keypti ég Brio-lestarteina handa sonum mínum þarna úti Svíþjóð. Það er hægt að kubba þeim saman og láta litlar lestir renna eftir þeim. Je ne regrette rien. Fyrir ári

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.