Fréttablaðið - 26.10.2009, Page 4

Fréttablaðið - 26.10.2009, Page 4
4 26. október 2009 MÁNUDAGUR Sælkerakjötfars 399 kr/kg Svikinn héri m/bacon 590 kr/kg Allir tilbúnir pottréttir 1.280 kr/kg Kjötkompaní, sími 578 9700. Dalshrauni 13, Hafnarfi rði STJÓRNMÁL Leiðtogar ríkja í suð- austurhluta Asíu eru saman- komnir í Taílandi til að ræða áætlanir um að stofna bandalag í anda Evrópusambandsins fyrir árið 2015. Yukio Hatoyama, for- sætisráðherra Japans, telur að með slíku bandalagi geti Asíuríki nýtt sér betur hraðari hagvöxt heimsálfunnar eftir kreppuna heldur en þann sem á sér stað í vestrænum ríkjum. „Það væri gott ef við hefðum metnað til að láta Austur-Asíu leiða heim- inn áfram,“ sagði Hatoyama. Tíu meðlimir yrðu í bandalaginu. - fb Leiðtogar Asíuríkja hittast: Vilja bandalag í anda ESB STJÓRNSÝSLA Ríkisstjórnin ákvað á föstudag að skipa nefnd til að endurskoða lög um stjórnarráð Íslands. Meðal þess sem skoðað verður eru starfshættir ríkis- stjórnarinnar. Nefndin verður skipuð fulltrúa forsætisráðherra sem jafnframt verður formaður, fulltrúa til- nefndum af fjármálaráðherra og utanaðkomandi sérfræðing- um. Nefndin á meðal annars að skoða auglýsingaskyldu starfa hjá hinu opinbera og stöðu pólit- ískra aðstoðarmanna, ráðningu, starfslok og fjölda. Þá verða heimildir um flutning embættis- manna innan Stjórnarráðsins til skoðunar. - kóp Ríkisstjórnin skipar nefnd: Stjórnarráðið í endurskoðun STJÓRNARRÁÐIÐ Endurskoða á lög um stjórnarráð Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ERLENT Átján manns létu lífið og um fimmtíu slösuðust þegar árekstur varð milli tveggja far- þegalesta rétt fyrir utan Kaíró í Egyptalandi í gær. Fyrri lestin hafði neyðst til að stöðvast eftir að hafa ekið á naut og eyðilagt gasleiðslur, seinni lestin skall stuttu síðar aftan á kyrrstæðu lestina með þeim afleiðingum að átján manns létust. - sm Lestarslys í Egyptalandi: Átján létu lífið FJÖLMIÐLAR Forsætisráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur neitar að gefa upp hvaða fólk hefur fengið viðtal við hana, síðan núverandi stjórn hóf störf 1. febrúar. Þetta er rökstutt í svarbréfi til blaðsins með því að stjórnvöldum beri ekki skylda til að veita slíkar upplýsingar, enda varða þær ekki eitt sérstaklega tiltekið mál. Samkvæmt upplýsingalögum eiga stjórnvöld ekki að þurfa að útbúa ný gögn til að upplýsa almenning, og er einnig vísað til þess í bréfinu. Miðað við það er hvergi til listi yfir þá sem hafa fengið viðtal við ráðherrann. Að lokum bendir ráðuneytið á að þeir, sem heimsótt hafa Jóhönnu, hafi ekki gert ráð fyrir því að upplýsingar um það yrðu gerðar opinberar. Greint hefur verið frá því í blaðinu að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að birta gestabók sína á heimasíðu Hvíta hússins. Sú birting verður þó ekki afturvirk heldur einungis með nöfnum gesta sem komu eftir að þessi ákvörðun var tekin. Forsetinn segir það rétt kjósenda að vita við hverja hann ræði áður en hann tekur stefnu- mótandi ákvarðanir. Niðurlag bréfs forsætisráðuneytis fjallar um að nú sé unnið að endurskoðun upplýs- ingalaga, meðal annars um að hvaða marki megi rýmka upplýsingarétt almennings. Þá er beðist velvirðingar á því hve lengi tók að svara fyrirspurninni, sem var send 24. september. Svarið var póstlagt 20. október, eftir ítrekanir blaðsins. Samkvæmt lögum á að svara fyrirspurnum innan sjö daga. - kóþ Forsætisráðuneytið vísar til þess að því beri ekki skylda til að gefa upplýsingar: Ekki verður sagt frá gestum Jóhönnu JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR BARACK OBAMA VIÐSKIPTI „Við erum að skoða fjöl- mörg mál. Umfangið hefur marg- faldast í rannsókn okkar,“ segir Gunnar Andersen, stjórnarfor- maður Fjármálaeftirlitsins. Hann staðfestir að eftirlitið sé nú með í kringum tuttugu mál til skoðunar vegna brota á gjaldeyrislögum. Brotin tengjast bæði fyrirtækj- um í útflutningi og annars konar milliríkjaviðskiptum. Alþingi samþykkti gjaldeyris- höft Seðlabankans, sem meðal ann- ars fólu í sér skilaskyldu á gjald- eyri, í enda nóvember í fyrra eftir hrun krónunnar og var með þeim vonast til að styrkja gengið. Það hefur ekki gengið eftir, svo sem vegna brota á skilaskyldu gjald- eyris. Um þrjátíu fyrirtæki eru með undanþágu frá gjaldeyrislög- unum. Seðlabankinn hefur fylgst náið með því hvort farið sé eftir gjald- eyrislögunum og sent þau mál til FME sem talin eru brjóta í bága við lögin. Eftirlit með lögunum hefur verið hert verulega frá í fyrra. Peninga- stefnunefnd Seðlabankans hefur margítrekað að veikt gengi standi í vegi fyrir lækk- un stýrivaxta. Þeir hafa stað- ið í tólf prósent- um frá í júní í sumar. Fréttablaðið greindi í vor og sumar frá því að einhver fyr- irtækjanna sem í hlut eigi hafi notað tekjur í erlendum gjaldeyri til kaupa á krónum á aflandsmark- aði og hagnast á gengismuni þar sem gengi krónunnar hefur alla jafna verið mun lægra erlendis en hér. Í einhverjum tilvikum hafa fyrirtækin farið eftir skilaskyldu og sent krónurnar heim að gjald- eyrisviðskiptum loknum. Mun minni gjaldeyrir skilar sér því til landsins vegna milliríkjaviðskipta en ella. Gunnar segir undanskot hjá gjaldeyrishöftum Seðlabankans hlaupa á allt frá nokkrum milljón- um króna til tugmilljóna. Ströng viðurlög eru vegna brota á gjald- eyrishöftunum. Sektargreiðslur einstaklinga geta numið allt að tuttugu milljónum króna en fyrir- tækja allt að 75 milljóna. Eftirlitið var með átta brot í skoðun um mitt ár og hefur þeim fjölgað mjög síðan þá. Gunnar segir sum þeirra tengjast. „Málin eru mjög flókin. Slóðin liggur þvers og kruss og leggir þeirra farið í gegnum marga milliliði erlendis. Þetta er mjög erfitt,“ segir hann en bætir við að vænta megi fyrstu niðurstaðna á næstu vikum. jonab@frettabladid.isw Tuttugu gjaldeyrismál til skoðunar hjá FME Málum vegna gruns um brot á gjaldeyrishöftum hefur fjölgað mikið hjá Fjár- málaeftirlitinu síðan í sumar. Undanskotin hlaupa á tugum milljóna króna í hvert sinn. Slóðin á bak við brotin er mjög flókin, segir stjórnarformaður FME. FÉLAGSMÁL Guðmundur Magnús- son var kosinn formaður Öryrkjabandalags Íslands á aðal- fundi félagsins á laugardag. Guðmundur hlaut 43 atkvæði en Sigursteinn R. Másson, sem var einnig í kjöri, hlaut 30 atkvæði. Guðmundur er fulltrúi Samtaka endurhæfðra mænu- skaddaðra í stjórn ÖBÍ og var varaformaður bandalagsins þar til nú. Í hans stað var Hjördís Anna Haraldsdóttir kjörin vara- formaður bandalagsins. Aðalfundur ÖBÍ ályktaði að alvarlegt ástand í efnahagsmál- um hér á landi hefði lagst mjög þungt á öryrkja sem hafa orðið að þola skerðingar á framfærslu- lífeyri. Öryrkjar hafi ekki notið góðærisins og eigi því sérstak- lega erfitt með að takast á við kreppu og kjaraskerðingu. - sm Nýr formaður ÖBÍ kjörinn: Guðmundur nýr formaður GUNNAR ANDERSEN VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 21° 14° 13° 14° 13° 16° 11° 11° 25° 16° 21° 17° 32° 8° 17° 19° 10° Á MORGUN Hvassviðri með SA- ströndinni annars hægari MIÐVIKUDAGUR Strekkingsvindur . 5 5 5 7 3 3 2 2 2 1 -2 3 3 3 2 2 1 1 2 3 1 2 6 3 3 3 5 5 4 7 75 Það verður hæglætisveður á landinu í dag en á morgun fer að hvessa með suðurströndinni og má búast við vætutíð þegar líður á vikuna. Góðu fréttirnar eru þær að veður verður milt, sérstaklega sunnanlands. Ingibjörg Karlsdóttir Veður- fréttamaður VAXTAÁKVÖRÐUNARFUNDUR Margoft hefur komið fram á vaxtaákvörðunarfundum Seðlabankans að veik staða krónunnar standi í vegi fyrir lækkun stýrivaxta. Brot gegn gjaldeyrislögum hefur í ár hamlað styrkingu hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÁ SLYSSTAÐ Átján manns létust í lestarslysinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ 23.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 235,6193 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,18 122,76 200,60 201,58 183,65 184,67 24,669 24,813 22,048 22,178 17,924 18,030 1,3330 1,3408 195,08 196,24 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.