Fréttablaðið - 26.10.2009, Side 33
MÁNUDAGUR 26. október 2009 17
sport@frettabladid.is
Júlíus Vífi ll Ingvarsson formaður skipulagsráðs
kynnir stuttlega vinnu við nýtt aðalskipulag
áður en umræður hefjast.
Grafarholt 27. okt. kl. 17-18:30 Ingunnarskóli
Laugardalur 29. okt. kl. 17-18:30 Laugalækjarskóli
Grafarvogur 3. nóv. kl. 17-18:30 Foldaskóli
Árbær 5. nóv. kl. 17-18:30 Árbæjarskóli
Kjalarnes 10. nóv. kl. 17-18:30 Klébergsskóli
Hlíðar 11. nóv. kl. 17-18:30 Háteigsskóli
Háaleiti 12. nóv. kl. 17-18:30 Réttarholtsskóli
Breiðholt 19. nóv. kl. 17-18:30 Breiðholtsskóli
Vesturbær 24. nóv. kl. 17-18:30 Afl agrandi 40
Miðbær 26. nóv. kl. 17-18:30 Austurbæjarskóli
www.adalskipulag.is
Umræður um framtíðarskipulag í þínu hverfi
Vinnuhópar með aðferðum Air Opera.
Hugmyndasmiðja
Hugmynda- og teiknivinna með ungum arkitektum.
Vinnustofa fyrir börn
Undir stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík.
Hádegisfundur ÍSÍ
Föstudagur 30. okt. kl. 12.00-13.00 í E-sal Íþr.-
miðstöðvarinnar í Laugardal. Tengsl afmælisdaga og
árangurs í íþróttum - Ingi Þór Einarsson aðjúnkt við HÍ.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Uppl. í síma 460-1467
og á vidar@isi.is.
Sjá nánar á www.isi.is
Enska úrvalsdeildin:
LIVERPOOL - MAN. UTD 2-0
1-0 Fernando Torres (65.), 2-0 David Ngog (90.).
BOLTON - EVERTON 3-2
1-0 Chung-Yong Lee (16.), 2-0 Gary Cahill (27.),
2-1 Louis Saha (32.), 2-2 Marouane Fellaini (55.),
3-2 Ivan Klasnic (86.).
MAN CITY - FULHAM 2-2
1-0 Joleon Lescott (54.), 2-0 Martin Petrov (60.),
2-1 Damien Duff (62.), 2-2 Clint Dempsey (68.)
WEST HAM - ARSENAL 2-2
0-1 Robin Van Persie (16.), 0-2 William Gallas
(37.), 2-1 Carlton Cole (74.), 2-2 Alessandro
Diamanti, víti (80.)
BIRMINGHAM CITY - SUNDERLAND 2-1
1-0 Liam Ridgewell (36.), 2-0 James McFadden
(47.), 2-1 Scott Dann, sjm (82.)
BURNLEY - WIGAN ATHLETIC 1-3
1-0 Steven Fletcher (3.), 1-1 Hugo Rodallega
(10.), 1-2 Hugo Rodallega (50.), 1-3 Emmerson
Boyce (75.).
CHELSEA - BLACKBURN ROVERS 5-0
1-0 Gael Givet, sjm (20.), 2-0 Frank Lampard
(47.), 3-0 Mickael Essien (51.), 4-0 Frank Lamp-
ard (58.), 5-0 Didier Drogba (63.).
TOTTENHAM HOTSPUR - STOKE CITY 0-1
0-1 Glenn Whelan (85.).
WOLVES - ASTON VILLA 1-1
0-1 Gabriel Agbonlahor (78.), 1-1 Sylvan Ebanks-
Blake (82.)
STAÐAN:
Chelsea 10 8 0 2 24-8 24
Man. United 10 7 1 2 21-11 22
Arsenal 9 6 1 2 29-13 19
Tottenham 10 6 1 3 21-14 19
Liverpool 10 6 0 4 24-13 18
Man. City 9 5 3 1 18-11 18
Aston Villa 9 5 2 2 13-8 17
Sunderland 10 5 1 4 18-15 16
Stoke City 10 4 3 3 9-11 15
Wigan Athletic 10 4 1 5 12-17 13
Burnley 10 4 0 6 10-22 12
Bolton 9 3 2 4 14-15 11
Fulham 9 3 2 4 10-12 11
Everton 9 3 2 4 12-15 11
Birmingham 10 3 1 6 8-12 10
Blackburn 9 3 1 5 11-22 10
Wolves 10 2 3 5 9-16 9
Hull City 10 2 2 6 8-22 8
West Ham 9 1 3 5 11-15 6
Portsmouth 10 1 1 8 5-15 4
N1-deild karla:
HK-Stjarnan 23-21
Mörk HK: Valdimar Þórsson 9, Ragnar Hjaltested
4, Atli Ævar Ingólfsson 3, Bjarki Gunnarsson 1,
Hákon Bridde 1, Bjarki Elísson 1, Ólafur Víðir
Ólafsson 1, Sverrir Hermannsson 1, Jón Björgvin
Pétursson 1, Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1.
Mörk Stjörnunnar: Þórólfur Nielsen 4, Kristján
Kristjánsson 4, Jón Arnar Jónsson 4, Sverrir
Eyjólfsson 3, Daníel Einarsson 3, Vilhjálmur Hall-
dórsson 2, Guðmundur Guðmundsson 1.
N1-deild kvenna:
HK-Valur 18-36
Stjarnan-FH 40-25
Mörk Stjörnunnar: Elísabet Gunnarsdóttir 8, Alina
Daniela Tamasan 7, Kristín Jóhanna Clausen 6,
Þorgerður Anna Atladóttir 5, Jóna Sigríður Hall-
dórsdóttir 4, Þórhildur Gunnarsdóttir 4, Harpa Sif
Eyjólfsdóttir 3, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2.
Mörk FH: Ragnheiður Rósa Guðmundsdóttir 9,
Sigrún Gilsdóttir 5, Gunnur Sveinsdóttir 4, Heið-
dís Guðmundsdóttir 1, Birna Íris Helgadóttir 1.
Víkingur-Fram 13-44
Mörk Víkings: Guðríður Ósk Jónsdóttir 5, Guðný
Halldórsdóttir 3, Andrea Olsen 3, Brynhildur
Bolladóttir 1, Díana Nordbek 1.
Mörk Fram: Anna María Guðmundsdóttir 8, Mart-
he Sördal 6, Karen Knútsdóttir 6, Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir 4, Stella Sigurðardóttir 4, Ásta
Birna Gunnarsdóttir 4, Anna Friðriksdóttir 3, Eva
Hrund Þórðardóttir 3, Hildur Þorgeirsdóttir 3.
KA/Þór-Fylkir 15-27
Mörk KA/Þórs: Emma Havin Sardardóttir 5, Inga
Dís Sigurðardóttir 3, Ásdís Sigurðardóttir 3.
Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 7, Sunna María
Einarsdóttir 6, Hildur Harðardóttir 3, Sigríður
Hauksdóttir 3, Tinna Jökulsdóttir 2.
ÚRSLIT
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu á erfitt verkefni fyrir
höndum að vinna sinn riðil í undankeppni HM eftir 2-0
tap gegn Frökkum ytra á laugardag. Franska liðið var miklu
sterkara og hefði hæglega getað unnið stærri sigur.
„Þetta gekk alls ekki nógu vel. Ástæðan fyrir því er fyrst
og fremst sú að við söknuðum lykilmanna í leiknum. Það
var bara of stór biti fyrir okkur. Gæði leikmanna franska
liðsins voru meiri en hjá okkur og við máttum í raun
þakka fyrir að tapa ekki stærra,“ sagði Sigurður Ragnar
Eyjólfsson landsliðsþjálfari.
Ísland var án Guðrúnar Sóleyjar Gunnarsdóttur og Söru Bjark-
ar Gunnarsdóttur. Til að bæta gráu ofan á svart varð Margrét
Lára Viðarsdóttir að fara af velli snemma í fyrri hálfleik.
„Við lögðum upp með að verjast vel en franska liðinu tókst
samt að opna okkur. Þóra varð samt frábærlega og hélt okkur
hreinlega á floti lengi vel. Þetta var erfitt allan leikinn. Það
vantaði svolítið kjölfestuna hjá okkur en bæði Guðrún og Sara
hafa verið lykilmenn hjá okkur. Svo fór broddurinn úr sókninni
þegar Margrét varð að hætta. Ég var samt mjög ánægður með
vinnsluna hjá Hönnu í leiknum,“ sagði Sigurður.
Ísland mætir Norður-Írum ytra á miðvikudag og Margrét Lára
verður væntanlega ekki með í þeim leik.
„Hún var að drepast allan tímann sem hún spilaði. Henni
er illt aftan í báðum lærunum enda að glíma við erfið og
afar sjaldgæf meiðsli sem gætu leitt til þess að hún þyrfti
að fara í aðgerð. Ég reikna ekki með henni í leikinn á
miðvikudag og það væri bónus ef hún getur spilað,“
sagði Sigurður en íslenska liðið má ekki misstíga sig
meira ætli það að vinna riðilinn.
„Írska liðið er líklega það þriðja sterkasta í riðlin-
um og ég býst við mjög erfiðum leik. Við þekkjum
þær lítið og þurfum að fara varlega inn í leikinn.
Ætlum samt að mæta þeim hærra á vellinum
en Frökkum enda kemur ekkert annað en sigur
til greina í þeim leik. Þetta verður samt erfitt og
sérstaklega þar sem við erum lemstraðar. Ætlum
við aftur á móti að búa til úrslitaleik gegn Frökkum
heima á næsta ári þá verðum við að vinna.“
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: HEPPNAR AÐ TAPA EKKI STÆRRA Í FRAKKLANDI
Margrét Lára líklega ekki með gegn Norður-Írum
> HK lagði Stjörnuna
HK nældi í tvö mikilvæg stig í í N1-deildinni í gær þegar
liðið fékk Stjörnuna í heimsókn í Digranesið. Stjarnan
var með yfirhöndina framan af en lokakafli leiksins var
æsispennandi. HK náði að komast yfir en Stjarnan
gat jafnað leikinn þegar tæp mínúta var eftir af
leiknum. Vilhjálmur Halldórsson kastaði aftur á
móti frá sér boltanum en hann hafði skömmu
áður klúðrað vítakasti. HK fór því í síðustu sókn
leiksins og úr henni skoraði
Valdimar Þórsson og tryggði
HK öll stigin í leiknum. Loka-
tölur 23-21.
FÓTBOLTI Það var mikið undir hjá
Liverpool í gær. Liðið átti á hættu
að tapa sínum fimmta leik í röð,
sem hefur ekki gerst í 56 ár, og að
lenda tíu stigum á eftir Man. Utd í
deildinni. Liðið varð því að leggja
Man. Utd að velli.
Leikgleðin skein úr hverju and-
liti leikmanna Liverpool og þeir
voru hrikalega vinnusamir og
grimmir. Við þessum leik liðs-
ins átti Man. Utd ekki svar. Tor-
res skoraði fyrst glæsilegt mark
eftir að hafa haldið Rio Ferdinand
frá boltanum og David Ngog bætti
öðru marki við í uppbótartíma.
Í millitíðinni hafði Nemanja
Vidic, leikmaður Man. Utd, fengið
að fjúka af velli með rautt spjald
en þetta var þriðji leikurinn í
röð gegn Liverpool sem hann sér
rautt. Svo fékk Mascherano, leik-
maður Liverpool, að fara sömu
leið.
„Leikmennirnir sýndu gríðar-
legan karakter og stuðningsmenn-
irnir hjálpuðu mikið til. Við vorum
tólf inni á vellinum,“ sagði Rafa
Benítez, stjóri Liverpool, sem fékk
stuðningsyfirlýsingu fyrir leik.
Starf hans var sagt öruggt sama
hvernig leikurinn færi. „Þetta
lið er betra en margir halda. Það
sýndi þann karakter og styrk sem
það býr yfir í dag. Leikmennirnir
svöruðu mörgum spurningum í
dag sem var mikilvægt. Það unnu
allir saman og svona náum við
árangri,“ sagði Benítez sem átti
erfitt með að sitja meðan á leik
stóð. henry@frettabladid.is
Liverpool á beinu brautina
Liverpool er enn með í slagnum um Englandsmeistaratitilinn eftir glæstan og
sanngjarnan sigur á Man. Utd, 2-0, á Anfield í gær. Torres kom aftur í lið Liver-
pool og gerði gæfumuninn. Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið.
GLEÐI Pepe Reina, markvörður Liverpool, hljóp yfir allan völlinn til þess að fagna
marki Davids Ngog í uppbótartíma. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, viðurkenndi eftir leik-
inn í gær að Liverpool hefði verið
betra liðið í leiknum og átti sigur-
inn skilinn.
„Ég tek ekkert af Liver-
pool sem átti sigurinn skil-
inn. Frammistaða okkar
olli vonbrigðum og
við vorum ekki nógu
góðir.“ sagði Fergu-
son.
Hann var langt
frá því að vera sátt-
ur við dómara leiks-
ins, Andre Marri-
ner. Ferguson vildi
fá víti þegar Jamie
Carragher spark-
aði Michael Carrick
niður í teignum, hann
vildi Carragher af
vellinum er hann
reif Owen niður
undir lok leiksins
og honum fannst
fyrra spjaldið hans Vidic afar
ódýrt.
„Það var erfitt andrúmsloft á
Anfield og ég held að það hafi
haft áhrif á dómarann. Fyrra
spjaldið á Vidic var
versta ákvörðun leiks-
ins en sú umdeildasta
var þegar hann
sleppti því að reka
Carragher af velli.
Það hefði breytt
miklu og sett
Liverpool undir
meiri pressu,“
sagði Ferguson
pirraður.
„Það var líka
hræðilegt að fá
ekki víti þegar
Carrick var tekinn
niður. Dómarinn var
rétt hjá atvikinu. Það
var vond ákvörðun,“
sagði Ferguson.
- hbg
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United:
Liverpool var betra