Fréttablaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 4
4 14. október 2009 MIÐVIKUDAGUR EFNAHAGSMÁL „Það sem við erum að reyna að gera er að velta upp mögu- legum leiðum að lausnum,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, um þá hug- mynd að lífeyrissjóðirnir komi að lausn Icesave-deilunnar með láni til ríkisins. Finnur segist ekki vilja deila við Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóra Landssambands lífeyris- sjóða, heldur velta upp hugmyndum að mögulegri þátttöku lífeyrissjóð- anna í því endurreisnarstarfi sem fram undan sé. Í Fréttablaðinu í gær sagði Hrafn að hugmynd Viðskiptaráðs væri „alveg galin“. Hann sagði að hug- myndin þýddi að það yrði gegnum- streymi í lífeyrissjóðunum, áhætt- an myndi stóraukast og mögulega þyrfti að skerða réttindi sjóðsfélaga. Raunveruleg hætta yrði á því að lífeyrissjóðirnir yrðu þjóðnýttir. Þá skipti miklu fyrir lífeyrissjóð- ina að vera með hluta eigna sinna erlendis. „Það er óþarfi að slá alla umræðu út af borðinu,“ segir Finnur. „Við tökum fram að þetta dregur úr áhættudreifingu lífeyrissjóðanna. Í þessari aðgerð þarf ekki endilega að felast einhver breyting á því að hluti eignanna verði raunverulega erlend- ur þar sem eignasafn Landsbankans er erlent eignasafn. Það yrði lagt til grundvallar við endurheimtur þessa láns. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að lífeyrissjóðirnir fái safnið á sanngjörnu verði og sjái síðan sjálfir um að hámarka virði þess.“ Finnur segist ekki sjá að með þessu verði lífeyrissjóðunum breytt í gegnumstreymiskerfi. „Þetta er ekki breyting í þá átt frekar en kaup lífeyrissjóðanna á ríkis- skuldabréfum og skuldabréfum Íbúðalánasjóðs.“ „Aðalatriðið er að í þessu óhefð- bundna ástandi opnum við á umræðu um óhefðbundnar leið- ir. Það er ekkert sem hefur komið fram sem sýnir fram á að þessi leið sé ekki þess virði að skoða hana.“ Ólafi Ísleifssyni, lektor í hag- fræði við Háskólann í Reykjavík, líst ekki vel á hugmynd Viðskipta- ráðs. „Þetta er mjög varhugavert,“ segir Ólafur. „Sjóðirnir þurfa að gæta hagsmuna sinna sjóðsfélaga. Það sem varð þeim til bjargar voru þeirra erlendu eignir sem eru þeim ákveðið haldreipi.“ trausti@frettabladid.is Ranglega var farið með nafn Þórólfs Guðnasonar, staðgengils sóttvarna- læknis í frétt blaðsins í gær. Í frétt um teiknimynd um kynferðisof- beldi í blaðinu í gær var Sunna Björk Mogensen rangnefnd. Þá láðist að geta þess að Háskólinn í Reykjavík er stærsti styrktaraðili verkefnisins. LEIÐRÉTT Tebollur með rúsínum og með súkkulaðibitum Íslenskur gæðabakstur ný tt Óþarfi að slá alla um- ræðu út af borðinu Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segist ekki vilja deila við forsvars- menn lífeyrissjóðanna. Hann segir ekkert hafa komið fram sem sýni fram á að lífeyrissjóðirnir geti ekki komið að lausn Icesave-deilunnar með láni til ríkisins. Þau leiðu mistök urðu í blaði gær- dagsins að ummæli sem höfð voru eftir íslenskum listamanni í Feneyjum voru notuð í fyrirsögn. Var þar um að ræða óviðurkvæmilegt grín á kostnað einhverfra. Beðist er velvirðingar á þessu. ATHUGASEMD UMHVERFISMÁL Tilraun með að nota húsdýr til að spara kostnað og minnka neikvæð umhverfis- áhrif af grasslætti var gerð síð- asta sumar á Fljótsdalshéraði, og gaf góða raun. Sagt var frá því í Fréttablaðinu í gær að gera ætti tilraun með að beita sauðfé og hrossum á græn svæði í og við Ísafjarðarbæ næsta sumar. Í frétt frá Fljótsdalshéraði segir að slík tilraun hafi þegar verið gerð á einu svæði í síðasta sumar. Þar hafi hestar séð um að halda grasinu í skefjum með góðum árangri, og vakið mikla ánægju ferðamanna. - bj Tilraun með lífrænan slátt: Fyrst prófað á Fljótsdalshéraði RÚMENÍA, AP Rúmeníustjórn missti þingmeirihluta sinn í gær þegar vantrauststillaga á stjórnina var samþykkt. Meirihluti þingmanna telur að stjórninni hafi ekki tekist að koma landinu út úr efnahags- kreppunni. Emil Boc forsætisráðherra segist þó aðeins hafa tapað einni orrustu en ekki stríðinu. Hann sakar þingmennina um að hafa látið stjórnast af ótta við að missa vel útilátin lífeyrisréttindi, verði umbótafrumvarp stjórnarinnar í þeim málum að lögum. Staða stjórnarinnar á þingi veiktist í síðustu viku þegar Sósíaldemókratar gengu úr henni. - gb Rúmeníustjórn fallin: Kreppan varð stjórn að falli MIRCEA GEOANA Leiðtogi Sósíaldemó- krata fagnar niðurstöðu þingsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 26° 11° 10° 1° 18° 11° 8° 8° 11° 7° 25° 15° 12° 32° 8° 14° 18° 6° Á MORGUN 8-15 m/s, hvassast norð- vestan til. FÖSTUDAGUR 3-8 m/s 10 13 10 15 8 8 10 6 13 6 10 12 10 9 12 13 13 12 8 12 11 8 910 8 VERSNAR MEÐ KVÖLDINU Það er rétt að vekja athygli á að hægt og rólega hvessir vestan- lands eftir því sem líður á daginn og í kvöld má búast við að komið verði hvassviðri með stormhviðum á vestan og norðvestanverðu landinu. Annars staðar verður vindur hægari en almennt verður nokkuð vindasamt á landinu. Framan af morgundeginum verður einnig nokkuð hvasst. 8 9 10 9 8 8 8 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur NEYTENDAMÁL Forvarsmenn og lögmaður Kredia ehf. funduðu í gær með talsmanni neytenda og lögfræðingum frá Neytendastofu og Fjármálaeftirlitinu. Efni fund- arins var umdeild smálán á háum vöxtum sem Kredia býður nú í gegnum sms-skilaboð. Aðspurður segir Gísli Tryggva- son, talsmaður neytenda, sem gagnrýnt hefur lán af þessu tagi, fundinn hafa gengið mjög vel. Góður vilji hafi verið af allra hálfu til að meta hvaða úrbóta væri þörf og ráðast í þær. „Það er erfitt að sporna við þessu, því hér ríkir atvinnufrelsi. En ef þetta fer að festa rætur vill maður að þetta verði gert eins vel og faglega og hægt er,“ segir Gísli. - sh FME og neytendastofnanir: Funduðu um SMS-lán Kredia ALÞINGI. Frumvarp Árna Páls Árnasonar, félags- og trygginga- málaráðherra, um aðgerðir til að leiðrétta greiðslubyrði og aðlögun skulda heimilanna verður kynnt þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna í dag. Ríkisstjórnin heimilaði fram- lagningu frumvarpsins á fundi sínum í gær. Áður en því verður dreift á Alþingi þurfa þingflokk- ar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna að fjalla um frumvarpið og samþykkja framlagningu þess fyrir sitt leyti. -pg Frumvarp um skuldir heimila: Lagt fyrir þing- flokkana Vilja menningarfulltrúa Menningarnefnd Borgarbyggðar segir að jafnvel þótt sveitarfélagið þurfi að spara sé vanhugsað að fella niður starf menningarfulltrúa sem unnið hafi mikið og gott starf. BORGARBYGGÐ ICESAVE-MÓTMÆLI Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir mikilvægt að opnað sé á umræðu um óhefðbundnar leiðir í því óhefðbundna ástandi sem nú ríkir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þetta hefur ekki verið rætt í ríkisstjórninni og að ég held bara ekkert í stjórn- sýslunni,“ segir Gylfi Magn- ússon viðskiptaráðherra um þá hugmynd Viðskiptaráðs Íslands að lífeyrissjóðirnir láni ríkinu fyrir Icesave- skuldbindingunum. „Þetta slær mig afskap- lega illa,“ segir Gylfi. „Mér líst ekkert á að vera að hætta stórfé frá lífeyrissjóðunum í þetta. Það liggur fyrir að það er búið að bjóða okkur lán frá Hollandi og Bretlandi sem er á betri kjörum en ég held að lífeyrissjóð- irnir gætu sætt sig við að bjóða. Ég fæ því hvorki séð að þetta myndi leysa neinn vanda né að þetta væri réttlætanleg ráðstöfun á fé lífeyrissjóðanna.“ SLÆR MIG AFSKAPLEGA ILLA GYLFI MAGNÚSSON GENGIÐ 13.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 236,0183 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,05 124,65 196,02 196,98 183,9 184,92 24,700 24,844 22,092 22,222 17,744 17,848 1,384 1,392 196,89 198,07 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR RÚSSLAND, AP Hillary Clinton tókst ekki að fá rússnesk stjórnvöld til þess að standa að sameiginlegum hótunum um refsiaðgerðir gegn Íran. Rússar eru þó sammála Bandaríkjamönnum um að Íran- ar eigi ekki að fá að koma sér upp kjarnorkuvopnum, en þeir telja refsiaðgerðir ekki þjóna tilgangi núna. „Sem stendur á að beina öllum krafti að því að styðja samninga- viðræður,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, á sameiginlegum blaðamannafundi með Clinton í Moskvu í gær. „Hót- anir, refsiaðgerðir og hótanir um að beita þrýstingi í núverandi stöðu, myndu að okkar mati gera illt verra.“ Hillary Clinton kom til Moskvu í gær. Hún segist ekki hafa beðið Lavrov um stuðning við refsiaðgerðir, en engu að síður sögðust Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir vonbrigðum með yfir- lýsingar Rússa. Hún sagðist þó sammála Lavrov um mikilvægi samningaviðræðna. Síðar um daginn hitti hún Dmitrí Medvedev, forseta Rúss- lands. Vladimír Pútín forseti var hins vegar staddur í Kína í gær þar sem hann undirritaði stór- an orkusamning við kínversk stjórnvöld. - gb Rússar ósammála Bandaríkjamönnum um viðbrögð við kjarnorkuáætlun Írana: Telja refsiaðgerðir gagnslausar HILLARY CLINTON OG SERGEI LAVROV Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands á fundi í Moskvu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.