Fréttablaðið - 12.10.2009, Page 4

Fréttablaðið - 12.10.2009, Page 4
4 12. október 2009 MÁNUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 26° 9° 10° 9° 14° 13° 11° 9° 9° 24° 15° 26° 14° 33° 7° 15° 16° 7° Á MORGUN Víðast 3-8 m/s og stöku skúrir. MIÐVIKUDAGUR 5-10 m/s. 10 9 8 8 4 5 6 4 3 4 8 10 10 9 6 7 9 7 7 18 9 15 11 7 8 9 10 10 11 12 118 BLAUTT VEÐUR Það verður satt best að segja leiðinlegt veður sunnan- og vest- anlands í dag. Víða strekkingur og rign- ing og sums staðar slagveður. Á þriðju- dag dregur úr vindi og vætu, en útlit er fyrir að miðviku- og fi mmtudagur verða vindasamir og blautir. Það verður milt í veðri út vikuna. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður TYRKLAND, AP Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrk- lands, segir að Armenar verði að yfirgefa Nagorno-Karabach, fjalla- hérað í Aserbaídsjan sem að mestu er byggt Armenum. Þetta sagði hann í gær, daginn eftir að Tyrk- land og Armenía undirrituðu samn- ing um að hefja stjórnmálasam- skipti á ný eftir sextán ára hlé. Samningur Tyrklands og Armeníu á laugardag þykir sögu- legur, því samband ríkjanna hefur áratugum saman verið ákaflega stirt. Tyrkir hafa aldrei viljað fallast á að fjöldamorð Tyrkja á Armenum fyrir tæpri öld geti fallið undir þjóðarmorð. Auk þess hafa þjóðirnar deilt hart um her- nám Armena á Nagorno-Karabach árið 1993. Samningur Tyrkja og Armena var undirritaður á laugardag, en fram á síðustu stundu stóðu yfir deilur um orðalag í yfirlýsingum beggja ríkjanna, sem gefa átti í kjölfar undirritunar samnings- ins. Sú deila var leyst með því að hvorugt ríkið sendi frá sér yfirlýs- ingu. Óvíst er hvort ummæli Erdogans um að Armenar verði að láta Nagorno-Karabach af hendi setji samskipti ríkjanna í uppnám að nýju. Aserar segja hins vegar að endurupptaka stjórnmálasam- bands Tyrkja og Armena varpi skugga á annars nána vináttu Tyrkja og Asera. - gb Tyrkir og Armenar undirrituðu um helgina samkomulag um bætt samskipti: Samskipti ríkjanna enn stirð UNDIRRITUN SAMNINGA Edouard Nalbandian, utanríkisráðherra Armeníu, og Ahmet Davutoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, undirrituðu tímamótasamn- ing í Sviss á laugardag. NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Sex þingmenn úr þremur flokkum leggja til að þingmenn sem skipaðir eru ráðherrar víki úr þingsæti meðan á ráðherra- dómi stendur og að varamenn setjist í þeirra stað. Flutningsmenn eru Siv Frið- leifsdóttir, Höskuldur Þórhalls- son, Eygló Harðardóttir og Vigdís Hauksdóttir Framsóknar- flokki, Pétur Blöndal Sjálfstæðis- flokki og Valgerður Bjarnadóttir Samfylkingunni. Þetta er í sjö- unda sinn sem frumvarp þessa efnis er lagt fram á Alþingi. - bþs Ráðherrar víki úr þingsæti: Lagt fram í sjöunda skipti ÞÝSKALAND Græningjaflokkurinn í Saarlandi, einu af sextán sam- bandslöndum Þýskalands, hefur ákveðið að ganga til stjórnar- samstarfs með Kristilegum demókrötum og Frjálsum demó- krötum, tveimur helstu hægri- flokkum landsins. Græningjar segja stjórnar- samstarfið tilraun, en flokkurinn hefur aldrei áður starfað í stjórn með hægriflokkunum. Sósíal- demókratar og Vinstriflokkurinn segja þetta vonbrigði. Kristilegir demókratar misstu þingmeirihluta sinn í Saarlandi í kosningum í lok ágúst. - gb Nýstárlegt stjórnarmynstur: Græningjar í hægristjórn SVEITARSTJÓRNIR Bæjarsjóður Hafnarfjarðar var rekinn með 347 milljóna króna halla á fyrri hluta þessa árs, að því er fram kemur í milliuppgjöri bæjarins. Sagt er að rekstrartekjur hafi verið í samræmi við áætlun, en útgjöld umfram áætlun. „Helstu frávik í rekstri frá áætlun koma fram í auknum útgjöldum til félagsmála, fram- færslu og húsaleigubóta sem hafa hækkað um nær 100 prósent frá sama tíma á síðastliðnu ári. Þessi mikla hækkun er töluvert umfram það sem áætlað hafði verið,“ segir í frétt frá bæjaryfir- völdum. Í fréttinni segir einnig að duldar eignir í lóðum og löndum séu tuga milljarða króna virði. - gar Hallarekstur í Hafnarfirði: Tvöfalt meira til félagsmála Múslimar vilja búrkubann Samtök múslima í Kanada hvetja ríkisstjórn landsins til þess að banna konum að ganga í búrkum, síðum klæðnaði sem hylur andlit. Samtökin segja búrkur vera tákn miðalda og kvenfyrirlitningar og eiga sér enga stoð í íslam. KANADA STJÓRNMÁL Hvorki hefur verið um það rætt í norsku eða norrænu samhengi að hækka þær lánaupp- hæðir sem Íslendingum standa til boða frá Noregi. Þetta kemur fram í bréfi Jens Stoltenberg, forsætis- ráðherra Noregs, til Jóhönnu Sig- urðardóttur frá því 8. október. Bréfið er svar Stoltenbergs við bréfi Jóhönnu dagsettu 5. október, þar sem hún óskar eftir viðbrögð- um forsætisráðherrans við full- yrðingum Per Olov Lundteigen, þingmanns norska Miðflokksins, við íslenska Framsóknarflokkinn, um að Norðmenn væru tilbúnir að lána Íslendingum allt að 100 millj- örðum norskra króna, án skilyrða um samninga varðandi Icesave og endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins. Sú upphæð jafngildir um 2.200 milljörðum íslenskra króna. Í bréfinu segir Stoltenberg það skipta miklu að Ísland komi sam- skiptum við umheiminn í samt lag. „Við styðjum ykkur í þessari við- leitni og vonum að stjórn AGS geti fljótlega samþykkt fyrstu endur- skoðun stöðugleikaáætlunarinnar, þannig að næsta útborgun lánsins frá AGS og fyrsta útborgun af nor- rænu lánunum geti átt sér stað,“ segir Stoltenberg. Norðmenn vilja lána 480 millj- ónir evra af því 1,8 milljarða evra heildarláni sem Norðurlöndin eru sameiginlega tilbúin að veita Íslendingum. 480 milljónir evra jafngilda um 4,2 milljörðum norskra króna. Það lán verður veitt með þeim skilyrðum að Ísland virði alþjóðlegar skuldbind- ingar, þar með talið varðandi inn- lánstryggingar, og að þau lönd sem hafa helst orðið fyrir vanefnum íslenska innlánstryggingasjóðs- ins veiti lán til að fjármagna þær skuldbindingar sem íslensk stjórn- völd gangast við í þessu samhengi, eins og segir í bréfinu. Meðferð íslenskra skuldbind- inga um innlánstryggingar gagn- vart erlendum innistæðueigendum í bönkunum sem féllu skipti mjög miklu fyrir styrkleika stöðugleika- áætlunarinnar. „Í þessu samhengi eru Icesave-samningarnir við Stóra-Bretland og Holland mikil- vægir. Við leggjum þunga áherslu á norræna samstarfið. Það gagn- ast bæði Noregi og Íslandi að það eflist og að norska aðstoðin við Ísland gerist í slíkri samvinnu,“ segir að lokum í niðurlagi bréfs- ins. holmfridur@frettabladid.is Stoltenberg tekur fyrir risa- lán til handa Íslendingum Forsætisráðherra Noregs segir það hvorki hafa verið rætt í norsku né norrænu samhengi að hækka lána- upphæðir sem standa Íslendingum til boða. Samnorrænt lán er háð samkomulagi um Icesave. „Þetta bréf Jóhönnu til Stoltenbergs er hneyksli,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar- flokksins. „Það er svo augljóst að hún er að biðja um að möguleikinn á láninu verði sleginn út af borðinu. Í ferð okkar til Noregs tóku sjö af átta þingflokkum vel í beiðni um tvíhliða samninga. Svarið var hins vegar alltaf að það hefði ekki borist beiðni frá Íslandi. Á meðan hún hefði ekki borist væri ekki hægt að taka afstöðu til málsins. Ef Jóhönnu hefði verið alvara með því að óska eftir hjálp hefði hún ekki sent Stoltenberg nokkrar línur í tölvupósti, þar sem hún segist beinlínis vita hvert svarið verður og biður hann að staðfesta það sem hún telur sig vita. Hefðu íslensk stjórnvöld farið formlega fram á það við norsk stjórnvöld að leitað yrði annarra leiða en þeirrar samnorrænu sé ég ekki fyrir mér að norski Verkamannaflokkurinn hefði getað hafnað því,“ segir Sigmundur. Þá er hann ósáttur við áhersluna á upphæðina 2.200 milljarða króna. „Við höfum aldrei sagt að við viljum fá tvö þúsund milljarða lán, eins og fjölmiðlar hafa slegið upp í fyrirsögnum. Hundrað milljarðar norskra króna voru nefndir af talsmanni Miðjuflokksins, sem taldi það upphæð sem hægt væri að lána. Við höfum alltaf talað um lánalínu, sem fæli í sér mun lægri upphæð.“ ÓSÁTTUR VIÐ ÁHERSLU Á 2.200 MILLJARÐA JENS STOLTENBERG Forsætisráðherra Noregs segir mikilvægt að Ísland komi samskiptum við umheiminn í lag, svo næsta útborgun AGS og fyrsta útborgun norrænna lána geti átt sér stað. MYND/AFP GENGIÐ 09.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,1425 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,94 125,54 199,6 200,58 184,11 185,15 24,73 24,874 22,123 22,253 17,896 18 1,4058 1,414 198,27 199,45 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.