Fréttablaðið - 26.10.2009, Qupperneq 6
6 26. október 2009 MÁNUDAGUR
ESB á mannamáli!
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Bræðraborgarstíg 9
„Einsog leiftrandi
spennusaga.“
Össur Skarphéðinsson,
utanríkisráðherra
Pétur Gunnarsson,
Fréttablaðinu
„Mikilvægt,
áhugavert innlegg.“
Bjarni Harðarson
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
LOKSINS!
ÍRAN, AP Fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna eru staddir í Íran þar
sem þeir ætla að rannsaka kjarn-
orkuver sem
leyndarhjúpur
hvíldi yfir þar
til fyrir mán-
uði.
Verið er
skammt frá
borginni Qom
og munu full-
trúarnir dvelja
í landinu í þrjá
daga.
Vesturveldin hafa deilt hart
við Írana um kjarnorkuáætlun
þeirra. Samkvæmt nýrri tillögu
sem hefur verið lögð fram eiga
Íranar að senda auðgað úran sitt
úr landi þar sem því yrði breytt í
eldsneyti.
Rannsóknin í Qom verður sú
fyrsta sem er gerð á kjarnorku-
verkinu á vegum Sameinuðu þjóð-
anna og Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar. - fb
Fulltrúar SÞ staddir í Íran:
Rannsaka leynt
kjarnorkuver
MAHMOUD
AHMADINEJAD
STJÓRNMÁL David Miliband, utan-
ríkisráðherra Bretlands, hefur
ekki í hyggju að bjóða sig fram
sem stjóra utanríkismála í Evr-
ópusambandinu. Jafnframt styð-
ur hann Tony Blair, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, sem
næsta forseta Evrópuráðsins.
Báðar stöðurnar verða að veru-
leika eftir að skrifað hefur verið
undir Lissabon-sáttmálann af
öllum 27 aðildarríkjum ESB.
Blair er talinn líklegastur til að
hreppa forsetastöðuna þó svo að
íhaldsmenn og frjálslyndir í Bret-
landi séu á móti því. Einnig hafa
nokkrar Evrópuþjóðir lýst yfir
andstöðu sinni á valinu. - fb
Utanríkisráðherrann Miliband:
Býður sig ekki
fram í ESB
EFNAHAGSMÁL Íslenskir banka-
menn voru þeir verstu í heimi,
segir Gylfi Magnússon viðskipta-
ráðherra á vef breska blaðsins
Times í dag.
„Þeim tókst
að ná tökum
á bankakerf-
inu og tíföld-
uðu það að
stærð, síðan
létu þeir það
hrynja – allt á
sex ára tíma-
bili. Þetta er
athyglisverður
árangur, í ákveðnum skilningi.
Bankamenn um allan heim eru
skammaðir, en ég held að eng-
inn komist nálægt þessu fólki,“
segir Gylfi.
Í greininni talar Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra
um þá kröfu almennings að
bankamenn sæti ábyrgð vegna
hrunsins.
- jhh
Viðskiptaráðherra í Times:
Verstu banka-
menn í heimi
GYLFI MAGNÚSSON
ÍRAK, AP Að minnsta kosti 132 fór-
ust og yfir fimm hundruð manns
slösuðust í tveimur bílasprengj-
um í Bagdad í gær. Sprengjurn-
ar sprungu með skömmu millibili
snemma í gærmorgun fyrir utan
dómsmálaráðuneytið í Bagdad og
skrifstofu borgarstjóra.
Byggingarnar eru skammt frá
Græna svæðinu þar sem margar
af helstu stjórnsýslubyggingum
Íraks er að finna ásamt sendiráði
Bandaríkjanna.
Þetta eru mannskæðustu árás-
irnar í Írak síðan í ágúst árið
2007 og koma þær þremur mánuð-
um eftir að Bandaríkjamenn létu
öryggismál í íröskum borgum í
hendur heimamanna. Sprenging-
unum hefur verið líkt við aðrar
sem áttu sér stað í ágúst síðastliðn-
um þegar bílsprengjur sprungu
fyrir utan tvö ráðuneyti. Þá fór-
ust að minnsta kosti eitt hundrað
manns.
Írakar segja að erlendir víga-
menn standi á bak við árásirn-
ar og hafa sakað Sýrlendinga um
aðild að þeim. Krefjast þeir þess
að Sameinuðu þjóðirnar rannsaki
málið.
Nouri Maliki, forsætisráðherra
Íraks, skoðaði ummerkin eftir
árásirnar og gaf síðar út yfirlýs-
ingu þar sem hann sakaði hryðju-
verkasamtökin Al Kaída og stuðn-
ingsmenn Saddams Hussein,
fyrrum forseta landsins, um verkn-
aðinn. „Þessar árásir sem voru
framkvæmdar af gungum mega
ekki hafa áhrif á vilja almennings
í Írak til að halda áfram barátt-
unni gegn gamla tímanum og gegn
hryðjuverkamönnum Al Kaída sem
hafa framkvæmt grimmilegan
glæp gegn saklausum borgurum,“
sagði Maliki, ómyrkur í máli.
Sprengingarnar koma á sama
tíma og íraska þingið reynir að
samþykkja nauðsynlega löggjöf til
að hægt verði að halda þingkosn-
ingar í janúar. Nauðsynlegt er að
þær gangi vel til að stöðugleiki
komist á í landinu eftir vanda-
mál undanfarinna sex ára. Banda-
ríkjamenn hafa í hyggju að fækka
hermönnum sínum í landinu eftir
kosningarnar og myndu allar tafir
á löggjöfinni seinka fyrirætlunum
þeirra. freyr@frettabladid.is
Mannskæðustu árásir
í Írak í rúmlega tvö ár
Að minnsta kosti 132 fórust og 520 slösuðust í tveimur bílsprengingum í Bagdad,
höfuðborg Íraks. Þetta er mannskæðasta árásin í landinu í rúm tvö ár.
MANNSKÆÐAR ÁRÁSIR Árásirnar í Bagdad í gærmorgun voru þær mannskæðustu í
Írak í rúm tvö ár.
ÞÆR MANNSKÆÐUSTU SÍÐAN 2003:
Ágúst 2007: Rúmlega 500 farast á árásum á þorp við Sinjar.
Júlí 2007: 150 farast í bílsprengju í Tuz Khurmato.
Apríl 2007: 191 ferst í bílsprengju í Bagdad.
Mars 2007: 152 farast í bílsprengju í Tal Afar.
Febrúar 2007: 135 farast í bílsprengju í Bagdad
Nóvember 2006: 202 farast í sprengingum í Bagdad.
Mars 2004: 171 ferst í sprengingum í Bagdad og Karbala.
Heimild: BBC.
STJÓRNSÝSLA Átta bréf af sautj-
án sem Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, sendi til rannsókn-
arnefndar Alþingis voru birt á vef
embættisins í fyrradag.
Bréfin sem embættið birtir eru
öll til viðtakenda sem hafa látið af
embætti auk tveggja einstaklinga.
Hin bréfin eru til fólks sem enn
gegnir sömu embættum. Bréfin
eru frá 1998 til maí í fyrra.
Ólafur Ragnar sagði í fjölmiðl-
um um helgina tilgang birtingar-
innar þá að draga úr tortryggni
þeim tengdum. Þá sé birtingin
algjör stefnubreyting í samskipt-
um Íslands við önnur ríki og ekki
í samræmi við þær siðareglur sem
gilda í samskiptum ríkja. Í þeim
ríkjum sem Ísland hafi helst sam-
starf við séu lög og reglur sem tak-
marka mjög eða beinlínis hindra
birtingu slíkra bréfa eða gagna
fyrr en eftir langt árabil.
Á meðal þeirra bréfa sem voru
birt eru þakkarbréf til Björgólfs
Thors Björgólfssonar, fyrrver-
andi kjörræðismanns Íslands í
Pétursborg, Jiangs Zemin, fyrr-
verandi forseta Kína, auk bréfa til
Bills Clinton, fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, og til Als Gore,
fyrrverandi varaforseta Banda-
ríkjanna. Í fyrra bréfinu segir
að Landsbankinn hafi áhuga á að
fá Clinton til að halda fyrirlest-
ur í boði bankans. Í bréfi Gores
er greint frá áhuga Glitnis á að fá
hann til að ræða um orkunýtingu.
- jab
Vonast til að birting forsetabréfabréfs dragi úr tortryggni:
Átta bréf af sautján opinber
Af bréfunum sautján eru níu óbirt.
Þau eru öll til einstaklinga sem enn
eru í embætti:
■ Til Alexanders krónprins og Katrínar
krónprinsessu í Serbíu, dagsett 10.
janúar 2005.
■ Til Georgi Parvanov, forseta Búlgar-
íu, dagsett 29. september 2005.
■ Til Hu Jintao, forseta Kína, dagsett
20.07. 2005.
■ Til Nursultan A. Nazarbayev, forseta
Kasakstans, dagsett 12.01. 2006.
■ Til Hu Jintao, forseta Kína, dagsett
01.08. 2007.
■ Til Wen Jiabao, forsætisráðherra
Kína, dagsett 01.08. 2007.
■ Til Hamad Bin Khalifa Al Thani,
emírs af Katan, dagsett 04.02.
2008.
■ Til Mohammed Bin Zayed Al Nahy-
an, krónprins Abu Dhabi, dagsett
23.04. 2008.
■ Til Hamad Bin Khalifa Al Thani,
emírs af Katar, dagsett 22.05. 2008.
BRÉFIN SEM VANTAR
HEILBRIGÐISMÁL Viðbúnaðurinn
við svínaflensunni er sá mesti í
Íslandssögunni að mati Haraldar
Briem sóttvarnalæknis. „Ég hugsa
að það hafi aldrei verið viðbúnað-
ur í stíl við þetta nokkurn tímann
á Íslandi. Við erum búin að und-
irbúa okkur nokkuð stíft í fjög-
ur ár. Þá höfðum við í huga þessa
fuglaflensu sem er búin að vera í
gangi,“ segir Haraldur. „Hún er
mjög skæð og annar hver maður
deyr sem fær hana. En hún hefur
aldrei náð því að berast frá manni
til manns,“ segir hann og útskýr-
ir að hún hafi aldrei náð að stökk-
breytast eins og búist hafi verið
við.
„Við eigum lyf fyrir hálfa þjóðina
til að nota ef menn veikjast og þetta
er í fyrsta skipti sem við fáum bólu-
efni sem við getum vonandi veitt til
allrar þjóðarinnar.“ Búist er við því
að bólusetning fyrir alla Íslendinga
við svínaflensunni geti hafist í lok
nóvember eða byrjun desember.
Alls eru níu manns á aldrinum
30 til 63 ára á gjörgæslu vegna
flensunnar. Einn er á Akureyri og
átta á Landspítalanum og hefur
þeim fjölgað um tvo síðan á laug-
ardag. Sjúklingarnir komu báðir
utan af landi, annar frá Neskaup-
stað og hinn frá Vestmannaeyjum.
Fimm til viðbótar lögðust á Land-
spítalann í gær og nú liggja þar 28
manns með svínaflensu á almennri
deild. Hátt í tugur manna liggur á
sjúkrahúsum annars staðar á land-
inu og því ljóst að flensan hefur
breiðst út um allt landið. - fb
Níu manns á aldrinum 30 til 63 ára á gjörgæslu vegna svínaflensunnar:
Mesti viðbúnaður í sögunni
HARALDUR BRIEM Viðbúnaðurinn við
svínaflensunni er sá mesti við nokkurri
flensu í Íslandssögunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ætti að skattleggja stóriðjuna
til að ná endum saman í ríkis-
rekstri?
Já 63%
Nei 37%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú prófað önnur stýri-
kerfi en Windows?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN