Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 12
12 26. október 2009 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Það er rétt sem Bjarni Bene-diktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði á dögunum: Þjóðin hefur verið niðurlægð. Hún hefur verið niðurlægð svo skelfi- lega, að hún berst nú við þrenn- inguna reiði, skömm og sorg. For- manni Sjálfstæðisflokksins láðist hins vegar að bæta við, að það er hans eigin flokkur sem ber meg- inábyrgð á niðurlægingunni. Út á þá ógæfubraut var lagt þegar sjálfstæðismenn fleygðu Þorsteini Pálssyni fyrir Davíð Oddsson. Stjórnarhættir hans einkenndust af meiri eignatilfærslu en áður eru dæmi um í sögu okkar, fyrst með kvótakerfinu og svo með einkavæðingu bankanna, – ekki að þetta tvennt hafi í eðli sínu verið fordæmanlegt, heldur hvernig var að því staðið. Það var hægt með dyggum stuðningi Framsóknar- flokksins undir forystu Halldórs Ásgrímssonar, sem síðar smitað- ist af þránni að vera skráður for- sætisráðherra án þess að gera sér grein fyrir að slíkri skráningu getur fylgt háðsmerki, þegar frá líður. Ég lít svo á, að þessir tveir stjórnmálaflokkar, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur, hafi staðið fyrir þvílíkri spillingu undir formerkjum nýfrjálshyggju, að þess sjáist fá dæmi, jafnvel þótt farið sé með stækkunargleri yfir landabréf heimsins. Nú voru leiddir til öndvegis fjárglæfra- menn sem reyndust hreinir spila- fíklar og urðu nær alls ráðandi í fjármálum þjóðarinnar. Mikill hluti landsmanna varð meðvirkur, fékk glýju í augun og gekk nánast hortugum skrefum rakleiðis inn í álagafjötra þessarar spilaborgar. Sem auðvitað hlaut að hrynja eins og allar spilaborgir. Svo tók Geir Haarde við stjórn- artaumum og Framsóknarflokkn- um fyrst – síðan Samfylkingunni. Forystu hans finnst mér að helst megi líkja við, að þar hafi farið blindur og heyrnarlaus maður sem síðasta spölinn renndi sér einhvers konar hægfara fót- skriðu á svelli andvaraleysis og óskiljanlegrar linkindar Sam- fylkingarinnar. Það verður, því miður, að skrifa að miklu leyti á ábyrgðarreikning Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Hennar miklu mistök voru að mynda þessa ógæfustjórn með Sjálfstæð- isflokknum. Kannski hefur óþol forystu Samfylkingarinnar og valdalöngun ráðið miklu. Um það veit ég ekki. En hitt veit ég, að flokkur sem kennir sig við jafnað- arstefnu, getur ekki stutt ójöfnuð nýfrjálshyggjunnar. Það hlýtur að enda með ósköpum. Sem það og gerði. Af þessum sökum, eftir það sem á undan er gengið, er nánast furðulegt og reyndar aumkunar- vert að verða nú vitni að fram- göngu tveggja forystumanna stjórnarandstöðunnar, þeirra Bjarna Benediktssonar og Sig- mundar Davíðs Gunnlaugsson- ar, formanna mestu spillingar- flokkanna – þótt þeir hafi ekki ráðið persónulega fyrri tíð. En þeir hafa tekið við forystu og þar með ábyrgð þessara stjórnmála- flokka. Þegar ný ríkisstjórn, undir leiðsögn Steingríms J. Sigfús- sonar fjármálaráðherra, horfist einarðlega í augu við illviðráð- anlegan, blákaldan veruleika og segir að íslensk þjóð ætli sér að axla ábyrgð afglapanna – þá koma þessir menn einna helst fram eins og óábyrgir óvitar. Sá fyrr- nefndi lætur að vísu örla á ráð- villu örvæntingar í augnaráðinu – það má hann eiga. En hinn er sígjammandi líkt og götustrák- ur sem ekki hefur lært almenna mannasiði. Sem á nú reyndar við um fleiri. Fyrir skemmstu var haft eftir ágætum manni: Það er dapurlegt að sjá hvað Framsókn- arflokkurinn yngist illa. Hinu skyldi enginn gleyma, að innri mein verða ekki læknuð með plástrum. Sama gildir um spila- fíkn og aðrar fíknir. Hún verður ekki læknuð með neinum tækni- legum eða hagfræðilegum aðferð- um. Og alls ekki með því að leyfa spilafíklum að halda áfram að fara með fjármuni. Það kunna þeir allra manna síst. Það sem við höfum gengið í gegnum má kannski helst líkja við hunda- hreinsun heillar þjóðar. Að minnsta kosti hefur okkur verið dýft í kaf. Ekki veit ég hvort það dugir. Við sem stöndum álengdar og horfum á sífellt hanaat stjórn- málamanna, við þykjumst sum hver vita, að sálarmein og fíknir verða einungis leystar með viður- kenningu á vanmætti og hugar- farsbreytingu. Við erum að bíða eftir henni. Hvar er hún? Hvenær kemur hún? Höfundur er rithöfundur og prófessor emeritus. Niðurlæging þjóðar NJÖRÐUR P. NJARÐVÍK Í DAG | Hrunið UMRÆÐAN Kristinn H. Gunnarsson skrifar um sjávarútveg Hafrannsóknastofnun hefur ekki tekist að kveða niður langvarandi óánægju með veiðiráðgjöf stofnunarinnar. Van- traust sjómanna í garð stofnunarinnar hefur farið vaxandi og er svo komið að nær alger trúnaðarbrestur virðist vera milli sjómanna og stofnunarinnar. Að sönnu er vitneskja sjómanna engan veg- inn tæmandi né óbrigðul, en á hitt er líka að líta að þekking vísindamanna á lífríki hafsins og viðgangi fiskistofna er háð miklum takmörkun- um. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar hefur reynst víðs fjarri því að vera óskeikul og sjómenn hafa gagnrýnt veigamikla þætti í rannsóknaraðferðum stofnunarinnar. Síðustu ár hafa stjórnvöld fylgt nær eingöngu ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinn- ar. Þekking og álit sjómanna hefur verið fyrir borð borið. Við þetta er ekki gott að búa. Það vantar of mikið af upplýsingum og þekkingu um fiskistofn- ana til þess að veiðiráðgjöf sé á nægilega traustum grunni. Landssamband smábátasjómanna hefur sam- þykkt, að undirlagi Guðmundar Hall- dórssonar fyrrverandi formanns Elding- ar, félagsins í Ísafjarðarsýslum, að koma á ráðgefandi nefnd sjómanna til þess að gefa árlega rökstudda ráðgjöf um heildar- afla á hverju ári. Rætt verður við aðila í sjávarútvegi og stefnt að því að ná sam- stöðu innan greinarinnar. Ætlunin er að leggja ráðgjöf sjómanna fyrir sjávarút- vegsráðherra, þannig að hann hafi tvö álit um veiðar til að styðjast við þegar hann tekur ákvörðun um veiðar úr fiskistofn- unum. Annað frá Hafrannsóknastofnun og hitt frá sjómönnum. Gert er ráð fyrir að ráðgjafarnefnd sjómanna afli gagna um lífríkið í hafinu, veiðar, veiðisvæði og veiðarfæri og aðrar upplýsingar sem sjómenn draga saman við störf sín. Þessi gagnagrunnur mun eflast með árunum og bæta matið á burðar- þoli fiskistofnanna. Ég tel engan vafa leika á því að aflaráðgjöf sjómanna með þessum hætti mun verða tekin alvarlega af ráðherra. Óviðunandi er að búa við ástand þar sem þekking sjómanna er virt að litlu. Sjómenn eiga hiklaust að taka málin í sínar hendur og láta til sín taka á þessu sviði. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Aflaráðgjöf sjómanna KRISTINN H. GUNNARSSON "Af stað". Að lifa með gigt Fræðslufundur fyrir aðstandendur Gigtarmiðstöðin Ármúla 5 - 27. október - kl. 19:30 Þekking eykur skilning Elínborg Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Inga Hrefna Jónsdóttir sálfræðingur munu fjalla um einkenni og fylgikvilla gigtar. Allir eru velkomnir Gigtarfélag Íslands Í gær var Hugmyndaþing haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem fjöldi fyrirlesara og annarra þátttakenda kom sama og ræddu stefnu og framtíðarsýn höfuðborgarinnar. Áherslur borgarbúa snúast eðlilega mikið um sjálfbærni, umhverfis- mál og almenn lífsgæði borgarbúa. Þétta þarf byggðina og sinna betur mannlegum þörfum og lífsgæðum í stað ofuráherslu á mannvirkjagerð. Í fyrirlestri mínum taldi ég að borgin ætti að setja sér það sem markmið á næstu tíu árum að yfirgnæfandi meirihluti bifreiða í borginni yrði knúinn rafmagni eða öðrum umhverfisvænum orkugjöfum. Rafmagnið er þar langáhugaverðasti kosturinn. Það sparar mikinn kostnað við innflutt eldsneyti og dregur verulega úr loft- og hljóðmengun. Við verðum þá ótvírætt í fremstu röð í heiminum á þessu sviði og gætum þannig skapað okkur vissa sérstöðu. Það gerðum við snemma á síðustu öld með Hitaveitu Reykjavíkur sem hefur sparað borgarbúum og þjóðinni allri stór- fé. Bíllinn getur áfram verið þarfasti þjónninn, án mengunar, auk þess sem hjól og almenningssamgöngur munu áfram gegna mikilvægu hlutverki. Síðastliðið föstudagskvöld var þáttur á Stöð 2 þar sem Auddi og Sveppi fóru á milli staða í hjólastól. Þar kom vel í ljós hvað margir staðir í borginni meðal annars Landsbanki Íslands eru ekki með aðgengi fyrir alla. Tillitssemi og hjálpsemi flestra borgarbúa er mikil, en sumir fá falleinkunn. Eigendur gamla Landsbanka Íslands eyddu hundruðum milljóna í margs konar stuðning við íþróttastarf, listir, menningu og glæsilegar utanlandsferðir fyrir stærstu viðskiptavini bankans. En það virðist ekki hafa skipt máli að allir hefðu aðgengi að bankanum. Afsökun starfsmanns Lands- bankans í þessum sjónvarpsþætti um að húsið væri 123 ára gam- alt, og þá voru hjólastólar ekki til, var hlægileg og dæmigerð um skilningsleysi. Auk þess er þessi hluti Landsbankabyggingarinnar mun yngri. Auðvitað þarf aldur húsnæðis ekki að vera afsökun. Höfði, Þjóðmenningarhúsið, Eimskipafélagshúsið þar sem nú er hótel 1919, Hótel Borg, Dómkirkjan, aðalbygging Háskóla Íslands og fjölmargar aðrar gamlar byggingar í borginni eru komnar með aðgengi og snyrtiaðstöðu fyrir alla. Það er þakkarvert hvað Reykjavíkurborg hefur lagt mikið í göngu- og hjólaleiðir í borginni. Það er víða orðið þokkalega auð- velt að ferðast um á hjóli, hjólastól, rafskutlu eða með barnavagn yfir götur og gangstéttar, þótt enn sé mikið verk að vinna. Ferða- þjónusta fatlaðra og fjölmargir aðgengilegir leigubílar gera auk þess öllum auðvelt að komast ferða sinna. Þannig er það alls ekki í öllum borgum erlendis. Reykjavíkurborg þarf aftur á móti að fylgja sterkar eftir að stofnanir, fyrirtæki og verslanir í borginni séu með aðgengismál í lagi. Við öll þurfum að halda vöku okkar og beita okkur fyrir aðgengilegu þjóðfélagi fyrir alla, án þess að fara út í einhverjar öfgar. Við getum gert góða borg enn betri, og þá fyrir alla. Hugmyndaþing í Ráðhúsi Reykjavíkur: Betri Reykjavík fyrir alla ÞORKELL SIGURLAUGSSON SKRIFAR Umfjöllunin Upp er runnin síðasta vinnuvika Baldurs Guðlaugssonar í mennta- málaráðuneytinu. Hann óskaði á föstudag eftir að fá að láta af embætti ráðuneytisstjóra um mánaðamót. Baldur sætir rannsókn sérstaks saksóknara sem grunar að hann kunni að hafa selt hlutabréf í Landsbankanum rétt fyrir hrun á grundvelli upplýsinga sem hann bjó yfir vegna stöðu sinnar sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Það er hins vegar ekki ástæða afsagn- ar Baldurs. Hún er til komin vegna frétta af þeirri sömu rann- sókn. Umfjöllunin truflar Baldur, ekki rannsóknin. Sama saga Baldur fer í flokk með nokkrum öðrum sem hafa þurft að hverfa úr störfum vegna frétta og umræðu en ekki vegna einhvers sem þeir gerðu. Í kompaníinu eru til dæmis Erlendur Hjaltason sem var formaður Viðskiptaráðs, Þór Sigfússon sem var formaður Samtaka atvinnulífsins og Magnús Árni Skúlason sem sat í bankaráði Seðlabankans. Lausnir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði í Fréttablaðinu á laugardag að litla framtíðarsýn væri að finna meðal forystu Framsóknarflokksins. Sama dag birtist grein í Mogganum eftir Þóreyju A. Matthíasdóttur, formann Landssambands framsóknarkvenna. Hún segir skorta á framtíðarsýn stjórnvalda í atvinnumálum og er hugsi yfir andleysi nýsköpunar. Öfugt við flesta lætur Þórey sér ekki duga að nöldra, hún leggur fram hugmyndir. „Af hverju er til dæmis ekki farið að framleiða einnota bleiur, dömubindi og jafnvel leðurskó?“ spyr Þórey. Þessu þarf iðnaðarráðherra vitaskuld að svara. bjorn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.