Fréttablaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 17
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
KARÖFLUR geta verið til vandræða við uppvask. Yfirleitt er háls þeirra svo
þröngur að illmögulegt er að þurrka innan úr þeim. Góð leið er að rúlla upp
eldhúsþurrku, stinga ofan í karöfluna og láta standa um stund. Bréfið dregur
í sig raka og þannig er hægt að losna við vatnsbletti sem eiga það til að
myndast innan í flöskunni.
„Þetta er hið annálaða bláa borð-
stofuborð – eftirlætisstaðurinn
minn í húsinu,“ segir Margrét
Gauja. Borðið er úr versluninni
Bollywood sem tengdamóðir Mar-
grétar Gauju rak á Laugaveginum
en borðið færði hún fjölskyldunni
að gjöf. Það er flutt inn frá Ind-
landi og „brjálæðislega blátt“ að
sögn Margrétar Gauju.
„Hérna, við þetta borð, gerast
hlutirnir. Ekki er nóg með að fjöl-
skyldan borði alltaf saman hér
heldur er þetta samkomustaður
stórs vinahóps sem hittist reglu-
lega og bruggar ráð. Það er yfir-
leitt einhver samkunda við bláa
borðið á föstudagskvöldum. Hins
vegar eru reglurnar þannig, lína
sem Orri Þórðarson vinur minn
lét falla, að „það sem sagt er og
gert er við bláa borðið fer ekki út
fyrir bláa borðið“.“
Margrét Gauja segir að hús-
gögn sem endi heima hjá henni
séu oftar en ekki notuð og í ódýr-
ari kantinum. Hún sé einnig svo
heppin að tengdamóðir hennar
sem gaf henni borðið, Sigríður
Sverrisdóttir, sé dugleg að færa
fjölskyldunni ótrúlegustu hluti.
„Hún veit hvað við fílum og er
smekkvís kona þannig að ég er
eiginlega svo heppin að vera með
minn persónulega stílista í þess-
um efnum. Ég sjálf hef nefnilega
lítið vit á þessu, þótt ég viti hvað
mér finnst ljótt. Það er því gott að
eiga góða að – sem ég á og get því
fengið leiðsögn í þessum efnum.
Ég hef þetta einfaldlega ekki í
mér.“
Margrét Gauja býr í húsinu
Bjarnabæ við Suðurgötu í Hafnar-
firði. Eldhúsið og borðstofan eru
hjarta hússins en þar er blanda af
alls kyns gömlum og nýjum hlut-
um. „Jú, borðið er eflaust orðið
frægt í Hafnarfirði. Ég vona það
að minnsta kosti!“
juliam@frettabladid.is
Hlutirnir gerast við bláa
borðið í Hafnarfirði
Margrét Gauja Magnúsdóttir bæjarfulltrúi í Hafnarfirði lumar á einu þaulsetnasta borðstofuborði Hafnar-
fjarðar en þar sitja gestir fram eftir öllu. Borðstofan er því að sjálfsögðu eftirlætisstaður húsfreyjunnar.
Blái samkomustaðurinn. Margrét segir eina reglu gilda um bláa borðið: Það sem sagt er og gert er við bláa borðið fer ekki út fyrir
bláa borðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
il
d
a
r
1
4
6
0
.2
4