Fréttablaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 8
8 14. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
ÁRÉTTING Forsetaritari sendi í gær
ritstjóra Fréttablaðsins bréf þar
sem mótmælt er „ítrekuðum rang-
færslum sem fram koma í fréttum
blaðsins vegna þeirra bréfa forseta
Íslands sem Rannsóknarnefnd
Alþingis fékk í hendur“.
Í bréfinu eru gerðar efnislegar
athugasemdir við tvennt.
Í fyrsta lagi að hinn 5. október
var staðhæft í undirfyrirsögn að
Rannsóknarnefnd Alþingis hefði
til skoðunar „sautján bréf frá for-
seta Íslands til erlendra aðila í
þágu bankanna“.
Forsetaritari segir í bréfi sínu
að alrangt sé um að ræða sautján
bréf í þágu bankanna.
Í þessu samhengi er rétt að
ítreka að Rannsóknarnefnd
Alþingis óskaði ekki eftir aðgangi
að öðrum bréfum forsetans en
þeim sem skrifuð voru til stuðn-
ings íslenskum fjármálastofnunum
eða fyrirsvarsmönnum þeirra.
Svar forsetaembættisins fólst í
því að senda Rannsóknarnefndinni
þau sautján bréf sem Fréttablaðið
vísar til. Það er á þessu mati for-
setaembættisins sem orðalagið í
frétt Fréttablaðsins er byggt á.
Í öðru lagi vísar forsetaritari
til þess að í yfirfyrirsögn fréttar
blaðsins í gær um neitun forsetans
við því að gera bréfin opinber sé
talað um „sautján bréf til þjóðhöfð-
ingja í þágu bankanna“.
Þessi athugasemd á rétt á sér
því einungis átta bréfanna sautj-
án voru skrifuð þjóðhöfðingjum.
Átta bréfanna voru hins vegar
send ýmsum útlendum fyrirmenn-
um, öðrum en þjóðhöfðingjum,
þar á meðal Bill Clinton, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta, Al Gore,
fyrrverandi varaforseta Banda-
ríkjanna, og krónprinsinum af
Abu Dhabi. Sautjánda bréfið er til
Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Fréttablaðið vísar að öðru leyti
á bug staðhæfingum í bréfi for-
setaritara um rangfærslur og vill-
andi fullyrðingar í blaðinu um bréf
forsetans.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær hefur blaðið kært neitun
forsetaembættisins við afhendingu
bréfanna sautján til úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál.
Blaðamaður Fréttablaðsins
hefur jafnframt óskað eftir því
að forsætisráðherra ógildi synjun
forsetans enda er forseti Íslands
ábyrgðarlaus á stjórnarathöfn-
um, samkvæmt 11. grein stjórnar-
skrárinnar.
Ákvörðunin um að gera efni
bréfanna ekki opinbert fyrr en
eftir þrjátíu ár er því tekin á
ábyrgð Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra.
Er persónukjör leið
til aukins lýðræðis?
Kvennahreyfi ng Samfylkingarinnar boðar til opins
fundar í Samfylkingarsalnum Hamraborg 11, í Kópavogi
fi mmtudaginn 15. október kl. 20:00.
Framsögumenn:
Þorkell Helgason, stærðfræðingur
Auður Styrkársdóttir, stjórnmálafræðingur
Valgerður Bjarnadóttir, alþingismaður
Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrv. alþingismaður og ráðherra
Fundarstjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður
Kvennahreyfi ngar Samfylkingarinnar.
www.xs.is Allir velkomnir
1. Drög að frumvarpi til nauðasamninga og afstaða kröfuhafa til
þess kynnt.
2. Tillaga stjórnar félagsins um að hluthafafundur feli stjórninni
að leita eftir heimild héraðsdóms til nauðasamningsumleitana.
DAGSKRÁ
Atorka Group hf Miðvikudaginn 21. október 2009 kl. 10:00 Hótel Hilton Nordica
Stjórn Atorku Group hf.
Dagskrá fundarins og tillaga stjórnar félagsins í samræmi
við framangreint munu liggja frammi til sýnis fyrir hluthafa á
skrifstofu félagsins frá og með 14. október 2009.
WWW.N1.IS Meira í leiðinni
Láttu ekki veturinn
koma þér á óvart!
Frábært úrval af dekkjum, dekkjahótel og betri þjónusta
Þú færð skjóta og góða hjólbarðaþjónustu hjá N1. Við bjóðum upp á eitt mesta úrval
landsins af hjólbörðum og geymum sumardekkin á dekkjahóteli fyrir þá sem vilja.
Renndu við hjá okkur þegar þér hentar, við tökum vel á móti þér!
Bíldshöfða 2 Reykjavík sími 440 1318
Réttarhálsi 2 Reykjavík sími 440 1326
Fellsmúla 24 Reykjavík sími 440 1322
Ægisíðu 102 Reykjavík sími 440 1320
Hjólbarðaþjónusta N1 er á eftirtöldum stöðum:
Langatanga 1a Mosfellsbæ sími 440 1378
Reykjavíkurvegi 56 Hafnarfirði sími 440 1374
Dalbraut 14 Akranesi sími 440 1394
Grænásbraut 552 Reykjanesbæ sími 440 1372
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Mótmæli skrifstofu forseta
FANGELSISMÁL Fjölmennt lið fór í
allsherjarleit, þar á meðal að fíkni-
efnum og sterum, í fangelsinu á
Kvíabryggju í gær. Leitin stóð í
allan gærdag. Tilefni hennar var
að kanna almennt ástand mála í
fangelsinu. Þar höfðu sterar og tól
til að nota þá fundist fyrir nokkru,
samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins.
Páll E. Winkel, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar, vildi ekki tjá
sig um árangur leitarinnar þegar
Fréttablaðið leitaði eftir því í gær-
kvöld. Hann sagði þó að alltaf
mætti búast við að gerð yrði slík
hefðbundin leit í fangelsum ríkis-
ins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins leitaði tæplega tuttugu
manna hópur fangavarða og lög-
reglu í fangelsinu öllu, bæði klef-
um og sameiginlegum rýmum. Þá
voru tveir fíkniefnahundar notað-
ir við leitina. Þá var öllum föng-
um gert að skila þvagsýni til að
athuga hvort þeir hefðu notað ólög-
leg efni.
Spurður hvað gerðist ef menn,
vistaðir í opnu fangelsi, yrðu upp-
vísir að neyslu ólöglegra efna sagði
Páll að sá sem gerðist sekur um
agabrot yrði að líkindum fluttur í
lokað fangelsi.
„Tilgangur þessa er að halda uppi
öryggi í fangelsinu,“ segir Páll. - jss
KVÍABRYGGJA Leitað var hátt og lágt að ólöglegum efnum á Kvíabryggju í gær.
Fjölmennt lið fór í allsherjarleit á Kvíabryggju í gær:
Fangar skiluðu þvagsýni
STJÓRNSÝSLA Alþingi ætti að þurfa að samþykkja
dómaraskipanir dómsmálaráðherra, ef ráðherrann
ákveður að sniðganga álit matsnefndar um hæfi
umsækjenda. Þetta er meðal tillagna nefndar á
vegum dómsmálaráðuneytisins um endurskoðun
reglna um dómaraskipanir.
Nefndin skilaði skýrslu um málið í gær.
Í henni eru lagðar til ýmsar breytingar, til
dæmis að sömu reglur gildi um skipan hér-
aðsdómara og hæstaréttardómara, fjölg-
að verði í dómnefnd um hæfi
umsækjenda og að Hæstirétt-
ur veiti ekki lengur umsögn
um umsækjendur, heldur gefi
dómnefndinni skýrslu um það
hverjar þarfir réttarins eru
hverju sinni.
Nefndin sér ekki ástæðu
til að svipta dómsmálaráðherra skipunarvaldi. Hins
vegar er lagt til að ef ráðherra kjósi að ganga þvert
gegn hæfismati dómnefndar, líkt og dæmi eru um,
skuli málið koma til kasta Alþingis. Alþingi þurfi
þá að staðfesta tillögu ráðherra eða hafna henni.
Sé henni hafnað sé ráðherra bundinn af tillögu
dómnefndar.
„Hér er um nokkurs konar neyðarhemil að
ræða. Líkur eru á því að það fæli ráðherra frá
því að skipa ómálefnalega í embætti ef hann veit
að Alþingi kemur þá til sögunnar,“ segir í skýrslu
nefndarinnar. - sh
Reynt að taka fyrir ómálefnalegar dómaraskipanir með nýjum tillögum:
Alþingi verði neyðarhemill
ÁRNI MATHIESEN Árni M. Mathiesen, þá
settur dómsmálaráðherra, skipaði í lok
árs 2007 Þorstein Davíðsson í embætti
héraðsdómara, þótt þrír hefðu verið
metnir mun hæfari. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ágæti ritstjóri Fréttablaðsins.
Skrifstofa forseta Íslands vill
mótmæla ítrekuðum rangfærslum
sem fram koma í fréttum blaðsins
vegna þeirra bréfa forseta Íslands
sem Rannsóknarnefnd Alþingis
fékk í hendur. Í fyrstu frétt blaðsins
um málið frá 5. október 2009 var
fullyrt í undirfyrirsögn að um væri
að ræða „sautján bréf frá forseta
Íslands til erlendra aðila í þágu
bankanna“. Í frétt blaðsins í dag 13.
október 2009 segir í yfirfyrirsögn að
forsetaembættið vilji ekki „afhenda
sautján bréf til þjóðhöfðingja í
þágu bankanna“. Efnisatriði beggja
fréttanna eru síðan í sama stíl og
þessar rangfærslur.
Alrangt er að hér sé um að ræða
sautján bréf „í þágu bankanna“,
hvað þá heldur „sautján bréf til
þjóðhöfðingja í þágu bankanna“.
Hið sanna er, eins og skýrt kemur
fram í bréfi skrifstofu forseta til
Rannsóknarnefndar Alþingis sem
blaðamaður Fréttablaðsins Pétur
Gunnarsson fékk afhent afrit af,
að aðeins eitt bréf var skrifað í
þágu banka eða fjármálafyrirtæk-
is og aðeins hluti bréfanna er til
þjóðhöfðingja. Eina bréfið sem
skrifað var í þágu fjármálastofnunar
var bréf til forseta Kasakstans
vegna Creditinfo sem er fyrirtæki
sem sérhæfir sig í hugbúnaði sem
auðveldar bönkum og fjármálafyrir-
tækjum að halda skrár yfir skuldara
og vanskilamenn.
Í bréfinu til Rannsóknarnefndar
Alþingis segir ennfremur skýrt:
„Þá er í fáeinum bréfum öðrum
vikið að starfsemi íslenskra banka
í tilteknu landi en þá jafnframt
fjallað um ýmis efnisatriði önnur
sem varða samvinnu Íslands og
viðkomandi lands, t.d. á sviði orku-
og umhverfismála, vísinda, tækni,
heilbrigðismála, menntunar og
menningar. Loks er í örfáum bréfum
vikið að bönkunum í framhjáhlaupi
og einu sinni nefnt það áhugamál
fyrirsvarsmanns eins þeirra að fá
William Jefferson Clinton, fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, til að
halda ræðu á Íslandi.“
Bréfið sem Fréttablaðið hefur
undir höndum sýnir því skýrt hve
rangar og villandi fyrrgreindar full-
yrðingar í yfir- og undirfyrirsögnum
og annarri frásögn eru. Skrifstofa
forseta Íslands mælist eindregið til
þess að Fréttablaðið sem vill vera
vandað í sínum fréttaflutningi setji
ekki slíkar rangfærslur í fyrirsagnir
né endurtaki þær í meginmáli frétta.
Örnólfur Thorsson
BRÉF FORSETARITARA