Fréttablaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 30
26 14. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. spjall, 6. átt, 8. spíra, 9. gljúfur, 11.
æst, 12. einkennis, 14. létt hlaup, 16.
tveir eins, 17. útsæði, 18. harðæri, 20.
ólæti, 21. malargryfja.
LÓÐRÉTT
1. nýja, 3. í röð, 4. ofbjóða, 5. mæli-
eining, 7. deilur, 10. yfirbreiðsla, 13.
hrós, 15. gleðja, 16. stækkaði, 19.
ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rabb, 6. nv, 8. ála, 9. gil,
11. ör, 12. aðals, 14. skokk, 16. jj, 17.
fræ, 18. óár, 20. at, 21. krús.
LÓÐRÉTT: 1. unga, 3. aá, 4. blöskra,
5. bar, 7. viðsjár, 10. lak, 13. lof, 15.
kæta, 16. jók, 19. rú.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 10
1 79,1 prósent.
2 85 milljörðum.
3 Kaj Leo Johannesen.
„Þegar maður vill dekra við sig
á sunnudegi þá eru það klárlega
heitu kjúklingavængirnir á Ruby
Tuesday. Svo þykja mér borgar-
arnir á Vitabar alveg einstakir
og núðlusúpan á Asíu stendur
alltaf fyrir sínu.“
Gylfi Blöndal, tengiliður listamanna á
Gogoyoko og skipuleggjandi á Sódómu
Reykjavík.
„Þeir ætla að hafa svona snjó-
áherslur í myndbandinu, jökla og
ísjaka,“ segir Leifur B. Dagfinns-
son hjá framleiðslufyrirtækinu
True North. Írska strákasveitin
Westlife er væntanleg til landsins
um helgina í þeim erindagjörðum
að taka upp myndband við nýtt
lag. True North mun sjá um tök-
urnar hér en Leifur segir ekki ljóst
hversu stórt myndbandið sé í snið-
um. Að öllum líkindum verði það
þó tekið upp í kringum Jökulsárlón
þar sem fjölmargar erlendar aug-
lýsingar, myndbönd og kvikmynd-
ir hafa verið gerð.
Karlarnir í Westlife hafa vafa-
lítið ekki gert sér grein fyrir
því að þeir gætu ekki hafa valið
sér betri tímasetningu því í dag
hefst tónlistarhátíðin Airwaves
og stendur fram yfir helgi. Helstu
skemmtistaðir borgarinnar verða
því þéttsetnir af fólki sem hefur
reyndar annan tónlistarsmekk en
Westlife stendur fyrir. Þeir ættu
þó að geta fundið sér tíma til að
kíkja aðeins á tónleikahaldið þótt
Leifur segi að heimsóknin muni
verða stutt. „Þeir koma degi áður
en tökurnar hefjast og fara strax
á sunnudagsmorgun.“ Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins munu
Westlife-piltarnir ætla að gista á
101 Hóteli í miðborg Reykjavíkur,
eins og flestar þær stórstjörnur
sem hingað koma.
Westlife er hvergi nærri búin að
gefa upp öndina þrátt fyrir að fjöl-
margir hafi haldið það. Þeir Nicky
Byrne, Kian Egan, Mark Feehily
og Shane Filan, sem skipa sveitina,
eru nefnilega í fullu fjöri. Sveitin
hefur slegið fleiri met en margan
grunar, hún er í þriðja sæti yfir þá
tónlistarmenn í Bretlandi sem hafa
komið flestum smáskífum á topp-
inn þar í landi, eða alls fjórtán.
Aðeins Elvis Presley og Bítlarn-
ir státa af betri árangri. Ný plata
Westlife er væntanleg 30. nóvem-
ber og hyggst sveitin fylgja henni
eftir með miklu tónleikaferðalagi.
freyrgigja@frettabladid.is
LEIFUR B. DAGFINNSSON: ÁHERSLA Á SNJÓ OG JÖKLA Í MYNDBANDINU
WESTLIFE Á LEIÐ TIL ÍSLANDS
Í FULLU FJÖRI Strákarnir í Westlife eru væntanlegir til Íslands um helgina til að taka
upp myndband við nýtt lag. Sveitin er ein sú vinsælasta í Bretlandi. NORDICPHOTOS/AFP
Breskir popparar og poppdívur
kunna vel að meta Ísland og
íslenskt landslag. Mel C nýtti
sér hið íslenska „góðan dag-
inn“ í myndbandi sínu við lagið
Never Be the Same Again.
Nokkrar senur voru teknar
upp hér á landi en söngkonan
kom aldrei sjálf. Strákahljóm-
sveitargoðin í Take That voru
við Reykjanesvita fyrir þremur
árum og gerðu myndband við
lagið Patience.
Fyrr á þessu ári var síðan
breski hjartaknúsarinn James
Morrison í sömu erindagjörðum og tók upp nokkrar senur í Vík í Mýrdal,
Bláa lóninu og víðar. Til gamans má svo geta að Brian McFadden, einn af
upphaflegum meðlimum í Westlife, tók upp myndband hér á Íslandi fyrir
allmörgum árum þegar hans sólóferill hófst.
BRESKIR POPPARAR KYNNAST ÍSLANDI
TAKE THAT
„Þótt allir viti kannski ekki af því þá eru alltaf ein-
hverjir með lífverði og við höfum alveg fundið fyrir
vaxandi þörf á þessari þjónustu eftir bankahrunið,“
segir Stefán Stefánsson hjá Öryggisvarðaskólanum.
Auglýsingar frá skólanum hafa vakið athygli en
þar er boðið upp á fyrsta „opinbera“ lífvarðanám-
skeiðið á Íslandi. Að sögn Stefáns koma hingað til
lands fjórir breskir lífverðir frá National Security
College en námskeiðið verður mjög krefjandi.
Allt sem góður lífvörður þarf að kunna verður í
kennslubókunum, þar á meðal meðferð skotvopna,
skyndihjálp og akstur; hvernig eigi til að mynda
að komast undan. Þeir sem klára námskeiðið eiga
síðan möguleika á að fá verkefni hjá Terr Security
en það fyrirtæki er með starfsemi um allan heim.
En það er ekki ókeypis að læra að verða lífvörður
því námskeiðið kostar 400 þúsund krónur. Stefán
segir inntökuskilyrðin þau að menn séu þokkalega
á sig komnir líkamlega og andlega, hafi gott vald á
enskri tungu og séu með hreint sakavottorð. Hann
bætir því við að íslenskur lífvörður muni setjast
niður með umsækjendum og ræða við þá þannig að
allir séu meðvitaðir um hvað þeir séu að fara út í.
Stefán segir fjölmarga hafa sett sig í samband
við hann. Nokkrar konur hafi þegar skráð sig
á námskeiðið og það hafi komið honum á óvart.
„Reyndar kemur það manni bara í opna skjöldu
hversu margir hafa áhuga.“ Áhugasamir geta
kynnt sér málið á heimasíðu Öryggisvarðaskólans,
ovskoli.is. - fgg
Lífvarðanám kostar 400 þúsund
KENNA LÍFVÖRÐUM Stefán Stefánsson og Einar Haraldsson,
einn reyndasti lífvörður landsins, bjóða fólki að læra til líf-
varðar á stífu námskeiði Öryggisvarðaskólans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég fékk þessar fréttir í gær, þær
komu skemmtilega á óvart,“ segir
Óskar Páll Sveinsson, silfurlaga-
höfundur með meiru. Íslenska
Eurovision-lagið Is It True? heldur
áfram sigurför sinni um Eurovision-
heiminn því það var kosið lag ára-
tugarins í netkosningu á aðdáenda-
síðunni esctoday.com sem er sú
vinsælasta í þessum bransa. Í öðru
sæti varð serbneska lagið Molitva
með söngkonunni Mariju Serifovic
og Rändajad frá Eistlandi hafnaði í
því þriðja. Athygli vekur að norski
hjartaknúsarinn Alexander Rybak
kemst ekki á lista yfir 25 bestu
Eurovision-lög áratugarins en hann
sigraði með miklum yfirburðum í
Moskvu fyrr á þessu ári.
Óskar hefur annars verið í fríi
frá tónlistinni í allt sumar því lax-
veiðin hefur átt hug hans og hjarta.
„Ég vinn inni á veturna en er í úti-
vinnu á sumrin,“ segir Óskar, sem
var meðal annars leiðsögumaður í
Norðurá, Laxá í Kjós og Selá í Vopna-
firði. Nú þegar farið er að skyggja
tekur tónlistin aftur við og laga-
höfundurinn hyggst meðal annars
vera með í Eurovision-keppni Sjón-
varpsins í ár. Hann þurfti reyndar
ekki, sem sigurvegari síðasta árs, að
taka þátt í undankeppninni og segir
lag sitt því ekki fullmótað. „En ann-
ars ætti maður náttúrlega bara að
hætta núna, eftir að hafa samið lag
áratugarins, leiðin getur vart annað
en legið niður á við eftir það,“ grínast
hann með. „Maður er bara aðeins of
ungur og vitlaus til þess.“ - fgg
Is It True? kosið besta lag áratugarins
LAG ÁRATUGARINS Eurovision-njörðarnir á Esctoday.com kusu íslenska lagið Is It
True? eftir Óskar Pál með Jóhönnu Guðrún besta lag áratugarins í þessari vinsælu
keppni.
Hollur barnamatur fyrir 6 mánaða og eldri
www.barnamatur.is
Ósykrað
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
Liðsmenn íslenska landsliðsins
í knattspyrnu undirbjuggu sig á
heldur óvenjulegan hátt fyrir leik
sinn gegn Suður-Afríku sem var
háður á Laugardalsvelli í gær.
Kvöldið fyrir leik skelltu þeir sér
í bíó á uppvakningamyndina
Zombieland og skemmtu sér hið
besta yfir hasarnum. Á
meðal þeirra sem mættu í
fagurbláum landsliðsgall-
anum voru Grétar Rafn
Steinsson, leikmaður
enska úrvals deildar-
liðsins Bolton,
og Ólafur Ingi
Skúlason,
leikmaður
Helsingborg.
Hins vegar sást Eiður Smári
Guðjohnsen hvergi í salnum.
Eiður hefur líklega kosið að létta
aðeins sína lund enda
hefur ferillinn með
Monaco í Frakklandi
ekki alveg náð því
flugi sem vonir stóðu
til. Zombieland hefur
því ekki heillað og Eiður
kaus eflaust frekar að
sjá vin sinn Sveppa
fara á kostum í hinni
vinsælu Algjör Sveppi
sem 23 þúsund
Íslendingar hafa séð
að undanförnu.
Hinn skeleggi gagnrýnandi og
blaðamaður David Fricke frá Roll-
ing Stone hefur verið fastagestur
á Airwaves-hátíðinni undanfarin
ár. Hann hefur ekkert
verið spar á að hrósa
íslenskum hljómsveit-
um. Nú ber hins vegar
svo við að Fricke
kemst ekki í ár vegna
anna og er alveg
miður sín yfir þeim
örlögum sínum. Og
því miður fyrir Air-
waves ákvað tíma-
ritið að senda
ekki annan
mann í
staðinn.
- fb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI