Fréttablaðið - 19.10.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.10.2009, Blaðsíða 8
8 19. október 2009 MÁNUDAGUR ÍS L E N S K A /S IA .I S /S A L 4 76 96 1 0. 09 SAMTÖK ATVINNULÍFSINS EFNA TIL OPINS FUNDAR MIÐVIKUDAGINN 21. OKTÓBER Á HÓTEL LOFTLEIÐUM KL. 8:00-10:00 STÖÐUGLEIKASÁTTMÁLINN Félagsmenn SA eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar. DAGSKRÁ 8:00 Morgunkaffi og skráning 8:30 FRAMSÖGUR: Vilmundur Jósefsson, formaður SA Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA UMRÆÐUR OG FYRIRSPURNIR 10:00 Fundi lýkur NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU Á VEF SA WWW.SA.IS BÆKUR Forlagið er stærsta bóka- útgáfan á Íslandi og gefur um 200 titla út á árinu. Egill Örn Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Forlags- ins, segir að þrátt fyrir að bóka- verð hjá þeim hækki á milli ára sé sú hækkun minni en almenn verðlagsþróun á Íslandi. „Í fyrra hækkaði verðið ekki neitt, þrátt fyrir uppsafnaða hækkunarþörf og aukinn kostnað,“ segir Egill. „Hjá Forlaginu gerum við ekki ráð fyrir að verðið hækki um meira en tíu til fimmtán prósent á milli ára, sem er undir almenn- um verðhækkum. Mér sýnist að heildsöluverð á skáldsögum geti því orðið rúmar 5000 krónur.“ Forlagið gefur út færri titla í ár en í fyrra en Egill á þó ekki endi- lega von á samdrætti í bóksölu. „Það sem af er ári hefur mark- aðurinn verið afskaplega góður. Bókin er tísku, ef svo má segja, eins og nýafstaðinn lagermarkað- ur Forlagsins er til vitnis um. Þar seldum við fleiri bækur en nokkru sinni í sex ára sögu markaðarins. Við erum því bjartsýn fyrir jólin í ár.“ Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti-Veröld býst við að verð- hækkanir á þeirra bókum verði einnig á bilinu tíu til fimmtán pró- sent. „Bókaverð hefur ekki fylgt almennri verðlagsþróun undan- farin ár heldur nánast staðið í stað,“ segir hún. „Bókin hefur því orðið hlutfalls- lega ódýrari með hverju árinu. Með gengishruninu snarhækkaði hins vegar kostnaðurinn, aðal- lega pappírsverðið. Þær hækk- anir hefðu að einhverju leyti átt að koma inn í verðið í fyrra en við ákváðum að halda aftur af verðhækkunum eins lengi og við gætum.“ Kostnaðarhækkunin verði hins vegar ekki flúin leng- ur. „Við fylgjum ekki almennri verðþróun heldur er þetta allra nauðsynlegasta hækkun á verði. Bókaútgefendur eru ekki að fá sömu framlegð og fyrir tíu árum.“ Sem dæmi um algengt verð á skáldsögu fyrir þessi jól nefnir Guðrún Harm englanna eftir Jón Kalman Stefánsson; leiðbeinandi verð á henni er 5.680 krónur. Þrátt fyrir samdráttarskeið ætlar Bjartur ekki að rifa segl- in í útgáfunni og koma ívið fleiri titlar út á vegum útgáfunnar í ár en í fyrra. „Bóksala hefur gengið vel undanfarið ár og við förum því kokhraust í jólavertíðina í ár.“ bergsteinn@frettabladid.is Verð á bókum hækkar um 10 til 15 prósent Bókaútgefendur búast við góðri bókasölu fyrir jólin þrátt fyrir að verð á bókum hækki nú um 10 til 15 prósent. Lágmarkshækkun, segja útgefendur. Inn- bundin skáldsaga kostar á sjötta þúsund krónur. GUÐRÚN VILMUNDADÓTTIR EGILL ÖRN JÓHANNSSON BÓKAFLÓÐ Að sögn bókaútgefenda hækkaði bókaverð ekki í fyrra þrátt fyrir upp- safnaða hækkunarþörf. Ekki hafi verið komist hjá verðhækkunum í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 Hvaða ráðherra var hrakinn úr púlti þegar hann hugðist flytja ræðu á ráðstefnu í Há- skóla Íslands á föstudag? 2 Hver er nýr formaður Viðskiptaráðs Íslands? 3 Hvaða markvörður var seldur frá KR til Lilleström? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 Auglýsingasími – Mest lesið VIÐSKIPTI Glitnir eignarhaldsfé- lag hefur stefnt Existu vegna van- skila á afborgunum lána og kref- ur félagið um 650 milljónir króna vegna vanefnda. Lánið er skulda- bréfaflokkur upp á tíu milljarða króna sem gefinn var út í lok maí 2007. Glitnir eignarhaldsfélag er dótt- urfélag Glitnis og er stýrt af skila- nefnd bankans. Í því eru skulda- bréf nokkurra fyrirtækja. Þetta er ekki eina krafan gegn Existu en skilanefnd Kaupþings hefur sömuleiðis stefnt félaginu fyrir dóm vegna skuldar upp á tuttugu milljarða króna og Nýja Kaupþing kært það til sérstaks saksóknara vegna sölu á Bakka- vör og hlutafjáraukningu. Þá hefur Kauphöllin margoft áminnt félagið vegna brota á til- kynningaskyldu en allir fjármála- gerningar Existu voru teknir úr viðskiptum í vikunni. Kröfurnar eru liður í deilum Existu við bankana, sem staðið hafa yfir frá hruni fyrir ári, um uppgjör afleiðusamninga félags- ins í erlendri mynt. Stjórnendur Existu hafa áður lýst því yfir að eina leiðin til að gera upp málin verði fyrir dómstólum. Þeir kröfuhafar sem rætt var við um stöðu Existu segjast hafa reynt til þrautar að semja um lausn mála. Það hafi litlu skilað og sæti undrun hvað menn þrjóskist lengi við að halda lífi í fyrirtækinu. - jab Skilanefndir bankanna þrengja að Existu vegna vanskila á afborgunum lána: Vanskil nema tugmilljörðum STJÓRNENDUR EXISTU Uppgjör Existu við bankana verður fyrir dómstólum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NOREGUR, AP Fjórir af hverjum tíu þingmönnum Noregs vilja afnema konungdæmi og taka upp lýðveldisskipulag. Þetta er niðurstaða skoðana- könnunar sem norska ríkisút- varpið, NRK, gerði meðal þing- manna á norska þjóðþinginu. Alls sögðust 68 af 169 þingmönnum vilja leggja niður konungdæmið. Árið 2001 gerði dagblaðið Verdens Gang sams konar könn- un. Þá vildu 57 þingmenn leggja niður konungdæmið. Samkvæmt skoðanakönnun dagblaðsins Aftenposten árið 2004 vildu þó aðeins 17 prósent Norðmanna leggja niður konungdæmið. - gb Skoðanakönnun í Noregi: Konungssinn- um fækkar VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.