Fréttablaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 8
8 12. október 2009 MÁNUDAGUR * M .v . 1 5 0 þ ú su n d k r. in n le n d a ve rs lu n á m án u ð i, þ .a . 1 /3 h já s am st ar fs að ilu m . / S já n án ar á w w w .a u ka kr on u r.i s. 153 pylsur á ári fyrir Aukakrónur Þú getur fengið þér eina með öllu þrisvar í viku á Bæjarins bestu fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. * AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000 Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -2 0 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 3 17 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki PAKISTAN, AP Árás herskárra upp- reisnarmanna á höfuðstöðvar pakistanska hersins í Rawalpindi þótti vandræðaleg fyrir bæði her og stjórnvöld þar í landi. Á Vestur- löndum þótti árásin óþægileg áminning um að ástandið í Pakist- an sé engan veginn nógu tryggt. Hillary Clinton, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði árásina sýna að ríkisvaldinu staf- aði vaxandi hætta af öfgamönnum, þótt hún teldi ekki neitt benda til að þeir myndu ná kjarnorkuvopn- um landsins á sitt vald: „Við höfum trú á ríkisstjórn Pakistans og valdi hersins á kjarnorkuvopnunum,“ sagði hún á Írlandi í gær. Rehman Malik, innanríkisráð- herra Pakistans, segir að herinn muni fljótlega hefja árásir á upp- reisnarmenn í héraðinu Suður- Waziristan, þar sem talibanar og Al Kaída hafa hreiðrað um sig. Þær aðgerðir hafa verið í undir- búningi frá því fljótlega eftir að hernum tókst að vinna bug á upp- reisnarmönnum í Swat-dalnum. Árásin á höfuðstöðvar hersins í Rawalpindi nú um helgina kost- aði tuttugu manns lífið. Níu hinna föllnu voru úr röðum árásar manna, en þrír úr hópi gísla þeirra. Einn árásarmannanna var handtekinn, og er talið að hann hafi verið for- sprakki þeirra. Árásarmennirnir höfðu höfuð- stöðvarnar á valdi sínu í 22 klukku- stundir, eða frá því fyrir hádegi á laugardag og þangað til snemma í gærmorgun þegar hernum tókst að yfirbuga þá. Talibanar og aðrir uppreisnar- hópar í Pakistan hafa gerst æ djarfari í árásum á herinn og ráðamenn í Pakistan undanfarið. Árásar mennirnir á laugardaginn voru klæddir herbúningum, sem þykir sýna að þeir hafi tengsl við öfl innan hersins. Árásarmenn- irnir komu á litlum flutningabíl merktum hernum og áttu ekki í neinum vandræðum með að kom- ast inn í höfuðstöðvarnar. Engin samtök uppreisnarmanna lýstu sig ábyrg, en stjórnvöld telja fullvíst að þarna hafi annað hvort talibanar eða önnur samtök her- skárra múslima verið að verki. Bandaríkin og fleiri vestræn ríki hafa reynt að fá pakistönsk stjórnvöld til þess að grípa til harðari aðgerða gegn uppreisnar- hópunum, sem hafa getað athafnað sig nánast að vild í stórum héruð- um meðfram landamærum Afgan- istans. gudsteinn@frettabladid.is Vandræðaleg árás fyrir her Pakistans Tuttugu féllu í árás á höfuðstöðvar pakistanska hersins í Rawalpindi. Pakistans- her undirbýr árásir á talibana og Al Kaída í Suður-Waziristan. Hillary Clinton segir ekkert benda til að kjarnorkuvopn Pakistans falli í hendur öfgamanna. BRUGÐIST VIÐ ÁRÁSINNI Pakistansher tókst að endurheimta höfuðstöðvar sínar eftir 22 klukkustunda umsátur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VINNUMARKAÐUR „Þetta er sársaukafullt fyrir fólkið sem lendir í uppsögnunum en einnig fyrir okkur sem eftir eru. Það er erfitt að standa í svona löguðu en þetta var því miður nauðsynleg aðgerð,“ segir Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu. Nítján starfsmönn- um fyrirtækisins, sem rekur fjarskiptanet lands- manna, hefur verið sagt upp störfum, tíu á höfuð- borgarsvæðinu og níu á landsbyggðinni. Verulega hefur dregið saman í starfsemi fyrir- tækis ins á höfuðborgarsvæðinu með hruni byggingar- iðnaðarins. Páll segir ónýttar fjárfestingar félagsins í nýjum götum nema um tveimur milljörðum króna. „Þegar búið er að malbika nýjar götur erum við búin að leggja fjarskiptakerfin fyrir þær. Það er því búið að leggja línur fyrir Úlfarsfellið, Helgafellslandið og fleiri hverfi, bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu, sem er ekki verið að nota.“ Þá voru starfsstöðvar Mílu á Húsavík, Patreks- firði, Stykkishólmi og Borgarnesi lagðar niður en gerðir samningar við samstarfsaðila Mílu um að taka yfir þjónustu við viðskiptavini á þeim svæðum. Segist Páll eiga von á að einhverjum starfsmannanna sem sagt var upp verði boðin vinna hjá þeim. - hhs Breytingar gerðar á starfsemi Mílu, sem rekur fjarskiptakerfi landsmanna: Nítján manns missa vinnuna Í KÓRAHVERFI Stór hluti af starfsemi Mílu felst í að leggja fjar- skiptakerfi í ný hverfi. Frost í byggingariðnaði hefur því dregið úr umsvifum fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.