Fréttablaðið - 26.10.2009, Page 2
2 26. október 2009 MÁNUDAGUR
STJÓRNMÁL Um 300 listaverk í eigu
Íslandsbanka og Nýja Kaupþings
eru talin mikilvæg þjóðararfi og
eigi því ekki að fara úr ríkiseigu.
Þetta kemur, samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins, fram í mati sem
unnið hefur verið á listaverkasöfn-
unum. Viðræður hafa verið í gangi
á milli ríkisvaldsins og banka-
stjórnanna um verkin og er búist
við að málið klárist í næstu viku.
Þau listaverk sem mikilvæg
þóttu voru sett í tvo flokka, a og
b. Í a flokki eru verk sem talin eru
mikilvæg fyrir íslenska listasögu.
Slík eru talin vera ríflega 100 í
Íslandsbanka og nálega 200 í Nýja
Kaupþingi. Í flokki b eru verk sem
ættu að vera aðgengileg þjóðinni á
opinberum stöðum. Um 100 verk í
þeim flokki eru í Íslandsbanka og
200 í Nýja Kaupþingi. Þar að auki
er fjöldi verka sem ríkið mun ekki
ásælast. Samanlagt nema þessir
flokkar fimmtungi af listaverka-
eign Íslandsbanka og þriðjungi hjá
Kaupþingi.
Ekki er ætlunin að ríkið kaupi
verkin þegar í stað, heldur öðlist
kauprétt að þeim. Þá er verið að
semja um möguleika á að bankarn-
ir gefi einhver verk. Um þónokk-
ur verðmæti er að ræða, en stuðst
verður við bókfært mat verkanna
við uppgjör bankanna. Það er
þó talið töluvert undir markaðs-
virði.
Um listaverk Landsbankans
gildir öðru máli þar sem hann
verður áfram í eigu ríkisins. Þar
er að finna stærsta listaverkasafn-
ið í bönkunum þremur.
Fjöldi verkanna er slíkur að
ríkið á í raun ekki hægt um vik
með að geyma þau. Þau eru því
talin best geymd þar sem þau eru,
í bönkunum, að því gefnu að ríkið
eignist kauprétt að þeim.
Samið verður við bankastjórnir
um að verkin verði reglulega til
sýnis. Þar hjálpar hefðin, því
bankarnir þykja í gegnum tíðina
hafa verið duglegir við að sýna
verk sín. kolbeinn@frettabladid.is
Þrjú hundruð verk
mikilvæg þjóðararfi
Búið er að meta listaverkasöfn bankanna tveggja sem eru á leið úr ríkiseigu.
Talið er mikilvægt að ríkið eignist 300 verkanna. Verkin verða ekki keypt strax
en kaupréttur hins opinbera tryggður. Samið verður við bankana um sýningar.
STJÓRNMÁL Háttsettur norður-kór-
eskur erindreki ræddi óvænt við
bandarískan kollega sinn í heim-
sókn sinni til Bandaríkjanna.
Erindrekinn, Ri Gun, ræddi við
fulltrúa Bandaríkjanna í New
York, samkvæmt yfirlýsingu frá
bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Bandaríkjamenn hafa óskað eftir
því að Norður-Kóreumenn hefji
við þá viðræður á nýjan leik um
kjarnorkuáætlun sína. Norður-
og Suður-Kórea, Kína, Rússland,
Japan og Bandaríkin hafa tekið
þátt í viðræðunum. Í apríl síðast-
liðnum drógu N-Kóreumenn sig út
úr viðræðunum en í síðasta mánuði
vildu þeir hefja þær á ný. - fb
Fulltrúar N-Kóreu og BNA:
Ræddu kjarn-
orkuáætlunina
Flosi Ólafsson, leikari, leik-
stjóri og rithöfundur er látinn.
Hann lætur eftir sig eigin-
konu, Lilju
Margeirs-
dóttur og tvö
börn, Önnu
og Ólaf.
Flosi
slasaðist
alvarlega
í bílslysi í
Borgarfirði
á miðviku-
daginn og
var fluttur á gjörgæsludeild
Borgarspítalans. Á fimmtu-
dag var talið að hann væri
úr lífshættu. Honum hrakaði
hins vegar og lést á laugardag.
Flosi hefði orðið áttræður á
morgun.
Flosi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
árið 1953. Hann nam leiklist
við Leiklistarskóla Þjóðleik-
hússins á árunum 1956-58 og
leikstjórn og þáttagerð hjá
breska ríkisútvarpinu BBC á
árunum 1960-61. Hann leik-
stýrði fjölda leikrita og þátta
fyrir útvarp og sjónvarp. Þá
lék hann í mörgum leikritum
í Þjóðleikhúsinu sem og kvik-
myndum. Flosi skrifaði og
þýddi bækur, leikrit, söngleiki
og gamanóperur.
Flosi látinn
FLOSI ÓLAFSSON
STJÓRNMÁL Rétt rúmlega helmingur
frambjóðenda í alþingiskosningun-
um í vor hafði skilað fjárhagslegu
uppgjöri vegna framboðsins til
Ríkisendurskoðunar í föstudags-
lok. Skilafrestur rann svo út á mið-
nætti í nótt.
Samkvæmt lögum um fjármál
stjórnmálasamtaka eiga
frambjóðendur sem eyða
meira en þrjú hundruð
þúsund krónum í fram-
boð sitt að skila fjárhags-
legu uppgjöri.
Þeir sem eyða þrjú
hundruð þúsund krón-
um eða minna þurfa ein-
ungis að skila inn yfir-
lýsingu um að kostnaðurinn hafi
ekki verið meiri en svo.
Alls átti 321 frambjóðandi að
vera búinn að skila uppgjöri eða
yfirlýsingu í gær. Fyrir rúmum
mánuði höfðu einungis fimmtíu
svarað Ríkisendurskoðun.
Lárus Ögmundsson, skrifstofu-
stjóri hjá Ríkisendurskoðun, segir
enn óákveðið hvernig nákvæmlega
verður farið með upplýsingarn-
ar, spurður hvort birt verði nöfn
þeirra sem kunna að hafa kosið að
svara ekki.
„Við eigum að birta útdrátt úr
uppgjörunum, en þetta er í fyrsta
sinn sem við gerum þetta svo við
þurfum kannski einhvern tíma til
að ganga frá þessu,“ segir hann.
- kóþ
Frestur til að skila uppgjöri frambjóðenda til Ríkisendurskoðunar rann út í gær:
Helmingur skilaði fyrir helgi
ALÞINGI Allir frambjóðendur áttu að hafa
skilað fjárhagslegu uppgjöri fyrir miðnætti,
en rétt rúmur helmingur hafði lokið því í
dagslok á föstudag.
EFNAHAGSMÁL „Þessir fletir geta alltaf komið upp í
rannsóknum á efnahagsbrotum. Við gefum þessu
gaum ásamt öðru,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari. Í netútgáfu breska dagblaðsins
Times sagði í gær að þeir sem rannsaki hrun Glitn-
is, Kaupþings og Landsbankans skoði hvort ásak-
anir um peningaþvætti eigi við rök að styðjast auk
óvenjulegra lánveitinga til aðila þeim tengdum.
Blaðið segir skjöl um málið hafa gengið á milli
þeirra sem rannsaki hrunið hér, í Danmörku og hjá
Serious Fraud Office í Bretlandi.
Ekstra Bladet í Danmörku birti röð greina um
íslenskt viðskiptalíf haustið 2006 þar sem fullyrt
var að útibú Kaupþings (þá KB banka) í Lúxemborg
hefði komið fjármunum rússneskra auðmanna fyrir
í skattaskjólum og fjármunir þvegnir. Kaupþing
höfðaði meiðyrðamál gegn blaðinu. Sættir náðust.
Þá sagði rússneski auðmaðurinn Boris Berezov-
skí, sem er svarinn andstæðingur Vladimírs Pútín
forseta Rússlands, í byrjun árs að landar sínir sem
hliðhollir eru stjórnvöldum, hafi þvegið peninga hér
á landi.
Hjá embætti sérstaks saksóknara eru 49 mál í
skoðun og er sjö lokið. Enginn sem tengist gömlu
bönkunum hefur verið kallaður til sérstaklega
vegna rannsóknar um peningaþvætti, að sögn Ólafs.
- jab
Ásakanir um peningaþvætti bankanna komnar upp á yfirborðið á nýjan leik:
Saksóknari skoðar 49 mál
ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON 49 mál tengd efnahagshruninu eru í
skoðun hjá embætti sérstaks saksóknara en sjö er lokið með
einum eða öðrum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KAUPÞING Í Kaupþingi eru um 200 verk sem talin eru mikilvæg fyrir íslenska
listasögu. Samningar hafa staðið á milli ríkisvaldsins og bankastjórna Kaupþings
og Íslandsbanka um hvað verður um verkin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HVÍTASUNNUDAGUR
Landsbankinn greiddi um
1,3 milljónir danskra króna
fyrir þetta verk Kjarvals á
uppboði í Kaupmanna-
höfn árið 2007.
LÖGREGLAN Nokkuð erilsamt var
hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu aðfaranótt sunnudags.
Ráðist var á mann fyrir utan
skemmtistaðinn Nasa. Tveir voru
handteknir grunaðir um árásina.
Þá var brotist inn í byggingu
Háskólans í Reykjavík. Náðist
til þjófanna og gistu þeir fanga-
geymslu lögreglunnar.
Þá var ráðist á vegfaranda við
Laugaveg á föstudag og hann
rændur. Þá var brotist inn í
verslunina Súkkulaði og rósir á
Hverfisgötu. Fjórir voru síðan
teknir fyrir ölvunarakstur. - sm
Nokkuð um innbrot í nótt:
Erilsamt hjá
lögreglu í nótt
Kristrún, verður hægt að
toppa síðasta gest Forlagsins?
„Þetta var vitanlega ákveðinn
hápunktur hjá okkur um helgina, en
sagan verður að leiða annað í ljós.“
Risinn Sultan Kösen heimsótti Ísland til
að kynna nýja Heimsmetabók Guinness.
Forlagið gefur bókina út. Kristrún
Heiða Hauksdóttir er kynningarfulltrúi
Forlagsins.
REYKJAVÍK Mörg hundruð manns
lögðu leið sína í Ráðhús Reykja-
víkur í gær, en þar fór fram
sérstakt Hugmyndaþing sem
borgarstjórnin efndi til. Þingið
var liður í stefnu borgaryfirvalda
sem á að auka
aðkomu íbúa að
stefnumótun
borgarinnar og
gátu borgarbú-
ar komið með
hugmyndir um
hvernig megi
gera borgina
að betri stað að
búa í. Áætlað er
að um þúsund
hugmyndir hafi
borist frá borgarbúum.
„Þetta gekk alveg ótrúlega
vel og hingað mætti mikill
fjöldi fólks sem er afar ánægju-
legt enda er þetta í fyrsta sinn
sem slíkt þing er haldið. Nú
eigum við eftir að vinna úr
öllum þessum hugmyndum og
finna þeim stað í sóknaráætlun
borgarinnar,“ segir Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri. - sm
Hugmyndaþing í Ráðhúsinu:
Hugmyndaríkir
borgarbúar
DÓMSMÁL Hópur lögfræðinga
undirbýr stefnu á hendur
íslenska ríkinu vegna Icesave-
samninganna sem nú liggja
fyrir. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær. Hópurinn telur
framkvæmdarvaldið hafa farið
út fyrir það umboð sem stjórnar-
skráin feli í sér. Í grunninn felst
dómsmálið í því að láta reyna
á heimildir stjórnvalda til að
skuldbinda ríkið samkvæmt
stjórnarskrá. Stefna í málinu er
ekki tilbúin.
Hópur lögfræðinga:
Stefnir ríkinu
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS