Fréttablaðið - 26.10.2009, Síða 13

Fréttablaðið - 26.10.2009, Síða 13
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snyrti- og förðunarfræðingurinn Þura Stefánsdóttir er ekki lengi að hugsa sig um þegar hún er beðin um að benda á eftirlætishlut sinn á heimilinu. „Það er aldargam- alt buffet sem ég erfði eftir lang- ömmu mína Sigurjónu Einarsdótt- ur. Það er svarbrúnt að lit með útskornu munstri og spegli og er að því ég best veit frá því um alda- mótin 1900. Það minnir örlítið á snyrtiborð en er þó hugsað sem stofustáss.“ Í buffetinu geymir Þura allt sitt persónulegasta. „Þarna eru fæðing- arvottorð og einkunnir barnanna minna ásamt reykelsum, kertum og öðru fíneríi.“ Ofan á buffet- inu er mynd af móðurömmu Þuru ásamt kertastjökum og blómavasa. „Ég er mikil kertakona og kveiki nánast daglega á kertum.“ Þó að Buffetið sómi sér vel í stofunni hjá Þuru þá mun það ekki standa þar alla tíð. Það er ætlað dóttur hennar Sigur- jónu Sigurðardóttur sem heit- ir í höfuðið á langalangömmu sinni. „Hún á að fá það þegar hún fer að búa en ég vona að ég fái að geyma það næstu fimmtán ár eða svo.“ Þura blandar saman gömlum og nýjum húsgögnum á heimili sínu og vill hafa umhverfið persónu- legt. „Ég vil ekki búa í sýningar- stofu og legg frekar upp úr því að skapa umhverfi þar sem fólki líður vel. Ég er með alls kyns viðarteg- undir í bland og hrífst af hlýjum jarðlitum.“ Þura opnaði snyrtimiðstöðina Gallerí Útlit ásamt þeim Guðrúnu Bjarnadóttur og Örnu Eyjólfsdótt- ur í vor en þar er boðið upp á alla almenna snyrtingu fyrir konur og karla. Þá er hún sífellt að hanna og bæta inn í förðunarlínuna sína MakeupTime4U en útsölustaði og vefverslun er að finna á www.mak- euptime4u.is. vera@frettabladid.is Dóttirin mun erfa gripinn Aldargamalt buffet á sér heiðurssess í stofunni hjá Þuru Stefánsdóttur en það er ættargripur frá lang- ömmu hennar. Buffetið er ætlað Sigurjónu dóttur Þuru sem ber sama nafn og langalangamman. Buffetið er frá því um aldamótin 1900. FRÉTTABLAÐÐ/GVA ÞORPIÐ – skapandi samfélag á Austurlandi er hönnunar- og nýsköpunarverkefni sem kynnt verður formlega á tveimur kynningarkvöldum í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á þriðjudag og miðvikudag. Blásið verður til málþings um verkefnið á Eiðum á fimmtudagskvöld. www.honnunarmidstod.is Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is Varmaskiptasamstæður loftræstistokkar og tengistykki Hágæða Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur. Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar. A u g l. Þ ó rh il d a r 1 4 6 0 .2 4 Lím og þéttiefni í úrvali Tré & gifsskrúfur. Baðherbergisvörur og höldur. Glerjunarefni. Hurðarhúnar og skrár. Rennihurðajárn. Hurðarpumpur. Rafdrifnir hurðaropnarar. Hert gler eftir máli. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. 104 Reykjavík S: 58 58 900. - www.jarngler.is Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Opið virka daga kl. 12.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00 6 mán. vaxtalausar greiðslur Fyrst og fremst í heilsudýnum Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.