Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 10
10 26. október 2009 MÁNUDAGUR                  !! " #$ !! " %%%    &     ' ( )) * (  ) + , -  )  . / ' ( )) 0  ) ) 1)2 + , )  . /!    34, 5 6    ) ' ( )) * (             # 7 78       9 !:  ;  9 8 ,       !:  ;  9 8    ) 7  <  )  ;   , 9 ,' = ; 9  /!:    ;     #  9  ;  9 9 ; 9)  7 7 , 9 ,' =  "   ! " "   #$ " $  "  %    " $ #  &%"  ' ')"  & '*  '* +""" ',- '. ')  " '/ " 0&  +1 " "- .  * $ #  &%"        2     324*/5 +   11 7  +  #  8 3;  9 9  / ? 2 )  9   ; ;       @   ÞEIR SPARA MEST SEM SKRÁ SIG STRAX Dekkja-, smur- og viðgerðaþjónusta -15% Skráðu þig í Sparitilboð N1 og lækkaðu rekstrarkostnað bílsins um tugi þúsunda króna á næstu 12 mánuðum. Reiknaðu hvað þú sparar og skráðu þig á N1.is. BRETLAND Gordon Brown, forsætis- ráðherra Bretlands, spáir því að efnahagslífið í Bretlandi muni ná að rétta úr kútnum fyrir byrjun ársins 2010. Yfirlýsingin, sem birtist á heimasíðu forsætisráðherrans, kemur í kjölfar frétta um að efnahagur Bretlands hafi dregist saman um 0,4 prósent á þriðja ársfjórðungi ársins 2009. „Við sjáum merki um stöð- ugleika víða, en þrátt fyrir það þurfum við að fara varlega og megum ekki skera niður útgjöld til félagsmála á svo erfiðum tímum. Það væri líkast sjálfs- morði,“ sagði Brown. - sm Gordon Brown vongóður: Spáir uppgangi í efnahagslífinu ORKUMÁL Verkfræðistofan Mann- vit vinnur nú að kortlagningu jarð- hitasvæðis á grísku eyjunum Milos og Komolos fyrir gríska náma- fyrirtækið S&B minerals. Verkefn- ið hefur falist í hagkvæmniathugun og viðnámsmælingum. Fyrirliggj- andi er viljayfirlýsing um frekari þátttöku Mannvits, verði farið út í virkjun á svæðinu, að sögn Sigurðar Lárusar Hólm, sviðsstjóra jarðhita- rannsókna hjá Mannviti. Þrír starfsmenn Mannvits voru í Grikklandi við mælingarnar ásamt starfsmönnum bandarísks undir- verktaka. Ísor kom einnig að verk- efninu. Sigurður Lárus segir að fyrir um 30 árum hafi staðið til að nýta jarðhitasvæðið á Milos en vegna andstöðu íbúa var hætt við áform- in eftir að ein til tvær holur höfðu verið boraðar nærri byggð. S&B Minerals, sem er stórt náma- fyrirtæki, ákvað nýlega að hasla sér völl í vistvænni orkuframleiðslu og samdi upphaflega við Mannvit um að gera hagkvæmniathugun og í framhaldinu var ákveðið að gera þessar mælingar á jarðhitageym- inum og komast að því hvort hægt er að bora eftir jarðhita fjær byggð en áður var fyrirhugað. Mannvit er umsvifamikið í jarð- hitarannsóknum erlendis um þess- ar mundir. Auk verkefnisins í Grikklandi kannar fyrirtækið hag- kvæmni þess að endurbyggja hita- veitu í Oradea í Rúmeníu og kort- leggur stóran jarðhitageymi sem þar er að finna. - pg Verkfræðistofan Mannvit heldur áfram í orkuútrás: Kanna jarðhita á grískum eyjum MILOS Mannvit kannar nú jarðhita á grískum eyjum. NORDICPHOTO/GETTY NÁTTÚRUVERND Verndarsjóður villtra laxastofna, NASF, undir stjórn Orra Vigfússonar, fékk í sinn hlut allt að fimmtán millj- ónir króna í árlegu veiðileyfa- uppboði sínu í Ósló. Meðal ann- ars fengust þrjár milljónir fyrir eina stöng í tvo daga á frægasta veiðisvæði árinnar Alta í Noregi. Áin er nálægt bænum Alta sem er í Finnmörku í Norður-Noregi. Veiðivefurinn vötn&veiði segir frá þessu. Veiðileyfin í Alta eru á fræg- asta svæði árinnar þar sem næsta útilokað er að tryggja sér leyfi. Þar veiða alltaf sömu mennirnir. Stangveiðiáhugamenn eru flestir sammála um það að áin sé ein besta laxveiðiá í heimi. Veiðileyf- in sem voru til sölu að þessu sinni eru á svæði í ánni sem er frægt fyrir stórlaxa sína og er talið mesta stórlaxasvæði sem völ er á þar sem Atlantshafslax gengur úr sjó. Ekki er óalgengt að veiða 40 til 50 punda laxa í ánni en úr íslensk- um ám er sjaldgæft að veiða laxa yfir tuttugu pundum að stærð. Veiðileyfi á uppboðinu voru allt frá Argentínu til Íslands. Upp- boðið byggir á því að leigutak- ar láta af hendi rakna veiðidaga til NASF til að styrkja verndar- sjóðinn. NASF selur síðan dagana hæstbjóðendum. - shá Verndarsjóður Orra Vigfússonar í veiðileyfauppboði: Þrjár milljónir fyrir eina stöng í Alta SANNKALLAÐUR STÓRLAX Sturla Birgisson veiddi þennan lax í ánni Yokanga í Rúss- landi. Hann var 38 pund að stærð sem er algeng stærð í ánni Alta. SÓLIN HYLLT Hindúi á Indlandi hyllir sólina á Chhath-hátíðinni í hofinu Durgiana í Amritsar. Á hátíðinni hyllir fólk náttúruöflin, sólina og árnar. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.