Fréttablaðið - 12.10.2009, Page 39

Fréttablaðið - 12.10.2009, Page 39
MÁNUDAGUR 12. október 2009 Tónlist ★★★ 6. október Ego Egóið í botni Staðreyndin er sú að allir hafa skoðun á Bubba, jákvæða eða neikvæða. Þess vegna er best að koma því frá strax að fyrsta plata Ego í aldarfjórðung er ekki líkleg til að breyta áliti fólks á róttækan hátt. Fátt kemur beinlínis á óvart á 6. október. Bubbi gerir það sem við má búast af honum, en þó betur en oftast á undanförnum árum. Bandið er í þrumuformi á plötunni. Þegar best tekst til er kafað ofan í kuldarokks sánd gamla Egosins, en það um leið uppfært yfir á 21. öldina með góðum árangri. Hljómsveitin í heild fer hamförum og er sérstaklega vert að minnast á dúndurgóðan gítarinn hjá Begga Morthens og hjómborðsleik Hrafns Thoroddsen, sem gefur mörgum laganna skemmtilega nostalgískan blæ, jafnvel nýrómantískan á köflum. Þá er söngur Bubba óvenjugóður; kraftmikill en þó áreynslulaus. Meginþemu í textagerð eru kreppan og ástin. Þar er fátt nýtt, en hvort sem fólki líkar betur eða verr eiga þessi efni erindi og ástæðulaust er annað en að tækla þau. Bubbi lýsir ömurlegustu afleiðingum ástandsins (í tveimur af bestu lögunum, lokalaginu Hruninu, sem minnir dálítið á U2, og frábæru titillaginu), stappar stálinu (Áður en dagarnir hverfa) eða hvorutveggja í senn (Vonin er vina mín). Raunar er eftirtektarvert hve bitastæð þau lög eru sem ekki voru sett í spilun strax í vor og sumar, að undanskildu hinu fína Fallegi lúserinn minn. Aldan (Gerði mitt besta) er „Ego-legasta“ lag plötunnar, blátt áfram og hreinskilið, Hvenær sem er er ágætis blúsari og Að elska er að finna til leiðir hugann að lagasmíðunum á Frelsi til sölu frá 1986. Erki-Bubbalegar melódíurnar í Í hjarta mér og Engill ræður för hafa notið vinsælda en virka ögn hjáróma í samanburði við önnur lög. Ástar- og skrifblinduóðurinn Ástin ert þú á litinn er líklega sísta lag plötunnar, en alls ekki alslæmt. 6. október er fyrst og fremst hörku rokkplata. Örlítið meiri fjölbreytni hefði svo sem ekki skaðað (lög á borð við Kannski varð bylting vorið 2009 hefðu hugsanlega verið til þess fallin að brjóta upp stemninguna a la Í mynd, enda hrekkur Egoið í magnaðan reggígír á tónleikum) en platan þjónar sínu hlutverki og vel rúmlega það. Kjartan Guðmundsson Niðurstaða: Hörku rokkplata frá fornfrægu bandi. B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Kanarí Frá kr. 99.900 Frá kr. 99.900 Aðeins örfáar íbúðir í boði! Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanarí- eyjum 24. nóvember í 25 nætur á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábært stökktu tilboð þar sem þú bókar flugsæti og gistingu og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir (stökktu tilboð með „öllu inniföldu” jafnframt í boði). Einnig bjóðum við frábær sértilboð á Parquemar og á hinu vinsæla Jardin del Atlantico íbúðahóteli með „öllu inniföldu“ á hreint ótrúlegum kjörum. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað á hreint ótrúlegum kjörum. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara! 25. okt. 24. nóv. Tryggðu þér sæti strax! Frá kr. 149.900 – með „öllu inniföldu“ ÓTRÚLEG SÉRTILBOÐ! NÝTT! Jardin A tlantico með „ö llu innifö ldu“ Ný jólaferð! 14 nætur frá kr. 119.500 Tryggðu þér sæti strax!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.