Fréttablaðið - 26.10.2009, Qupperneq 14
VAX Í DÚKUM getur verið erfitt að losna við. Ein leið er að
strengja dúkinn á skál eða hring og festa með gúmmíbandi,
skrapa mesta vaxið af og láta síðan sjóðandi vatn renna í
gegnum dúkinn. Vaxið leysist þá upp og skolast í burtu.
„Við fókuserum á að vera umhverf-
isvænar og viljum sýna fram á að
hægt sé að gera flotta og ferska
hluti upp úr gömlu. Notum mikið
íslensku ullina,“ segir Elísabet
þegar hún lýsir áherslunum í eigin
hönnun og Olgu Hrafnsdóttur sem
saman framleiða undir merkinu
Volka. Sýning þeirra í Kirsuberja-
trénu nefnist Húsgögnin í herberg-
inu og þar sést meðal annars að
gamlar lopapeysur geta sem best
nýst sem húsgagnaáklæði og trefl-
ar. „Lopapeysan er flott hráefni
sem búið er að leggja mikla vinnu
í og auk þess svo hlýleg að yndis-
legt er að hafa hana nálægt sér í
híbýlunum,“ benda þær á.
Eitt af því sem þær framleiða
með risaheklunál eru stórar pull-
ur. Fyrir eina slíka fengu þær til-
nefningu til verðlauna á Hand-
verkssýningunni að Hrafnagili í
sumar. Hún er úr ull og grófri línu
og tengir því saman landbúnað og
sjávarútveg.
Elísabet er grafískur hönnuður
og hefur einnig numið innanhúss-
arkitetúr og Olga er trésmiður.
Þær hafa verið búsettar í Haag í
Hollandi undanfarin ár en nú er
Elísabet nýflutt heim. Þær héldu
sína fyrstu sýningu í Hollandi í
fyrra. Vörur þeirra eru til sölu í
vefversluninni www.skoonecode-
sign.nl og Hraunhúsum í Mosfells-
bæ. gun@frettabladid.is
Hannað í ís-
lenskum anda
Endurnýting er í hávegum höfð hjá Elísabetu Jónsdóttur og Olgu
Hrafnsdóttur sem sýna nú í Kirsuberjatrénu á Vesturgötu 4. Gamlar
lopapeysur öðlast til dæmis alveg nýtt líf í höndum þeirra.
Stóll sem gerður er úr hliðum sjö gam-
alla stóla sem seturnar voru ónýtar á.
Sem sagt 100 prósenta endurnýting.
Kindahorn sett í nýtt samhengi.
Mirra Sigmundsdóttir og Olgu situr á
pullu sem hekluð er með risaheklunál
úr ull og grófri línu.
Olga og Elísabet undir ljósakrónu sem
þær fundu á markaði og hekluðu utan
um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sítróna og salt er það eina sem þarf
til að þrífa kopar. Sítrónan er
skorin til helminga og salti
stráð í sárið. Síðan er koparinn
nuddaður með sítrónunni þar til
hann er orðinn skínandi fínn.
www.martha-stewart.com
Kóreski hönnuðurinn Shawn Soh
hefur næmt auga fyrir fegurðinni.
Það sést vel á þessum ævintýralegu
bókahillum sem annars vegar líkjast
tré og hins vegar hreindýri.
Það er skemmtilegt til
þess að hugsa
að bókin sem er
í raun gerð úr
tré, verði að
lokum geymd
í tré.
Tréð sem geymir bækur
HILLUR SEM MYNDU SÓMA SÉR VEL Í BARNAHERBERGI.
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagur 26. október
Miðvikudagur 28. október
Fimmtudagur 29. október
Qi – Gong - Æfingar sem hjálpa fólki að afla, varðveita
og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00.
Gönguhópur - Við klæðum okkur eftir veðri og göng-
um rösklega út frá Rauðakrosshúsinu. Tími: 13.00 -14.00.
Skiptifatamarkaður - Útiföt barna - Komdu og
skiptu útifötum barnanna í aðrar stærðir og gerðir.
Tími: 13.30 -17.00.
Farsíminn þinn II – Örnámskeið fyrir þá sem þegar
kunna að nota algengustu valmöguleikana.
Tími: 13.30-14.30.
Baujan sjálfstyrking - Fullt! Tími: 15.00 -16.30.
Tónlist sem eflandi og þroskandi afl - Móeiður
Júníusdóttir fjallar um tónlistaruppeldi í máli og tónum.
Tími: 15.00 -16.00.
Atvinnuviðtalið - Gunnar frá Capacent gefur góð ráð
um hvernig maður best er að bera sig að í atvinnuviðtöl-
um og hvað á alls ekki að gera. Tími: 12.30 - 13.30.
Af hverju verðum við meðvirk? - Hvaða aðstæður
og umhverfi valda meðvirkni? Tmi: 12.15-13.15.
Föndur, skrapp-myndaalbúm og jólakort - Gott er
að hafa skæri meðferðis. Tími: 13.00-15.00.
Saumasmiðjan - Gerðu nýjar flíkur úr gömlum fötum
og lærðu að breyta og laga. Komdu með saumavél ef
þú getur. Tími: 13.00-15.00.
Náms- og starfsráðgjöf - Skráning nauðsynleg.
Tími: 13.00-15.00.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Spænska og menning hins spænskumælandi
heims – Þriðji hluti af fjórum. Framhald frá því í ágúst.
Tími: 12.30-14.30.
Íslenskuspilið – Höfundurinn kennir glænýtt spil sem
nýta má í íslenskunámi útlendinga. Komdu og spilaðu
með! Tími: 13.00-15.00.
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri
og gleði? Tími: 15.30-16.30.
Föstudagur 30. október
Art of living - Slökun og öndun – Æfingar sem allir geta
nýtt sér. Tími: 12.00-13.00.
Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra
atburða á andlega líðan fólks. Tími: 13.00-14.30.
Prjónahópur - Vertu með! Tími: 13.00-15.00.
Hreyfing og markmiðasetning - Fjallað verður um
gildi hreyfingar fyrir vellíðan okkar og hvernig má setja
sér raunhæf markmið um aukna hreyfingu.
Tími: 15.00-16.00.
Allir velkomnir!
Tölvuaðstoð - Fáðu persónulega aðstoð og komdu
með eigin tölvu ef þú getur. Tími: 13.30-15.30.
Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina Nornin í
Portobello eftir Paulo Coelho. Tími: 14.00-15.00.
Verkefni Rauða kross Íslands - Hvað getur þú lagt
af mörkum? Tími: 14.00-15.00.
Hjólaviðgerðir og vetrarundirbúningur - Mættu
á hjólinu og lærðu að viðhalda því. Tími: 15.30-16.30.
Þriðjudagur 27. október
Rauðakrosshúsið
www.elin.is • Bæjarhrauni 2 Hfj. • Sími: 696 4419
Rope Yoga
Námskeið hefjast 26. og 27. október október