Fréttablaðið - 19.10.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.10.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er mánudagurinn 19. okt- óber 2009, 292. dagur ársins. 8.30 13.13 17.54 8.21 12.57 17.32 Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu SÓLARLOTTÓ KANARÍ Skráðu þig í netklúbb Plúsferða og vertu fyrstur til að fá bestu tilboðin! Engin bókunargjöld ef bókað er á netinu. Bókaðu betur í vetur á www.plusferdir.is Fyrstur kemur, fyrstur fær! Nóvember og desember Kanarí - 11 nætur Verð frá: 99.500 kr. m.v. tvo í stúdíóíbúð. Brottfarir 14. nóv - 14 nætur og 28. nóv - 11 nætur. Kanarí - 11 nætur Verð frá: 139.900 kr. m.v. tvo í herbergi og "allt innifalið".* Brottfarir 14. nóv - 14 nætur og 28. nóv - 11 nætur. * Fullt fæði og allir drykkir og snarl milli mála. ALLT INNIFALIÐ! Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Hvar er þín auglýsing? 35% 72% Fyrir bara tveimur örstutt-um árum vorum við á hátindi oflætisins og okkur allir vegir færir. Rjómi íslenska aðalsins spókaði sig í bönkum og kauphöll- um heimsins og gerði feita díla á báðar hendur, svo rosalega snjalla. Við hin vorum reyndar ábekingar en höfðum ekki hugmynd um það. Skammsýni okkar og trúgirni borgum við nú dýru verði. Eins og undanfarið ár hafi ekki verið nógu harkalegur skellur á hrjáðri þjóð, þá byrjar vetur númer tvö af engu minna offorsi. Ofan á efna- hagshörmungar bætast fleiri ógnir gegn heimilum og heilsu- fari. Öfugt við stemminguna fyrir tveimur árum þegar við vorum öll svakalega alþjóðleg og smartheitin komu viðstöðulaust frá útlöndum, þá kemur nú þaðan ekkert nema lífshætta. ENGINN vill lána okkur peninga fyrr en við göngumst við ábyrgð- unum. Þetta viðhorf kemur skyndi- lega mjög á óvart, einkum hjá þeim sem mest töluðu um ábyrgð einstaklingsins. Valið stendur nú á milli þess að gangast við part- ískemmdunum eða missa æruna. Ofan á þetta einelti umheimsins, er allt hér að fyllast af erlendum þjófagengjum sem hafa það eina markmið að rýja okkur endanlega inn að skinninu. Og ofan á þessar eitruðu sendingar frá útlöndum bætist svínaflensa í okkar volaða eymdarpytt. VARLA birtist lengur nokkur aug- lýsing um flatskjái eða fjölskyldu- brunch og lífsstílsblöðin eru full af ráðleggingum um nýtni og endur- vinnslu. Einu auglýsendurnir sem ná máli eru öryggisfyrirtækin. Þau lofa okkur því að ef við fjár- festum í þjófavarnarkerfum getum við róleg skroppið að heiman dag- stund. Þegar ég hugsa málið vel finnst mér eitthvað bogið við rök- semdafærsluna án þess að draga góðan vilja þeirra í efa, nývöknuð tortryggni mín krunkar eitthvað um falskt öryggi. AUÐVELDAST í heimi er að selja óttaslegnum vernd. Áhættusækn- in er alveg dottin úr tísku, örygg- isþörfin hefur tekið völd. Til vonar og vara er nú best að áframsenda til tíu vina öll keðjubréf sem lofa hamingju, annars mun ógæfan vís- ast ríða yfir. Þvo sér látlaust um hendur, hósta í bréfþurrku, heilsa úr fjarlægð og snerta hvorki hand- rið né hurðarhúna. Skilja húsið aldrei eftir mannlaust og sofa með annað augað opið. Tvílæsa á eftir sér, slökkva átta sinnum á eldavél- inni og stíga aldrei nokkurn tíma á strik. Til öryggis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.